Fréttablaðið

Ulloq

Fréttablaðið - 11.10.2022, Qupperneq 49

Fréttablaðið - 11.10.2022, Qupperneq 49
Bók um þetta mál hefði auðveldlega getað orðið þurr og leiðinleg en hér er á ferðinni bók sem mann langar til að klára að lesa. Kveikja er röð hug- vekja lista og fræða um eld, innblástur, skrif, skáldskap, hugsun, skynjun og sköpun. BÆKUR Stund milli stríða. Saga landhelgismálsins, 1961-1971 Höfundur: Guðni Th. Jóhannesson Útgefandi: Sögufélag Fjöldi síðna: 518 Elín Hirst Nú seinni árin hafa landsmenn fyrst og fremst haft kynni af Guðna Th. Jóhannessyni sem forseta Íslands, en ekki má gleyma því að Guðni er einnig okkar fremsti fræðimaður á sviði sagnfræðinnar. Yfirleitt hefur verið talað um að áratugurinn frá árinu 1961-1971 hafi verið fremur kyrrlátur tími í landhelgismálum því að þá geisuðu ekki svokölluð þorskastríð. En rann- sóknir Guðna leiða í ljós að oft gekk mikið á, á hinum svokölluðu milli- stríðsárum. Höfundur þekkir hið f lókna sögusvið landhelgismálsins greini- lega mjög vel og hefur kafað djúpt í hlutina og lesandinn nýtur þess. Landhelgismálið var stórpólitískt mál hér innanlands og teygði einnig anga sína inn á svið alþjóðastjórn- málanna. Í gegnum alla bókina tekst Guðna að varpa nýju og áhugaverðu ljósi á það sem gerðist á þessu tíu ára tímabili í landhelgismálum, ekki síst bak við tjöldin. Símar hleraðir Símar voru til dæmis hleraðir vegna landhelgismálsins, þar á meðal hjá fjórum alþingismönnum árið 1961, á sama tíma og þingið fjallaði um landhelgissamninginn við Breta. Þetta hafi hins vegar orkað tvímælis, segir sagnfræðingurinn Guðni, og nálgist jafnvel pólitískar njósnir. Lög landsins heimiluðu ekki for- virkar aðgerðir af þessu tagi, nema að öryggi ríkisins krefðist þess eða um rannsókn mikilsverðs sakamáls væri að ræða, og engar vísbendingar voru um að þessir þingmenn ógnuðu öryggi ríkisins eða ætluðu sér að raska vinnufriði Alþingi. Hleranirnar fóru fram í gömlu lögreglustöðinni við Pósthússtræti í strangleynilegri öryggisþjónustu- deild embættisins, þar sem líklega aðeins þrír menn höfðu lyklavöld. Ekki var stuðst við segulbönd heldur var skrifað upp það sem mönnum fór á milli í símtölum. Þjóðviljinn og Alþýðusambandið og fleiri aðilar sem töldust til vinstri vængs stjórn- málanna máttu einnig sæta hler- unum. Bókin ekki helgisaga Árið 1971 varð landhelgismálið meðal annars til þess að Sjálfstæðis- flokkurinn tapaði alþingiskosning- um vegna þess að kjósendur vildu sjá eindregnari afstöðu flokksins í landhelgismálinu, að áliti Guðna. Ólafur Jóhannesson, formaður Framsóknarf lokksins, myndaði ríkisstjórn með Alþýðubanda- lagi og Samtökum frjálslyndra og vinstri manna, en höfuðatriði mál- efnasamnings nýju ríkisstjórnar- innar var að færa landhelgina út í 50 mílur. Áhugavert er að lesa tilvitnun Guðna í dagbók Kristjáns Eldjárns, fyrirrennara hans á forsetastóli, frá þessum tíma þar sem fram kemur að forsetinn var fremur pirraður yfir því hversu of boðslega Fram- sóknarflokknum lá á að fá stjórnar- myndunarumboðið. Það er skemmst frá því að segja að forsetinn og fræðimaðurinn sýnir mikla meistaratakta í þessari bók. Hún er vel skrifuð og komið hreint til dyranna. Höfundur upplýsir