Fréttablaðið - 24.09.2022, Page 98

Fréttablaðið - 24.09.2022, Page 98
Heimildarmyndin Í skóm drekans var frumsýnd 2002 eftir að hafa brotið af sér hlekki lögbanns. Myndin þykir fanga vel horfinn tíðaranda náinnar fortíðar og Hrönn segir að þegar horft er á hana núna sé það svolítið eins og að opna illa lyktandi tímahylki. toti@frettabladid.is Systkinin Hrönn og Árni Sveins- börn fagna því með sérstakri afmæl- issýningu í Bíó Paradís í kvöld að 20 ár eru liðin frá frumsýningu heim- ildarmyndarinnar Í skóm drekans, þar sem Árni fylgdi systur sinni eftir með tökuvélina þegar hún tók þátt í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Ísland.is. „Atburðir myndarinnar eiga sér stað fyrr, á því herrans ári 2000. Myndin kemur svo ekki út fyrr en 2002,“ segir Árni. „Þetta er sko fyrir einkavæðingu bankanna og það tívolí sem okkur var boðið upp á. Þannig að þetta er bara annar heimur. Það er líka rosa mikið reykt í þessari mynd.“ Komið var í veg fyrir frum- sýningu myndarinnar árið 2000 og fram undan voru lagaf lækjur og krókar þar sem systkinin, lög- maður þeirra og margir aðrir, töldu tjáningarfrelsið í raun vera í húfi. Stigið í drullusvað „Þetta voru náttúrlega bara ein- hverjir varðhundar vörumerkis sem höfðu ekkert ímyndunarafl og héldu að hún, eða við, værum bara illa innrætt og drifin áfram af ein- hverjum mjög lágum hvötum,“ segir Árni og Hrönn skýtur inn í: „Og ætl- uðum að drulla yfir alla.“ „En síðan kom annað á daginn þegar myndin leit loksins dagsins ljós. Að þetta var bara mjög per- sónuleg frásögn af reynsluheimi ungrar konu að stíga inn í þetta…“ segir Árni og aftur grípur systir hans fram í. „… drullusvað sem fegurðar- samkeppnir eru…“ Vendipunkturis Árni nær síðan orðinu aftur: „Affallsrör tískuiðnaðarins, ímynd- aða.“ Og Hrönn heldur áfram hlæj- andi: „…þessi rotþró meðalmennsk- unnar.“ „En nei, nei, en ég held að þarna haf i orðið pínu vendi- punktur í þessum fegurðar- samkeppnisheimi,“ heldur Árni áfram. Hann bætir síðan við að hann ætli ekki að eigna myndinni sérstak- lega heiðurinn af því að það tók að fjara undan keppnum af þessu tagi og systkinin benda á að ákvörðunin um að uppfæra Ungfrú Ísland með því að bæta .is aftan við hafi verið til marks um að þetta væri komið í einhvers konar hallærislegt þrot. „Já, og síðan bara vitum við hvernig er komið fyrir svona keppnum í dag. Þær eru svona frekar komnar út á jaðarinn. Stækur tíðarandi í skóm drekans Bæjarlind 4 / Sími: 510 7900 / www.fastlind.is Allar upplýsingar veitir NÝTT! 2-4 HERBERGJA ÍBÚÐIR TIL SÖLU Í 210 GARÐABÆ KINNARGATA 43-45 15 íbúða fjölbýlishús Útsýni 2-4 herbergja íbúðir Upphituð bílageymsla Ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgir Eignirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum Afhending í október 2022 OPIÐ HÚS Laugardag og sunnudag 24. og 25. sept. kl. 13 - 16 Auður Löggiltur fasteignasali 848 2666 audur@fastlind.is Hrönn og Árni bróðir hennar náðu að fanga sérkennilegan tíðarandann fyrir tuttugu árum í Í skóm drekans og opna nú það tímahylki. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Nema náttúrlega í Suðurríkjunum og Suð-austur-Asíu,“ segir Árni. Efasemdir um úthald Þegar Árni er spurður hvort hann hafi strax í upphafi kveikt á því að hugmynd systur hans um að skrá sig til keppni í Ungfrú Ísland.is væri góð hugmynd að heimildarmynd verður Hrönn fyrri til svars. „Nei. Honum fannst þetta ekkert góð hugmynd, sko.“ Og Árni kemur sjálfum sér til varnar með því að benda á að hann hafi bara séð fyrir sér alla þá hluti sem gætu farið úrskeiðis. „Og svo var það aðallega að ég hafði ekki trú á að þú og við og allir einhvern veginn myndum hafa úthald í þetta.“ Endist og eldist vel Hugmyndin reyndist síðan bara ansi góð og þrátt fyrir ýmsar hindr- anir, blóð svita og tár, varð til heim- ildarmynd sem gerði það gott á sínum tíma, var sýnd víða um heim og hlaut Edduverðlaunin sem besta myndin í sínum flokki 2002. „Við eigum svo fáar myndir sem fanga svona tíðarandann,“ segir Hrönn, þegar hún bendir á þann virðisauka sem myndin hefur fengið á síðustu tveimur áratug- um. „Þetta er alveg því- líkt svona skemmtileg stúdía á samfélagið og tíðarandann og íslenskt líf þarna um aldamótin. Bara þess vegna finnst mér að allir, ungir sem aldnir, þurfi að drífa sig á þessa mynd. Hún hefur ekki sést í tuttugu ár og þetta verður bara eins og að opna eitthvert illa lyktandi tímahylki af Nokia-símum og öllu sem við vorum að gera þá.“ n 50 Lífið 24. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 24. september 2022 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.