Skessuhorn - 10.08.2022, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2022 11
Ertu í 2005, 2006 eða 2007
árgangi á Akranesi og langar
að ferðast til útlanda?
Norræna félagið á Akranesi leitar eftir áhugasömum ungmennum á Akranesi til
þess að taka þátt á ungmennamóti sem fram fer í Västervik í Svíþjóð dagana 5.-9.
október 2022.
Norræna félagið á Akranesi og vinabæir Akraness halda slík ungmennamót annað
hvert ár til skiptis í bæjunum, að þessu sinni í Västervik í Svíþjóð. Vinabæirnir eru auk
Västervik, Närpes í Finnlandi, Bamble í Noregi og Langeskov í Danmörku.
Markmið Norræna félagsins er að efla norrænt samstarf á öllum sviðum samfélagsins,
efla frið Norðurlandaþjóðanna sín á milli og þeirra og annarra þjóða út á við. Norræna
félagið vinnur að markmiðum sínum með því að stuðla að samskiptum milli einstaklinga,
félagsdeilda og við systurfélög sín á Norðurlöndum.
Fjórum ungmennum á Akranesi sem fædd eru 2005, 2006 og 2007 býðst að fara til
Västervik í Svíþjóð á ungmennamót 5.-9. október 2022.
Þar verða einnig fjögur ungmenni frá hverjum vinabæ Akraness.
Þessa daga dvelja þau á heimilum jafnaldra sinna og taka þátt í skipulagðri dagskrá
heimamanna. Einnig kynna ungmennin sína heimabæi og skóla fyrir jafnöldrum sínum.
Þátttökugjald er kr. 15.000 sem er eini kostnaðurinn fyrir utan vasapeninga.
Uppihald og dagskrá er í boði heimamanna.
Ef þú hefur áhuga á að fara á ungmennamótið sækir þú um með því að skrifa bréf til
Norræna félagsins á Akranesi og sendir á netfangið: haholt3@simnet.is
Í bréfinu þarf að koma fram stutt kynning á þér og hvers vegna þú hefur áhuga á að taka
þátt í mótinu.
Umsóknarfrestur er til 22. ágúst 2022
Ef óskað er nánari upplýsinga má senda póst á haholt3@simnet.is.
Eins og margir íbúar Akraness hafa
eflaust tekið eftir, eða þá heyrt af,
hafa tvö stór vegglistaverk ver-
ið í vinnslu á síðustu vikum og eru
nú tilbúin. Annað þeirra er stað-
sett á suðurgafli Hafbjargarhússins
á Breiðinni og er verk eftir lista-
konuna Tinnu Royal sem sýn-
ir stórþorska sem synda í röðum
hver í sína áttina. Það var unnið af
ungu fólki úr vinnuskólanum und-
ir stjórn Jóns Sverrissonar garð-
yrkjustjóra. Hitt verkið er eft-
ir Arnór Kára, ungan listamann úr
Reykjavík, og er staðsett á norður-
gafli „Lesbókarinnar“ við Kirkju-
braut og sýnir tvo tignarlega fugla.
Ólafur Páll Gunnarsson var síð-
ustu fjögur ár formaður menn-
ingar- og safnanefndar Akraness
og því embætti fylgdi að fara fyrir
afmælisnefnd Akraneskaupstaðar.
Blaðamaður Skessuhorns heyrði í
Óla Palla og spurði hann um tilurð
þessa vegglistaverka. Hann segir að
þetta sé gert að tilhlutan nefndar
sem hefur með höndum ýmsa við-
burði og verkefni í tilefni af 80 ára
afmæli Akraneskaupstaðar 2022.
Stökk í málið
Hvernig kom þetta til? „Akranes-
kaupstaður fagnar 80 ára afmæli í
ár og menningar- og safnanefndin
sem ég var formaður í var beðin um
að taka að sér að koma með tillög-
ur og hugmyndir. Þetta er ein af
þeim hugmyndum sem komu upp á
afmælisnefndarfundi í janúar og þá
átti þetta reyndar að vera öðruvísi.
Ég var að vona að einhver listamað-
ur yrði til í að halda utan um þetta
en svo atvikaðist það bara þannig
að ég stökk í það mál því það fékkst
enginn í þetta. Þetta er búið að vera
mjög skemmtilegt ferli og gaman
að sjá hvernig þetta kemur út. Nú
eru tvö verk af sex tilbúin, þetta
er mjög skemmtilegt og fólk virð-
ist vera mjög ánægt með þetta. Það
er tilgangurinn með þessu, að gera
eitthvað skemmtilegt sem gleður
fólk,“ segir Óli Palli.