lesandann til dæmis um það strax í upphafi að bókin sé ekki helgisaga þar sem gerðar séu miklar hetjur úr okkur Íslendingum í baráttunni við vonda útlendinga. Og fyrir vikið verður bókin svo miklu betri lesning. Hálfgerð spennusaga Bók um þetta mál hefði auðveldlega getað orðið þurr og leiðinleg en hér er á ferðinni bók sem mann langar til að klára að lesa: eiginlega á köfl- um hálfgerð spennusaga, auk þess að vera vandað sagnfræðirit. Bókin er hins vegar rúmlega 500 síður svo það er ekki svo einfalt að ætla sér að lesa hana alla í einni lotu. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda sem eru mjög vel valdar og upplýsa lesandann eftir því sem sögunni vindur fram. Bókin er fallegur prentgripur og athygli vekur að hún er ekki með hefðbundinni bókar- kápu, en í stað kápu er upplýsinga- spjald utan á bókinni, en þar er að finna yfirlit yfir megindrætti bókar- innar. Mér finnst fara vel á þessu. Tvö atriði sem varða prentun og uppsetningu bókarinnar fóru svo- lítið fyrir brjóstið á mér. Það fyrra er að þar sem yfirskriftir með mynd- um komast ekki fyrir á myndasíð- unni sjálfri er þeim komið fyrir langsum á spássíu næstu síðu, sem mér finnst ekki fara vel og erfitt að lesa og setja í samhengi. Hitt atriðið er að prentunin á þessum kjörgrip er ekki alveg upp á tíu. Sums staðar eru orð slitin í sundur sem er ljóður á svona öndvegisriti. n NIÐURSTAÐA: Forsetinn og fræðimaðurinn sýnir mikla meistaratakta í bók sem er vel skrifuð og góð lesning. Forsetinn sýnir meistaratakta Guðni Th. Jóhannesson er ekki bara forseti Íslands heldur jafnframt einn fremsti fræðimaður Íslands á sviði sagnfræði. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR ÁRNASON tsh@frettabladid.is Ljóðskáldin Anton Helgi Jónsson, Hrafnhildur Hagalín Guðmunds- dóttir og Alda Björk Valdimars- dóttir koma fram á fyrstu Kveikju haustsins í Borgarbókasafninu Gerðubergi á miðvikudag kl. 20.00. Þar munu þau fjalla um innblástur, sköpunarferli og efnivið í nýlegum ljóðabókum sínum og lesa upp úr nýlegum bókum sínum. Kveikja er röð hugvekja lista og fræða um eld, innblástur, skrif, skáldskap, hugsun, skynjun og sköpun. Kveikja þessara viðburða sprettur frá goðsögninni um Prómeþeif sem færði fórn þegar hann stal eldinum frá guðunum og gaf mannfólkinu að gjöf. Eftir það var hann fjötraður við klett og örn át úr honum lifrina dag hvern til að refsa honum en á hverri nóttu greri lifrin aftur. Umsjónarmaður hug- vekjanna er Soffía Bjarnadóttir. Hrafnhildur Hagalín Guðmunds- dóttir er leikskáld, þýðandi og dramatúrg og starfar sem listrænn ráðunautur í Þjóðleikhúsinu. Meðal leikrita hennar eru Ég er meistarinn og Hægan, Elektra og í ár sendi hún frá sér sína fyrstu ljóðabók, Skepna í eigin skinni. Alda Björk Valdimarsdóttir, er doktor í almennri bókmennta- fræði og dósent í faginu við Háskóla Íslands. Hún sendi frá sér ljóðabók- ina Við sem erum blind og nafnlaus árið 2015 og bókina Við lútum höfði fyrir því sem fellur 2022. Anton Helgi Jónsson hefur verið mikilvirkur á ritvellinum, sent frá sér ljóð, leikrit, skáldsögu og þýð- ingar. Tíunda ljóðabók hans, Þykj- ustuleikarnir, kom út fyrr á þessu ári og nýlega hlaut hann Ljóðaverð- laun Guðmundar Böðvarssonar. Viðburðurinn stendur yfir frá klukkan 20.00 til 21.15 í Borgar- bókasafninu Gerðubergi. