Skessuhorn


Skessuhorn - 10.08.2022, Síða 2

Skessuhorn - 10.08.2022, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 20222 Eftir miklar hræringar og góða skjálfta undanfarnar vikur hófst eldgos í Meradölum á Reykjanes- skaga um miðja síðustu viku. Fyr- ir gosin í Eyjafjallajökli, Grím- svötnum og Geldingadölum var gos yfirleitt mest notað yfir drykki eins og Mix, Egils appel- sín og Sprite. Ef horft er lengra aftur í tímann þá voru það Spur Cola, Miranda og 7 Up sem voru áberandi á gosdrykkjamarkaðn- um. Spurningin er hvenær gos- drykkjaframleiðendur taka upp á því að nefna ný gos á mark- aðnum eftir gosum nútímans en óhætt er að segja að nöfnin á þeim eru ekki beinlínis vænleg til vinsælda. Á fimmtudag er útlit fyrir suð- vestlæga eða breytilega átt, 3-10 m/s og skúrir en fer að rigna suð- vestan til um kvöldið. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast fyrir austan. Á föstu- dag má gera ráð fyrir vestlægri átt, 3-10 m/s og víða dálítil rign- ing eða skúrir, en yfirleitt þurrt austanlands. Hiti víða 9 til 14 stig. Á laugardag má búast við hægri vestlægri eða suðvestlægri átt og skýjað verður með köflum, en sums staðar væta við suður- og vesturströndina. Milt veður. Á sunnudag og mánudag er útlit fyrir hægan vind og vætu með köflum, en lengst af þurrt norð- austanlands. Áfram milt veður. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Hver af eftirtöldum tónlistarmönnum er mest í upp- áhaldi hjá þér?“ 31% sagði Bubbi Morthens, 17% sögðu Helgi Björns, 14% sögðu Sigga Bein- teins, 12% sögðu Björgvin Hall- dórsson, 10% sögðu Ragga Gísla, 10% sögðu Páll Óskar og 7% sögðu Björk. Í næstu viku er spurt: Hvaða áhrif mun eldgosið í Meradölum hafa á efnahag þjóðarinnar? Borgnesingurinn Birgir Þóris- son er hljómborðsleikari Stuðla- bandsins sem er að slá í gegn hér á klakanum og í Brasilíu um þessar mundir. Nánar má lesa um þessi ævintýri í blaðinu í dag. Birgir er Vestlendingur vikunnar í þetta skiptið. Í larí lei! Rannsaka mannabein SNÆF: Erlendur ferða- maður fann í síðustu viku mannabein á Snæfellsnesi. Beinið sem um ræðir er stakt kjálkabein og fannst á stað sem jarðvegur hafði nýlega verið fluttur á. Fornleifa- fræðingar, kennslanefnd og rannsóknardeild lögregl- unnar á Vesturlandi vinna að rannsókn málsins. Frétta- vefurinn ruv.is greindi fyrst frá. Til rannsóknar er með- al annars hvort jarðvegur- inn sem fluttur var þangað sem beinið fannst hafi verið nálægt þekktum grafreit, þá er verið að vinna að því að aldursgreina beinið og bera frekari kennsl á það eftir því sem hægt er. Ekki liggur fyr- ir hversu gamalt beinið er, en mögulega flokkast það til fornleifa. -mm Ekið inn í hrossahóp BORGARFJ: Lögreglan á Vesturlandi rannsakar nú atvik þar sem kona ók inn í hóp hrossa og fólks í Borg- arfirði. Atvikið átti sér stað um verslunarmannahelgina. Hrossin voru 40 talsins og reiðmenn töldu á annan tug. Konan er sögð hafa ekið inn í hópinn og legið á flautunni um leið með þeim afleiðing- um að stóðið fældist. Einn hestur varð fyrir bílnum og stúlka fékk hross yfir sig og meiddist lítilsháttar á fæti. Lögreglan var kölluð á vett- vang og rannsakar nú tildrög atviksins. -sþ Skemmdarverk í Slögu AKRANES: Mánudaginn eftir verslunarmannahelgi var tilkynnt um skemmdar- verk í Slögu sem er skóg- ræktarsvæði í hlíðum Akra- fjalls. Þar var búið að kveikja í dekkjum og skemma sal- erni og einnig skemma borð og bekki sem eru í skógrækt- inni. -vaks Margir að flýta sér VESTURLAND: Talvert var um hraðakstur í vikunni um og yfir verslunarmanna- helgina. Seinni part föstu- dags var ökumaður tekinn á 136 kílómetra hraða á móts við Hafursfell á Snæfellsnesi og fékk yfir