Skessuhorn - 24.08.2022, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 34. tbl. 25. árg. 24. ágúst 2022 - kr. 950 í lausasölu
Ert þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
699 3444
molby@fastlind.is
Löggiltur fasteignasali
ÁRALÖNG ÞEKKING
OG REYNSLA AF
FASTEIGNAMARKAÐI
Á VESTURLANDI
BOGI MOLBY
Allir kaupendur og seljendur fá
Vildarkort Lindar
hjá fjölmörgum fyrirtækjum
sem veitir 30% afslátt
Guðrún Fjeldsted hefur rekið reiðskóla að Ölvaldsstöðum í Borgarfirði síðan 1972. Hún fór síðustu ferð sumarsins síðastliðinn laugardag en segist ekki viss hvort reið-
skólinn verði vakinn að nýju næsta sumar. Í tilefni dagsins bauð Guðrún völdum gestum og skyldfólki í reiðtúr og pylsupartý að honum loknum. Hún ríður hér forreið á
bökkum Hvítár með 25 reiðskólanemendur. Lokahnykkur eftir hálfrar aldar farsælt starf. Ljósm. sþ
Sveitarstjórn Dalabyggðar fund-
aði í síðustu viku og samþykkti m.a.
bókanir vegna vegamála. Þar segir
að Skógarstrandarvegur, vegur 54
í vegakerfi Íslands, gegni lykilhlut-
verki í því að tengja saman Dali
og Snæfellsnes. „Skógarstranda-
vegur er eini stofnvegur á Vestur-
landi sem er án bundins slitlags og
sá lengsti á láglendi landsins alls
sem er án bundins slitlags. Skógar-
strandarvegur, með þverun Álfta-
fjarðar, er forsenda fyrir auknu
samstarfi sveitarfélaga við Breiða-
fjörð og góðri tengingu Snæfells-
ness, Dala, Vestfjarða og Norður-
lands.“
Þá segir í bókun sveitarstjórnar
að nú sé uppi algerlega óásættan-
leg staða hvað þessa mikilvægu
vegtengingu varðar þegar eins-
taka ferðaþjónustufyrirtæki hafa
bannað sínum ökumönnum og
fararstjórum að aka þessa leið
sökum þess hvað vegurinn er í
slæmu ástandi. „Sveitarstjórn Dala-
byggðar skorar á stjórnvöld að líta
á þessa stöðu sem neyðarástand og
veita sérstöku fjármagni til þessa
vegar þannig að á næstu tveimur
árum verði lokið lagningu bundins
slitlags á veg 54.“
Þá skorar sveitarstjórn Dala-
byggðar á Vegagerðina að huga að
því að samhliða langþráðum endur-
bótum á veginum yfir Laxárdals-
heiði verði horft til þess að endur-
bæta og tvöfalda þær brýr sem á
leiðinni eru. „Það er ekki ásætt-
anlegt að áfram verði einbreiðar
brýr sem muna sinn fífil fegurri
með blikkandi ljósum eftir að þessi
mikil væga leið hefur verið endur-
bætt.“ mm
Skógarstrandarvegur er forsenda
samstarfs sveitarfélaga við Breiðafjörð
Þinn árangur
Arion