Fréttablaðið - 08.10.2022, Page 36
Gúllassúpa er vinsæll réttur
þegar kólnar í veðri enda
yljar súpan og er matarmikil.
Gúllassúpa kemur uppruna-
lega frá Ungverjalandi en
hún er engu að síður í fimmta
sæti yfir vinsælustu kjötrétti
í Bandaríkjunum. Þannig
hefur þessi ævaforni réttur
farið sigurför um heiminn.
elin@frettabladid.is
Gúllassúpa líkist pottrétti þótt hún
teljist vera súpa. Hana er einfalt að
laga og lítið að þrífa á eftir þar sem
allt fer í einn pott. Nautakjöt er
notað í réttinn, kartöflur og mikil
paprika. Það er reyndar paprikan
sem gerir þennan rétt einstakan,
að því er Ungverjar segja. Nota má
hvaða grænmeti sem er í gúllas-
súpu og hún verður bara betri við
það. Ef maður vill hafa hana sér-
staklega sparilega er sett rauðvín
saman við, tómatpúrra og beikon.
Það er þó ekki nauðsynlegt.
Gúllassúpa
fyrir 8–10
2 kg nautakjöt, gúllaskjöt eða
annað eftir smekk
3 msk. hveiti
3 msk. paprikuduft
1 msk. reykt paprikuduft
1 msk. gott salt
½ tsk. pipar
Grænmetisolía til steikingar
2 gulrætur, skornar í smáa bita
2 sellerístangir, skorið smátt
1 laukur, skorinn smátt
4 hvítlauksrif, pressuð
100 g chorizo-pylsa ef fólk vill
1½ lítri kjötsoð
1 dós hakkaðir tómatar
2 lárviðarlauf
1 kg skarlotlaukur, skorinn niður
7-8 gulrætur í stórum bitum
1 kg litlar kartöflur, afhýddar
4 paprikur, skornar í grófa bita
Balsamsíróp
Notið milt paprikuduft ef notuð er
reykt paprika líka. Skipta má cho-
rizo út fyrir beikon.
Nota þarf stóran pott fyrir þessa
uppskrift.
Skerið kjötið í 2-3 cm bita. Veltið
þeim upp úr hveiti, papriku, salti
og pipar. Brúnið því næst kjötið og
leggið síðan til hliðar. Setjið aðeins
meiri olíu í pottinn og steikið
gulrætur, sellerí, lauk, hvítlauk og
chorizo. Steikið í um það bil 10
mínútur. Þá er kjötið sett í pottinn
aftur ásamt tómötum, lárviðar-
laufum, kjötkrafti og niðurskorn-
um skallotlauk. Látið þetta malla í
klukkustund.
Næst er gulrótum, kartöflum og
papriku bætt út í súpuna og aftur
er súpan látin sjóða hægt í klukku-
stund. Bragðbætið með balsamsír-
ópi, salti og pipar. Dreifið smávegis
steinselju yfir að lokum og berið
súpuna fram með sýrðum rjóma ef
einhver óskar eftir því.
Focaccia-brauð
Gott er að hafa nýbakað brauð
með súpunni. Til dæmis er hið
Fáðu hlýju í kroppinn
með gúllassúpu
Gúllassúpu er einfalt að gera og nota má hvaða grænmeti sem til er í ísskápnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Volgt focaccia-
brauð með
smjöri er ljúf-
fengt meðlæti
með súpu.
ítalska focaccia-brauð mjög gott og
einfalt að útbúa.
500 g hveiti
1 pakki þurrger
1 tsk. hunang
½ tsk. salt
4 dl vatn
Setjið gerið í 1 dl af volgu vatni
með hunangi og leysið upp með
því að hræra aðeins.
Setjið því næst hveiti í hræri-
vélarskál ásamt geri og salti. Byrjið
að hnoða og bætið vatni saman
við. Hnoðið í 10-15 mínútur.
Eftir það er deigið aðeins
hnoðað í höndunum og látið
hefast í eina og hálfa klukkustund.
Síðan er deigið flatt út þannig að
það passi á bökunarplötu, fingrum
potað í deigið og ólífuolíu dreift
yfir ásamt rósmaríni eða öðrum
kryddjurtum eftir smekk. Látið
hvíla aftur í hálftíma. Rífið þá
mikið af parmesan-osti yfir. Það
er líka gott að setja pressaðan hvít-
lauk á deigið. Loks er salti dreift
yfir.