hundrað þús- und krónur í sekt sem hann greiddi á staðnum en um var að ræða erlendan ferða- mann. Sama dag var ann- ar erlendur ferðamaður tek- inn á 127 kílómetra hraða á sama vegi en að sögn lög- reglu virðast þeir oft ekki átta sig á því hvað þeir eru að aka greitt miðað við aðstæð- ur og lög. Á sunnudeginum var síðan ökumaður tekinn á 142 kílómetra hraða á Vest- urlandsvegi rétt við Baulu í Stafholtstungum og á von á 150 þúsund króna sekt og þremur refsipunktum í öku- ferilsskrána. -vaks Spurning vikunnar Til minnis Vestlendingur vikunnar Veðurhorfur Á fundi byggðarráðs Borgarbyggð- ar 28. júlí síðastliðinn kom fram að Fasteignaþróunarfélagið Festir og JVST arkitektar hafa lýst yfir áhuga á því að leiða vinnu við heildar- skipulag í Brákarey í Borgarnesi í samstarfi við sveitarstjórn. Ráð- ið tók erindinu vel. Framhald mála verður með þeim hætti að sveitar- stjóri leggur fram drög að samn- ingi við þessa aðila með tilliti til umræðna á byggðarráðsfundin- um. Reiknað er með að þau liggi fyrir síðar í þessum mánuði. Af hálfu ráðsins er áhersla lögð á sam- ráð við íbúa og hagsmunaaðila og Úrslit í ljósmyndasamkeppni og skreytingakeppni Hvalfjarðardaga 2022 liggja nú fyrir. Þemað í ljós- myndakeppninni var „Mannlíf í Hvalfjarðarsveit.“ Fram kemur á vef Hvalfjarðarsveitar að menningar- og markaðsnefnd hafi verið sam- mála um að mynd sem Sunna Rós Svansdóttir tók af börnum að leik á góðum sumardegi á Þórisstöðum bæri af í ljósmyndasamkeppninni þar sem fanga átti mannlíf í sveitar- félaginu. Í skreytingakeppninni var þemað „Fuglahræður“ og valdi dómnefnd fuglahræðuna hjá Sólrúnu Jörgens- dóttur og Hreini Gunnarssyni sem vinningshafa. Dómnefnd skip- uð Guðfinnu Indriðadóttur, Baldri Ketilssyni og Ernu Elvarsdóttur skoðaði margar skemmtilegar fuglahræður og valið því erfitt. Að mati dómnefndar þótti fuglahræða Sólrúnar og Hreins bera af sem hræða sem stæði undir nafni og lík- leg til að hræða fugla og aðra óvið- komandi úr garði og túnum. Síðastliðinn fimmtudag afhentu Birkir Guðlaugsson formaður og Elín Ósk Gunnarsdóttir, varafor- maður menningar- og markaðs- nefndar Hvalfjarðarsveitar, verðlaun sem voru fyrir ljósmyndasamkeppn- ina máluð mynd á stein frá Josefinu Margaretu Morell og verðlaun fyrir skreytingakeppnina var gjafabréf á Grand Hótel Reykjavík, gisting og morgunverður fyrir tvo. vaks Festir mun leiða vinnu við skipulag í Brákarey væntingar eru til þess að í Brákar- ey verði blönduð byggð og starf- semi sem muni laða að sér mannlíf og auka lífsgæði íbúa. Festir er fasteignaþróunarfélag stofnað af Ólafi Ólafssyni og Ingi- björgu Kristjánsdóttur. Megin- markmið þess er að þróa fasteignir og lóðir, ýmist með sölu eða rekstur í huga. Félagið hefur m.a. haft með uppbyggingu á Héðinsreitnum við Granda í Reykjavík að gera og er það einnig unnið í samstarfi við JVST arkitekta. Hollensk-íslenska arkitektastof- an JVST í Rotterdam var stofn- uð árið 2012 undir heitinu Jvants- pijker. Í framhaldi af verkefnum hér á landi opnaði hún útibú á Íslandi fyrr á árinu og er Hildur Gunn- laugsdóttir arkitekt og umhverfis- fræðingur framkvæmdastjóri þess. Einnig starfar Orri Steinarsson arkitekt á stofunni, en hann hóf þar störf árið 2018 og sinnir verkefnum hér á landi og í Hollandi jöfnum höndum. JVST hefur vakið athygli fyrir verðlaunatillögur að skipulagi byggðar og á það einnig við hér á landi, s.s. fyrir Héðinsreit og Voga- byggð í Reykjavík. gj Frá Brákarey. Ljósm. gj Birkir afhenti Hreini og Sólrúnu gjafabréfið. Verðlaunamynd Sunnu Rósar Svansdóttur. Ljósm. af hvalfjarðarsveit.is Úrslit í samkeppni Hvalfjarðardaga kunngerð

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.