Þú talar um að þetta séu sex verk í
allt, eru komnar staðsetningar á hin
verkin fjögur? „Bjarni Þór listmál-
ari verður með eitt verk sem seg-
ir sögu Akraness, hálfgerða sögu-
stemningu sem verður á Lands-
bankahúsinu þar sem #takk veggur-
inn er og mun hann mála yfir það
verk. Á mjölgeymslu Brims niður
við höfn ætlar Baski að mála mynd
með bryggju- og bátastemningu og
Edda Karólína Ævarsdóttir, dótt-
ir Ævars Arnar Jósepssonar rit-
höfundar, og tvær vinkonur henn-
ar ætla að mála á gaflana á Íþrótta-
húsinu við Vesturgötu. Þá ætlar
Bjössi Lú sem gerði Bowie vegginn
að mála vegginn á Gamla Kaup-
félaginu sem snýr út að bílaplan-
inu og hugmyndin er að þar komi
einhvers konar tónlistarsaga Akra-
ness.“
Hvernig er svona fjármagnað?
Þessi verk eru í raun gjöf fyrirtækja
til Akurnesinga. Elkem Ísland ehf.
gefur fuglamyndina, Faxaflóahafnir
gefa Baskamyndina, Upprisa sem er
að byggja á Sementsreitnum gefur
myndirnar á íþróttahúsið, Norður-
ál gefur Bjössa Lú myndina, Bjarni
Þór gefur sína vinnu og Húsasmiðj-
an leggur málningu í öll verkin og
myndina hennar Tinnu á Haf-
bjargarhúsinu. Það sem fyrirtækin
leggja til eru laun listamannanna og
Húsasmiðjan leggur til efnið.“
Framhald af Bowie
veggnum
Óli Palli segir að hann reikni með
því að verkinu verði lokið í síðasta
lagi um miðjan september en það
fari eftir veðri og verkefnastöðu
listamannanna. En er eitthvert
þema í verkunum? „Listamennirnir
hafa fengið að ráða þessu að mestu
sjálfir. Ég sá mynd eftir Baska á
sýningu sem hann hélt í fyrra og ég
spurði hann hvort hann væri til í að
gera eitthvað svipað, og hann vann
út frá því í rauninni. Annars voru
þetta listamennirnir sem hafa kom-
ið með tillögur og þær hafa ver-
ið samþykktar eins og skot í öll-
um tilfellum. Það má kannski segja
að þetta sé svona smá framhald af
Bowie veggnum við Kirkjubraut
sem hefur vakið mikla athygli og
gert umhverfið skemmtilegra. Svo
er frumkvöðullinn að þessu öllu
saman hér á Akranesi snillingurinn
Dengsi í Ársól (Jón B. Jónsson) sem
málaði og skreytti allar myndirnar
á HB & Co húsunum fyrir mörg-
um áratugum. Maður tók þessu
sem sjálfsögðum hlut á sínum tíma,
þessar myndir voru bara þarna ein-
hvern veginn og manni fannst eins
og þetta hefði alltaf verið þarna,
en þetta er ótrúlega flott sem hann
gerði og lifir. Til dæmis myndin
með bátastemningunni á gaflinum
á HB húsinu ekki langt frá gamla
Hótelinu, og svo þessar fígúrur og
trémyndir sem eru á gamla frysti-
húsi HB & Co sem hann sagaði út
og málaði af stakri snilld, virkilega
flott.“
Verður að vera jafnvægi
Óli Palli segir að lokum að vonandi
sé þetta upphaf að einhverju meiru,
svona listaverk lífgi sannarlega upp
á bæinn. „Það verður að vera jafn-
vægi í þessu öllu saman en það er
samt alveg pláss fyrir fleiri myndir.
Þetta voru veggir sem kölluðu á að
eitthvað mætti fara á þá og það sem
er komið er virkilega glæsilegt. Og
það er ótrúlega gaman að sjá litlar
skemmtilegar hugmyndir verða að
veruleika og ná að gleðja mann og
annan, þá er gaman. Ég tek glaður
við hugmyndum af verkum, veggj-
um og í raun eru tvær nýjar hug-
myndir á teikniborðinu. Hvort þær
hugmyndir fæðast verður gaman að
sjá.“
vaks
Vegglistaverk vekja athygli á Akranesi
Hér ætlar Baski að mála sitt verk á
næstu vikum. Ljósm. aðsend
Óli Palli og hundurinn hans, hann Búi. Ljósm. vaks
Verk Tinnu Royal á Breiðinni.
Arnór Kári gerði fuglamyndina við Lesbókina.
Vegglistaverk eftir Dengsa.