Fréttablaðið - 11.10.2022, Page 40
www.sleeprevolution.eu
Hrýtur þú kannski?
Viltu taka þátt í Svefnbyltingunni?
Leitað er eftir einstaklingum á aldrinum 18-40 ára
til að taka þátt í vísindarannsókn á sviði svefnrannsókna.
Skannaðu QR kóðan hér fyrir neðan til að skrá þig!
Nú er hafinn nýr hluti rann
sókna hjá Svefnbyltingu.
Um er að ræða stóra lífstíls
rannsókn sem stór hópur
nemenda, kennara, rannsak
enda og starfsfólks Háskól
ans í Reykjavík kemur að
og vinnur innan hins stóra
svefnrannsóknarverkefnis
sem Svefnbyltingin er.
Markmið lífsrannsóknarinnar
sem er í gangi núna er að skoða
hvaða áhrif breyttur lífsstíll hefur
á hrotur og kæfisvefn. „Með þess-
ari rannsókn vonumst við til þess
að finna nýja nálgun til að með-
höndla hrotur og vægan kæfisvefn
með breytingum á lífsstíl,“ segir
Erna Sif Arnardóttir, lektor og leið-
togi verkefnisins.
„Þau sem hafa gert svefnrann-
sóknir að sínu lífsviðurværi, eins
og mörg þeirra sem eru með okkur
í þessu verkefni, vita að svefn-
vandamál geta verið f lókin og oft
erfið úrlausnar. Þess vegna er þessi
rannsókn sett af stað,“ segir hún.
Hver geta tekið þátt?
„Við leitum að fólki á aldrinum 18
til 40 ára. Helst fólki sem hreyfir
sig ekki reglulega og hefur sterkan
grun um að það hrjóti. Öll sem
telja að þetta eigi við sig, endilega
skrái sig og haft verður samband
við þau sem passa inn í þann
hóp sem rannsakendur leita að,“
segir Anna Sigríður Íslind, dósent
í tölvunarfræði og sú sem leiðir
stafrænu byltinguna í svefninum.
Einstaklingar sem eru valdir
til þátttöku fá snjallúr, fylla út
svefndagbók og gera verkefni
sem reyna á vitræna getu, eins og
minni og viðbragðshraða í snjall-
forriti.Einnig heimsækja þátt-
takendur Svefnbyltingarteymið
nokkrum sinnum í Háskólanum
í Reykjavík á tímabilinu. Þegar
rannsókn lýkur fá þátttakendur
niðurstöður úr svefnmælingum
sínum, öllum öðrum mælingum
og ráðleggingar ef þurfa þykir.
Skráning er í gegnum vef-
síðu Svefnseturs Háskólans í
Reykjavík, https://svefnsetrid.
ru.is/2022/06/20/lifstilsrann-
sokn/.
Bylting fyrir okkur öll
Svefn hefur verið áberandi í sam-
félagsumræðunni síðustu ár og
fengið síaukna athygli heilbrigðis-
kerfisins. „Íþróttafólk er til dæmis
að skoða svefninn nánar í auknum
mæli, vinnustaðir eru sumir farnir
að huga að áhrifum vaktavinnu
á svefn starfsfólks og svo eru for-
eldrar sem eiga börn sem sofa illa
og lítið að kynna sér málið.
Því er gaman að geta boðið fólki
að taka þátt í þessari rannsókn.
Markmiðið er að skoða áhrif lífs-
stíls á svefn, en það vantar enn tölu-
vert af vísindalegum rannsóknum
á þessu sviði, svo við getum vitað
nákvæmlega hvað hefur áhrif á
gæði svefns og hvað ekki.“
Greining í eigin rúmi
Svefnbylting er margþætt og marg-
laga verkefni með það markmið
að bæta greiningu og meðferð á
kæfisvefni. „Vissulega þarf að rann-
saka mörg önnur svið svefns en
hópurinn á bak við rannsóknina
vildi bæta greiningar á kæfi svefni
og færa tæknina nær kröfum
nútímans. Eitt af því er að fólk þurfi
ekki að leggjast inn á sjúkrahús til
greiningar, heldur geti það fengið
mælitækin heim og sett á sig sjálft.
Tilgangurinn er að minnka kostnað
og álag á heilbrigðiskerfið og jafn-
framt að bæta ferlið fyrir þau sem
þurfa greiningu. Því hver kannast
ekki við að sofa illa fyrstu nóttina í
nýju umhverfi?
Í stað þess að mæla einungis eina
nótt, er fylgst með svefni fólks með
langtímamælingum í snjallforriti
og snjallúri, þar sem fólk skráir
og mælir svefn daglega á meðan
á rannsókn stendur. Því vinna
verkfræðingar, tölvunarfræðingar,
sálfræðingar, íþróttafræðingar og
fleiri þessar rannsóknir í samstarfi
við sérfræðinga úr svefnheim-
inum,“ segir Anna Sigríður.
Þekking sem lifir áfram
Svefnbyltingarverkefnið er
umfangsmikið og niðurstöður úr
rannsókninni sem er að hefjast,
koma um hálfu ári eftir að rann-
sóknin hefst, þegar búið er að vinna
úr gögnunum sem safnast. „Nú
vantar okkur bara fólk til að taka
þátt,“ segir Erna.
Þegar verkefninu lýkur mun
þekkingin lifa áfram og vonin er
að við höldum áfram að rannsaka
og auka við þekkingu í kringum
svefn, bæði hér á landi og fyrir fólk
um alla Evrópu. Það er margt enn
órannsakað í svefnheiminum og
það er ekki seinna vænna en að
taka næsta skref,“ segir Erna Sif. n
Nýr kafli hafinn í Svefnbyltingunni
Á myndinni eru frá vinstri: Dimitri Ferretti, Birta Sóley Árnadóttir og Emil
Harðarson sem öll vinna að rannsókninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Tilgangur rannsóknarinnar er að
skoða áhrif lífsstílsbreytinga hjá 18-
40 ára á hrotur og vægan kæfisvefn.
Þátttakendur
fá snjallforrit
og snjallúr sem
mælir svefn-
gæði.
18 kynningarblað A L LT 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGURGÓÐUR SVEFN