Hitið ofninn í 200°C.
Bakið brauðið í 20–30 mínútur.
Dreifið ólífuolíu yfir þegar það
kemur úr ofninum og aðeins meira
af parmesan-osti. n
Bætiefnið Comfort-U frá
Good Routine er öflug vörn
fyrir þvagfærakerfið og
byggir á fjórum virkum inni-
haldsefnum sem hafa þekkta
eiginleika til þess að koma í
veg fyrir blöðrubólgu/þvag-
færasýkingu.
„Comfort-U er sérhannað fyrir fólk
sem vill koma í veg fyrir blöðru-
bólgu/þvagfærasýkingu, sem er
ein algengasta bakteríusýkingin
og algengari hjá konum en körlum.
En ein af hverjum fimm konum
upplifir að minnsta kosti eina þvag-
færasýkingu á ævinni,“ segir Freydís
Hjálmarsdóttir, næringarfræðingur
að mennt, með BSc, og meistara-
gráðu í næringarfræði.
„Einstaklingur sem hefur fengið
þvagfærasýkingu er í aukinni
hættu á að fá sýkingu aftur og talið
er að um fjórðungur fái endur-
tekna sýkingu innan sex mánaða
og þriðjungur innan árs. Þar af
leita hundruð sýklalyfjameðferðar
við þvagfærasýkingum á Íslandi
á hverju ári. Yfir 80% þvagfæra-
sýkinga eru taldar vera af völdum
þarmabakteríunnar e.coli, en aðrar
bakteríur, sveppir og sníkjudýr geta
líka valdið þvagfærasýkingum.“
Fyrirbyggjandi er lykilatriði
Þvagfærasýkingar geta verið afar
óþægilegar en eru þó oftast skað-
lausar að sögn Freydísar. „Einstaka
sinnum nær sýkingin til efri þvag-
færa eins og nýrna, en það er afar
óalgengt. Til að mynda verða 30%
þvagfærasýkinga einkennalausar á
innan við viku án meðferðar. Hins
vegar getur verið erfitt að eiga við
síendurteknar sýkingar. Þótt þær
séu meðhöndlaðar á áhrifaríkan
hátt með sýklalyfjum, getur óhófleg
notkun sýklalyfja leitt til skaðlegra,
heilsufarslegra afleiðinga.
Til að forðast of mikla útsetningu
fyrir sýklalyfjum leita margir til
fæðubótarefna og náttúrulyfja.
Rannsóknir þar að lútandi eru af
skornum skammti og sumar mis-
vísandi, en nokkur fæðubótarefni
gefa góða raun þegar kemur að
því að koma í veg fyrir þvagfæra-
sýkingu.“
Fjögur virk efni
Comfort-U inniheldur fjögur efni
sem rannsóknir hafa sýnt fram
á að geti hjálpað til við að fyrir-
byggja þvagfærasýkingar. Það eru
einsykran D-mannóse, þarma-
gerillinn Lactobacillus rueteri og
svo virku efnin í trönuberjum og
sortulyngslaufum (e. bearberry
leaf). „Trönuberin eru frægust, en
eitt virku efnanna í þeim er ein-
mitt „D-mannóse“. Sortulyngslauf
þekkja flestir undir nafninu uva
ursi og „Lactobacillus rueteri“ er
einn af góðgerlunum sem finna má
til dæmis í AB-mjólk.
Af þessum fjórum efnum hefur
D-mannóse komið hvað best út úr
þeim rannsóknum sem hafa verið
gerðar með tilliti til forvarnar á
þvagfærasýkingum. Rannsóknir á
D-mannóse sýna fram á marktæka
minnkun á endurteknum þvag-
færasýkingum hjá þeim sem fá þær
reglulega. Til þess að sýking nái
fótfestu í þvagfærum þarf e.coli eða
önnur örvera að ná að festast við
blöðruvegginn. Virkni D-mannóse
er sú að bindast til dæmis e.coli
bakteríum, skola þeim út með þvagi
og koma þannig í veg fyrir sýkingu.