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. n Þrjú ljóðskáld í Borgarbókasafni Hrafnhildur Hagalín, Anton Helgi og Alda Björk koma fram í Borgarbóka- safninu í Gerðubergi. MYND/AÐSEND tsh@frettabladid.is Barnabókahöfundurinn góðkunni Sigrún Eldjárn sendir í dag frá sér bókina Ófreskjan í mýrinni. Um er að ræða fjórðu bók Sigrúnar í ár en fyrr komu út bækurnar Umskipt- ingur og tvær nýjar bækur um Kugg. „Þetta er saga um krakka, þrí- bura sem heita Bella, Stella og Elli. Þau eru að flytja með pabba sínum í Mýrarsveit og setjast að í gömlu hrörlegu húsi. Rétt þar hjá er hrika- lega hættuleg mýri og í mýrinni er lítil og frekar krúttleg ófreskja.“ Að sögn Sigrúnar er um að ræða bæði nýjar persónur og nýtt sögu- svið sem hefur ekki komið fram áður í bókum hennar. „Það eru tvö hús sem standa í útjaðri mýrinnar, gráa húsið sem krakkarnir eru að flytja í með pabba sínum og svo er bláa húsið, þar býr hann Móses sem á þrjár mömmur.“ Spurð um hvort það sé hinsegin- þema í bókinni segist Sigrún ekkert fara nákvæmlega út í það í sögunni. „Þannig að fólk getur bara ímynd- að sér eða ákveðið það sjálft. Það eru þrjár konur sem búa saman og ég er ekkert að fara nákvæmlega út í þeirra samskipti,“ segir hún. Þrátt fyrir að titillinn Ófreskjan í mýrinni sé ógnvekjandi, segir Sig- rún bókina ekki vera hryllingssögu. „En þessi mýri hún er svolítið hræðileg, það er hægt að sökkva ofan í hana ef maður stígur á ranga staði. Af því að börn vilja mjög oft gera eitthvað sem þeim er bannað þá hefur verið gripið til þess ráðs að segja að það sé ófreskja í mýrinni sem muni taka þau ef þau fara út í hana. Foreldrarnir segja þetta við börnin en það sem foreldrarnir vita ekki er að það er í raun ófreskja í þessari mýri sem á svo eftir að verða vinur barnanna.“ Auk barnanna, sem eru aðalsögu- persónur Ófreskjunnar í mýrinni, koma einnig fyrir f leiri persónur í bókinni. „Þorfinnur furðudýrafræðingur, sem er að rannsaka þessa mýri og leita að furðudýrum, og svo gömul vinkona hans sem heitir Pandóra. Henni líst mjög illa á að það sé fólk að f lytja í þetta gráa hús því þar uppi á lofti er kassi sem má alls ekki opna,“ segir Sigrún. Að sögn Sigrúnar er Ófreskjan í mýrinni hugsuð fyrir börn á aldrin- um 6-12 ára en bókin henti þó öllum aldurshópum, líka fullorðnum. „Það er svo mikilvægt að til sé nóg af góðum og spennandi bókum fyrir krakka að lesa. Það er mikil gróska um þessar mundir í íslenskum barnabókum, margir góðir höf- undar og teiknarar,“ segir Sigrún og bætir því við að hún leggi sín lóð á vogarskálarnar enda búin að starfandi sem barnabókahöfundur í rúma fjóra áratugi. n Börn vilja oft gera eitthvað sem þeim er bannað Sigrún Eldjárn er einn ástsælasti barnabókahöfundur þjóðarinnar og hefur verið starfandi sem slíkur í rúma fjóra áratugi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Jesús sagði: biblian.is „Það er andinn sem lífgar, maðurinn án hans megnar ekkert. Orðin sem ég hef talað til yðar, þau eru andi og þau eru líf.“ Jóh. 6.63 ÞRIÐJUDAGUR 11. október 2022 Menning 19FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.