Skessuhorn


Skessuhorn - 24.08.2022, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 24.08.2022, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2022 17 það gerir stórrigningu og vegir fara í sundur, svo dæmi séu tekin,“ segir Valgeir, sem vann með sex vega- málastjórum á sínum ferli. Valgeir starfaði svo gott sem óslitið hjá Vegagerðinni í öll þessi ár, utan þrjú sumur þar sem hann vann sem bílstjóri og ferðaðist um landið með erlenda ferðamenn og eitt sumar þegar hann ók olíubíl. Hamagangur á Holtavörðuheiði Einn snjóþungur vetur er Valgeiri sérlega minnisstæður. „Við vorum að sinna snjómokstri á Holtavörðu- heiðinni. Þetta var á skírdag. Það var suðvestan éljagangur og allt á kafi í snjó. Við vorum með blásara, veghefil og jarðýtu til að ryðja heiðina. Einn starfsmaður átti að stoppa alla umferð niðri við heiðar- sporð sunnan megin þangað til við værum komnir í gegn en verkið gekk seint og illa og tafðist. Við týndum veginum á einum stað og fórum út fyrir hann þannig að þetta tafðist enn meira. Fyrir misskilning taldi sá sem var á vaktinni suðurfrá að við værum alveg að komast í gegn og fór af stað með bílalestina, sem síðan náði okkur áður við gátum opnað fyrir umferð. Við töldum 45 bíla komast í gegn en margir bílar sátu fastir í snjógöngum svo það endaði með því að við vorum að aðstoða fólk við að komast í skjól í Staðarskála til klukkan hálffjögur um nóttina. Fólk var flutt á milli bíla eins og hægt var og að lokum þurfti að selflytja fólk úr nokkrum bílum með jarðýtunni. Margir bílar voru skildir eftir á heiðinni. Daginn eftir var bandvitlaust veður og ekki hægt að opna fyrr en á laugardeg- inum fyrir páska,“ rifjar Valgeir upp. Flestallir vegir færir allt árið En hvað finnst Valgeiri hafa breyst mest á þessari tæpu hálfu öld? „Vegakerfið og vinnutíminn. Þetta voru mest koppagötur og malar- vegir, holóttir. Um leið og það gerði rigningu þá var allt í holum. Það var alltaf stefnt að því búið væri að hefla og rykbinda vegina fyrir verslunarmannahelgina. Eitt árið var allt búið á tilsettum tíma en þá gerði ofsarigningu. Þá fórum við út aftur með níu veghefla og það var unnið dag sem nótt til að koma vegunum í stand aftur. Algengt var að vegir væru ófærir vegna aur- bleytu á vorin, líka stofnvegir. Nú til dags eru flestallir vegir færir allt árið um kring,“ segir Valgeir. Hvað varðar vinnutímann segir hann að á veturna hafi oft verið byrjað að vinna klukkan sex á morgnana og unnið fram yfir mið- nætti. „Núna er bara unnið fram að seinna kaffi,“ segir hann. „Það er líka munur á vetrar- þjónustunni. Kröfurnar eru orðnar miklu meiri og vegirnir þurfa að vera hreinir og hálkulausir allan sólarhringinn. Það er líka meira álag á vegakerfið með auknum fjölda ferðamanna og þungaflutn- ingum,“ bætir Valgeir við. Fótbolti aðaláhugamálið Haustið eftir að Valgeir byrjaði að vinna hjá Vegagerðinni flutti hann í Borgarnes og hefur búið þar allar götur síðan. Hann er fæddur í Reykhólasveitinni og uppalinn í Straumfjarðartungu á Snæfells- nesi. „Foreldrar mínir voru bændur og voru með kindur og kýr. Ég ólst upp við hefðbundin sveitastörf