Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Blaðsíða 42
40
86.
\ STRÍÐSÁRUNUM fluttist mjög lítið af ávöxt-
um til landsins,. og var ætlazt til, að það litla, sem
var, gengi til sjúklinga gegn ávísunum lækna.
Kona ein, sem hafði Katrínu Thoroddsen að
heimilislækni, hringdi eitt sinn til hennar og bað hana
að koma til sín í sjúkravitjun.
Konan átti heima inni í Kleppsholti.
Þegar Katrín kom þangað, var ekkert að, og erind-
ið ekki annað en að fá recept upp á appelsínur.
Katrín varð f júkandi vond, settist niður og skrifaði
á recept-blað, að hún segði þennan sjúkling af hönd-
um sér í sjúkrasamlaginu, fleygði þessum miða í
konuna og rauk út.
En kella labbaði sig með blaðið niður í Grænmetis-
sölu og fékk appelsínur út á plaggið.
Það gat nefnilega enginn lesið skriftina.
87.
pÁLMI ÓLAFSSON heitir maður. Hann var um
skeið kyndari á togara hjá Þórarni Olgeirssyni,
sem þá var skipstjóri.
Einu sinni var það, að Pálmi kom upp úr kyndi-
rúminu. Hann hafði svitnað mikið, og sá ekki í
hann fyrir kolaryki og salla.
Þegar skipstjóri kom auga á hann, varð honum
að orði:
j