Trönuber innihalda meðal
annars D-mannóse, hippúrsýru og
anthósýanín, sem eru talin torvelda
e.coli að festast við þvagblöðru-
vegginn. Ekki eru allir á eitt sáttir,
en samantekt margra rannsókna
sýnir fram á verndandi áhrif D-
mannóse gegn þvagfærasýkingum
hjá konum sem fá þær reglulega.
Ekki skemmir fyrir að trönuber
hafa líka marga aðra heilsubætandi
kosti.
Lauf sortulyngs, (önnur nöfn:
uva ursi, bjarnaber, fjalla-trönuber)
hafa í árþúsund verið notuð til að
meðhöndla þvagfærasýkingar. Nú
benda rannsóknir til þess að það sé
svo sannarlega eitthvað til í því og
kallað hefur verið eftir fleiri rann-
sóknum. Sortulyngið inniheldur
örverueyðandi efnasambönd
sem vinna gegn óvingjarnlegum
bakteríum og hjálpa við upptöku
á efnum úr trönuberjum. Efna-
sambönd í laufunum, svo sem
Arbutinin, eru talin vinna gegn
útbreiðslu e.coli meðal annars og
trufla viðloðun bakteríunnar við
blöðruvegginn,“ segir Freydís.
Hjálplegar örverur
Jafnvægi í þvagkerfisflórunni er
svo viðhaldið með hjálp gagn-
legu bakteríunnar Lactobacillus
rueteri. „Hjálplegu örverurnar í
líkamanum kallast góðgerlar og er
fjöldinn allur af þeim í meltingar-
kerfinu. Við getum bætt um betur
með trefjaríku fæði, ab-mjólk og
skyldum vörum, súrsuðum mat og
bætiefnum.
Sumir góðgerlar viðhalda
jafnvægi í þvagi, leggöngum og
meltingarvegi með því að fram-
leiða efnasambönd sem leyfa ekki
óvinveittum bakteríum að vaxa. Sá
stofn sem er talinn hvað mikilvæg-
astur fyrir þvagfærakerfið er Lac-
tobacillus rueteri. Þessi bakteríu-
stofn getur endurheimt náttúrulegt
örverujafnvægi í þvagfærum og
getur myndað efnasambönd sem
leyfa ekki óvinveittum bakteríum
að vaxa og dafna.“
Fjölþætt fyrirbyggjandi virkni
Í Comfort-U koma saman þrjú virk
innihaldsefni sem eru studd af
rannsóknum, ásamt Lactobacillus
rueteri stofni. Saman eru þessi efni
talin geta stutt heilbrigði þvag-
færa og veitt fjölþætta vörn gegn
þvagfærasýkingum. „Til eru margir
mismunandi stofnar góðgerla og
fjöldi þeirra í hverjum skammti
er merktur með einingunni CFU
sem stendur fyrir „colony formin
unit“, eða nýlendumyndandi
stofn. Í Comfort-U er réttur stofn í
nægilegu magni til að hafa tilskilin
áhrif án þess að valda skaða, enda
er þetta verðlaunuð formúla. Com-
fort-U er náttúrulegt bætiefni sem
kemur í pillu- og belgjaformi.
Forvörn er alltaf best og Com-
fort-U hefur það fram yfir sýklalyf
að vera laust við aukaverkanir
eins og ógleði og magaeinkenni.
Comfort-U skaðar ekki vinveittu
þarmaflóruna sem er einn helsti
ókostur sýklalyfja. Hins vegar er
sýklalyfja alltaf þörf ef sýking er
staðfest í efri hluta þvagfæra eins og
nýrum og ávallt skal fylgja læknis-
ráði. Þegar stór hluti kvenna er með
endurteknar þvagfærasýkingar,
fögnum við því þegar vara á borð
við Comfort-U kemur á markað.“ n
Good Routine fæst í Lyf og heilsu,
Apótekaranum, Hagkaup og
Krónunni.
Fjölþætt og fyrirbyggjandi vörn gegn þvagfærasýkingum
Freydís fagnar því að vara eins og
Comfort-U sé komin á markað fyrir
íslenskar konur. MYndIR/AÐsEndAR
Comfort-U inni-
heldur fjögur
efni sem rann-
sóknir hafa sýnt
fram á að geti
hjálpað til við
að fyrirbyggja
hinar hvimleiðu
þvagfærasýk-
ingar.
4 kynningarblað A L LT 8. október 2022 LAUGARDAGUR