Fréttablaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 22
Hjónarúm Hennýjar Drafnar Davíðsdóttur er 2,7 metrar á breidd. Það fer því mjög vel um fjölskylduna yfir blánótt- ina þegar börnin kíkja yfir. starri@frettabladid.is Það fer heldur betur vel um Henný Dröfn Davíðsdóttur og fjölskyldu hennar í stóra hjónarúminu sem er staðsett í herbergi þeirra hjóna í fallegu steinhúsi í Vestmanna- eyjum. Hjónarúmið er nefni- lega óvenju stórt, eða 2,7 metrar á breidd, og því nóg pláss fyrir hjónin og börnin þeirra tvö þegar þau kíkja í heimsókn yfir blánótt- ina. Henný segir hugmyndina hafa kviknað eftir að börnin þeirra hófu að venja komur sínar til þeirra reglulega um nætur. „Þá var plássið orðið frekar lítið fyrir okkur öll þegar við lágum fjögur saman í rúminu. Í stað þess að banna þeim að koma upp í vildum við frekar stækka rúmið svo þau gætu haldið áfram að koma yfir til okkar um næturnar. Okkur þykir nefnilega voðalega gott að hafa þau uppi í með okkur en viljum auðvitað á sama tíma að allir sofi vel og það sé gott pláss fyrir okkur öll.“ Með heimasmíðaðan rúmgafl Þau keyptu því þrjá 90 cm botna sem voru settir saman og eina 180 cm dýnu og aðra 90 cm dýnu. „Við vildum hafa þann möguleika seinna meir að geta tekið 90 cm dýnuna í burtu ef við skyldum vilja minnka rúmið.“ Næst létu þau sauma 270 cm yfirdýnu til þess að festa allar einingarnar betur saman auk þess þau létu sérsauma lak sem er einn- ig 270 cm. „Það var auðvitað ansi erfitt að fá svona stóran rúmgafl en okkur fannst samt nauðsyn- legt að hafa hann með. Maðurinn minn bjó því til rúmgafl úr rimla- klæðningu þannig að hægt var að setja innstungur í hann og hengja náttborðsljósin á rimlana.“ Henný segir stærsta kostinn við svo stórt rúm vera að þar sofi allir fjölskyldumeðlimir vel, þrátt fyrir að þau séu fjögur þar. „Það má segja að þetta séu mikilvægar gæðastundir fyrir okkur öll því við elskum öll að kúra svona saman.“ Taka því rólega í vetur Hjónin eru mjög framkvæmdaglöð að hennar sögn. „Við tókum fyrsta heimilið okkar algjörlega í gegn. Þar breyttum við skipulagi íbúðar- innar, opnuðum milli rýma, rifum allt af gólfi, veggjum og lofti og klæddum upp á nýtt. Núna erum við að klára aðra eins framkvæmd á núverandi heimili okkar.“ Hún segir þau þó ætla að taka því rólega í vetur. „Við erum alveg til í smá slökun og rólegheit þar sem við erum að flytja heim eftir að hafa búið hjá foreldrum mínum í næstum átta mánuði á meðan við tókum allt húsið okkar í gegn.“ Meðal helstu framkvæmda í nýja húsinu má nefna breytt skipulag á húsinu þar sem eldhúsið var fært til og stækkað og baðher- bergið var fært á aðra hæð. Einnig settu þau gólfhita í íbúðina og nýtt gólfefni nánast alls staðar. „Svo klæddum við loft og veggi ásamt alls kyns öðru sem fylgir þegar maður byrjar á svona framkvæmd- um. Verkefnalistinn er fljótur að stækka við svona framkvæmdir.“ n Mikilvægar gæðastundir með fjölskyldunni Henný Dröfn Davíðsdóttir. Rúmgaflinn er úr rimlaklæðn- ingu. Þannig var hægt að setja innstungur í hann og hengja náttborðsljósin á rimlana. Það er auðvelt að koma fjölskyldunni fyrir í rúmi sem er 2,7 metrar á breidd. MYNDIR/AÐSENDAR Rúmið samanstendur af 180 cm og 90 dýnum og þremur 90 cm botnum. Okkur þykir nefni- lega voðalega gott að hafa þau uppi í með okkur en viljum auð- vitað á sama tíma að allir sofi vel og það sé gott pláss fyrir okkur öll. Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Betri svefn Melissa Dream er hannað til að stuðla að djúpri slökun og værum svefni. Þessi blanda inniheldur ekki efni sem hafa sljóvgandi áhrif. Þvílíkur munur! „Ég bæði sef fastar og sofna fyrr. Ég ligg ekki andvaka á koddanum og vakna endurnærð og úthvíld. Ég sef alla nóttina og er ekki sífellt að vakna upp eins og áður. Ég mæli hiklaust með Melissa Dream fyrir alla“ Elsa M. Víðis. Valið besta bætiefni við streitu hjá National Nutrition í Kanada 8 kynningarblað A L LT 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGURGÓÐUR SVEFN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.