Fréttablaðið - 24.09.2022, Síða 95
tsh@frettabladid.is
Mikil umræða hefur skapast um
uppsetningu Þjóðleikhússins á
söngleiknum Sem á himni, í kjölfar
þess að RÚV birti leikhúsgagnrýni
eftir Nínu Hjálmarsdóttur þar sem
hún gagnrýndi leikhúsið meðal
annars fyrir þá ákvörðun að láta
ófatlaðan leikara túlka hlutverk
fatlaðs manns.
Leikstjóri verksins, Unnur Ösp
Stefánsdóttir, brást við gagnrýninni
með yfirlýsingu á Facebook þar sem
hún sagði umræðuna vera „miklu
stærri og mikilvægari en einstaka
leiksýning“ og kvað málefni fatlaðs
fólks standa sér nærri. Þá lýsti hún
því yfir að Þjóðleikhúsið myndi
boða til málþings um leikhúsið og
birtingarmynd raunveruleikans
innan þess. Magnús Geir Þórðarson
þjóðleikhússtjóri staðfestir þetta.
„Við fögnum umræðu um þessi
mikilvægu málefni og viljum taka
þátt í henni. Í leikhúsinu viljum við
takast á við brýn samfélagsleg mál
og miðla þeim af heilindum og virð
ingu. Við finnum að það eru ólíkar
skoðanir á einni sögunni í sýning
unni Sem á himni og okkur langar
að opna þá umræðu og samhliða að
ræða leikhúsið almennt og hvernig
raunveruleikinn birtist í leikhúsinu.
Því efnum við til málþings nú síðar
í haust þar sem við ræðum þessi
mál á breiðum grunni og vonandi
með þátttöku sem flestra. Vonandi
verður það til að þoka okkur öllum
í rétta átt,“ segir hann.
Að sögn Magnúsar verður sjónum
ekki aðeins beint að birtingarmynd
um fatlaðs fólks í sviðslistum, heldur
lögð áhersla á hlutverk leikhússins
sem samfélagslegs hreyfiafls. Hann
segir Þjóðleikhúsið gagngert hafa
tekið Sem á himni til sýninga til að
beina kastljósinu að fjölbreyttum
samfélagskimum og varpa ljósi
á ólíkan reynsluheim fólks, svo
sem fatlaðra og þolenda heimilis
ofbeldis.
„Með þessu verki erum við að
reyna að vekja athygli á til dæmis
stöðu fatlaðs fólks og raunveru
leika þess. Unnur þekkir það af
eigin raun og er þess vegna málið
afskaplega skylt og kært og er í því
af mikilli ástríðu,“ segir Magnús
og bætir við: „Einlægur ásetningur
listamannanna og leikhússins alls
er að miðla þessari sögu á fallegan
og heiðarlegan hátt, á sama tíma og
áhorfendur hrífast með sögunni í
víðara samhengi.“
Magnús Geir viðurkennir að saga
Dodda, sem er ungur fatlaður maður
leikinn af Almari Blæ Sigurjónssyni,
sé krefjandi og geti verið óþægileg
fyrir áhorfendur að horfa á.
„Þó flest í sýningunni sé fallegt og
opni hjörtu okkar, þá eru einstaka
þættir sem geta verið óþægilegir
eins og í lífinu sjálfu og það á við
um sögu Dodda, þar sem dregin er
upp mynd af lífi manns sem glímir
við tiltekna fötlun. Ásetningur
listamannanna var að fegra ekki
þessa mynd heldur vekja okkur til
umhugsunar. Listamennirnir gera
þetta af mikilli næmni og stóru
hjarta og þessi saga virðist hreyfa
við fjölmörgum sem hafa séð hana.“
Að sögn Magnúsar var spurningin
um hvort fatlaður eða ófatlaður leik
ari skyldi túlka hlutverkið skoðuð
og rædd frá öllum hliðum af list
rænum stjórnendum og leikstjóra
sýningarinnar, sem tók endanlega
ákvörðun um hlutverkaskipan,
venju samkvæmt.
„Það var rætt ítarlega hvort ástæða
væri til að sækja út fyrir leikhúsið
einstakling sem þekkir hlutskipti
Dodda af eigin raun. Niðurstaða list
rænna stjórnenda hér var sú sama og
í flestum erlendum uppsetningum,
að það þyrfti atvinnuleikara í þetta
hlutverk eins og önnur í verkinu til
að ná þeim áhrifum sem að er stefnt.
Leikhúsið byggist almennt á því að
Þjóðleikhússtjóri fagnar umræðunni
Magnús Geir
Þórðarson segir
umræðuna um
Sem á himni
vera mikilvæga
og eitthvað sem
Þjóðleikhúsið
fagni og sé
tilbúið að taka
þátt í.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
við segjum sögur með því að leikari
bregður sér í hlutverk og túlkar það
á sviðinu. Við gerum almennt ekki
kröfur um að leikari hafi upplifað
allar aðstæður eða tilfinningar sem
persónan sem hann leikur á að upp
lifa, þó það geti verið áhrifaríkt á
réttum vettvangi,“ segir hann.
Magnús Geir segir það ekki
standa til að breyta Sem á himni,
en ítrekar að umræðan um verkið
sé mikilvæg og að allir í leikhúsinu
leggi við hlustir og vilji taka þátt í
samtalinu.
„Í leikhúsinu verðum við að þora
að taka á viðkvæmum málum og
reyna að nýta samband okkar við
áhorfendur til að vera hreyfiafl til
góðra verka. Sýningin Sem á himni
er um samfélag, hvert og eitt okkar
á að fá pláss og rétt til að vera eins
og við erum. Til að kórinn í sögunni
virki, þá þurfa allir að fá að vera
með,“ segir hann. n
MARK AÐURINN ER LÍK A Á NETINU: W W W.FORL AGID. IS
1.490 kr.
1.490 kr.
990 kr.
1.990 kr.
990 kr. 1.990 kr.
990 kr.
990 kr.
490 kr.
2.990 kr.
ÓTRÚLEGT
ÚRVAL! OPIÐ 10-19 ALLA DAGA
7. SEPT.- 3. OKT.
Á FISKISLÓÐ 39
ÍS-
BÍLLINN
KL. 14.00
Á SUNNUDAG
LAUGARDAGUR 24. september 2022 Menning 47FRÉTTABLAÐIÐ