en fékk fyrstu launuðu vinnuna um sjö ára aldurinn. Þá var ég lánaður á næsta bæ til að halda eldri manni selskap á meðan sonur hans vann í sláturhúsinu. Það haustið fékk ég að launum gráa gimbur. Ég hafði alltaf áhuga á vélum og var ekki spenntur fyrir því að verða bóndi,“ segir Valgeir. Straumfjarðartunga er enn í eigu fjölskyldunnar þótt ekki sé lengur búið á jörðinni. Valgeir er giftur Jóhönnu Þor- björgu Björnsdóttur og þau hjón hafa búið sér fallegt heimili í Borg- arnesi. „Við eigum tvo syni, þá Björn Sólmar og Ingólf Hólmar, og fyrir átti ég dóttur, Kristínu Amelíu og samtals eru barnabörnin orðin ellefu. Þau systkinin eru búsett hér í Borgarnesi og hafa öll valið sér að vinna í kringum börn. Björn Sól- mar er fótboltaþjálfari yngri flokka ÍA og vann á leikskóla. Ingólfur Hólmar vann í matvælaiðnaðinum, fór síðan að vinna á leikskóla og er núna að læra til leikskólaliða, vel á fertugsaldri. Kristín Amelía er skólaliði í Grunnskólanum í Borg- arnesi,“ segir Valgeir og stoltið leynir sér ekki. Þau hjónin hafa ánægju af því að ferðast um landið. „Ég segi stundum í gamni að Reyk- hólasveitin sé fallegasti staðurinn á landinu. Áhugamálin eru marg- vísleg en ætli fótboltinn sé þar ekki í fyrsta sæti. Við erum mikil fót- boltafjölskylda. Strákarnir okkar byrjuðu í kringum fimm ára aldur- inn að æfa fótbolta og fóru báðir upp í meistaraflokk. Við Jóhanna vorum viðloðandi fótboltann í tuttugu ár, vorum t.d. bæði um tíma formenn knattspyrnudeildar Skallagríms. Annars fylgist ég vel með enska boltanum og þar er Liverpool í uppáhaldi,“ segir Val- geir. Hann skellir upp úr þegar talið berst að því hvort honum eigi ekki eftir að leiðast nú þegar hann er sestur í helgan stein. „Nei, það verður ekkert vandamál að finna eitthvað til að hafa fyrir stafni. Ég dunda mér heima, er með hús og lóð, bíl og hjólhýsi og bílskúr. Ég er þegar byrjaður að koma mér í betra form og geng 2-6 km nokkrum sinnum í viku. Úthaldið er strax orðið betra frá því í vor.“ Að lokum er ekki úr vegi að spyrja hvort hann hafi átt von á því að verja starfsævinni hjá Vega- gerðinni. „Ég pældi ekkert í því á sínum tíma. Manni fannst engin ástæða til að skipta um vinnu. Þegar ég lít til baka yfir farinn veg er ég ánægður. Vegagerðin hefur verið góður vinnustaður og gott fólk sem þar starfar.“ Viðtal þetta við Valgeir birt- ist í síðustu Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar og hér einnig, með góðfúslegu leyfi hlutaðeig- andi. Hrafnseyrarheiði 1985. Vegheflun í Borgarfirði um miðjan 8. áratug síðustu aldar. Ljósm. Guðmundur Ingólfsson, Ímynd. Borgarfjarðarbraut (50) var vígð 26. október 2001 við Grímsá. Heiðursmenn eru Halldór Bjarnason og Valgeir Ingólfsson. Á milli þeirra er Álfheiður Sverrisdóttir skæravörður. Ljósm. Viktor Arnar Ingólfsson. Hér er unnið við vegfyllinguna yfir Borgarfjörð. Í eftirlitsferð yfir Arnarvatnsheiði í júní 2020. Hér er verið að loka síðasta haftinu í vegfyllingu yfir Borgarfjörðinn. Grjótnám í Borgarnesi vegna vegar yfir Borgarfjörð. Þar er nú komin íbúðar- byggð. Á Skorradalsvegi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.