Skessuhorn - 24.08.2022, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2022 17
það gerir stórrigningu og vegir fara
í sundur, svo dæmi séu tekin,“ segir
Valgeir, sem vann með sex vega-
málastjórum á sínum ferli.
Valgeir starfaði svo gott sem
óslitið hjá Vegagerðinni í öll þessi
ár, utan þrjú sumur þar sem hann
vann sem bílstjóri og ferðaðist um
landið með erlenda ferðamenn og
eitt sumar þegar hann ók olíubíl.
Hamagangur
á Holtavörðuheiði
Einn snjóþungur vetur er Valgeiri
sérlega minnisstæður. „Við vorum
að sinna snjómokstri á Holtavörðu-
heiðinni. Þetta var á skírdag. Það
var suðvestan éljagangur og allt á
kafi í snjó. Við vorum með blásara,
veghefil og jarðýtu til að ryðja
heiðina. Einn starfsmaður átti að
stoppa alla umferð niðri við heiðar-
sporð sunnan megin þangað til við
værum komnir í gegn en verkið
gekk seint og illa og tafðist. Við
týndum veginum á einum stað og
fórum út fyrir hann þannig að þetta
tafðist enn meira. Fyrir misskilning
taldi sá sem var á vaktinni suðurfrá
að við værum alveg að komast í gegn
og fór af stað með bílalestina, sem
síðan náði okkur áður við gátum
opnað fyrir umferð. Við töldum 45
bíla komast í gegn en margir bílar
sátu fastir í snjógöngum svo það
endaði með því að við vorum að
aðstoða fólk við að komast í skjól
í Staðarskála til klukkan hálffjögur
um nóttina. Fólk var flutt á milli
bíla eins og hægt var og að lokum
þurfti að selflytja fólk úr nokkrum
bílum með jarðýtunni. Margir bílar
voru skildir eftir á heiðinni. Daginn
eftir var bandvitlaust veður og ekki
hægt að opna fyrr en á laugardeg-
inum fyrir páska,“ rifjar Valgeir
upp.
Flestallir vegir færir
allt árið
En hvað finnst Valgeiri hafa breyst
mest á þessari tæpu hálfu öld?
„Vegakerfið og vinnutíminn. Þetta
voru mest koppagötur og malar-
vegir, holóttir. Um leið og það
gerði rigningu þá var allt í holum.
Það var alltaf stefnt að því búið væri
að hefla og rykbinda vegina fyrir
verslunarmannahelgina. Eitt árið
var allt búið á tilsettum tíma en þá
gerði ofsarigningu. Þá fórum við
út aftur með níu veghefla og það
var unnið dag sem nótt til að koma
vegunum í stand aftur. Algengt var
að vegir væru ófærir vegna aur-
bleytu á vorin, líka stofnvegir. Nú
til dags eru flestallir vegir færir allt
árið um kring,“ segir Valgeir.
Hvað varðar vinnutímann segir
hann að á veturna hafi oft verið
byrjað að vinna klukkan sex á
morgnana og unnið fram yfir mið-
nætti. „Núna er bara unnið fram að
seinna kaffi,“ segir hann.
„Það er líka munur á vetrar-
þjónustunni. Kröfurnar eru orðnar
miklu meiri og vegirnir þurfa að
vera hreinir og hálkulausir allan
sólarhringinn. Það er líka meira
álag á vegakerfið með auknum
fjölda ferðamanna og þungaflutn-
ingum,“ bætir Valgeir við.
Fótbolti aðaláhugamálið
Haustið eftir að Valgeir byrjaði
að vinna hjá Vegagerðinni flutti
hann í Borgarnes og hefur búið þar
allar götur síðan. Hann er fæddur
í Reykhólasveitinni og uppalinn
í Straumfjarðartungu á Snæfells-
nesi. „Foreldrar mínir voru bændur
og voru með kindur og kýr. Ég ólst
upp við hefðbundin sveitastörf en
fékk fyrstu launuðu vinnuna um
sjö ára aldurinn. Þá var ég lánaður
á næsta bæ til að halda eldri manni
selskap á meðan sonur hans vann í
sláturhúsinu. Það haustið fékk ég
að launum gráa gimbur. Ég hafði
alltaf áhuga á vélum og var ekki
spenntur fyrir því að verða bóndi,“
segir Valgeir. Straumfjarðartunga
er enn í eigu fjölskyldunnar þótt
ekki sé lengur búið á jörðinni.
Valgeir er giftur Jóhönnu Þor-
björgu Björnsdóttur og þau hjón
hafa búið sér fallegt heimili í Borg-
arnesi. „Við eigum tvo syni, þá
Björn Sólmar og Ingólf Hólmar, og
fyrir átti ég dóttur, Kristínu Amelíu
og samtals eru barnabörnin orðin
ellefu. Þau systkinin eru búsett hér
í Borgarnesi og hafa öll valið sér að
vinna í kringum börn. Björn Sól-
mar er fótboltaþjálfari yngri flokka
ÍA og vann á leikskóla. Ingólfur
Hólmar vann í matvælaiðnaðinum,
fór síðan að vinna á leikskóla og er
núna að læra til leikskólaliða, vel
á fertugsaldri. Kristín Amelía er
skólaliði í Grunnskólanum í Borg-
arnesi,“ segir Valgeir og stoltið
leynir sér ekki.
Þau hjónin hafa ánægju af
því að ferðast um landið. „Ég
segi stundum í gamni að Reyk-
hólasveitin sé fallegasti staðurinn
á landinu. Áhugamálin eru marg-
vísleg en ætli fótboltinn sé þar ekki
í fyrsta sæti. Við erum mikil fót-
boltafjölskylda. Strákarnir okkar
byrjuðu í kringum fimm ára aldur-
inn að æfa fótbolta og fóru báðir
upp í meistaraflokk. Við Jóhanna
vorum viðloðandi fótboltann í
tuttugu ár, vorum t.d. bæði um
tíma formenn knattspyrnudeildar
Skallagríms. Annars fylgist ég vel
með enska boltanum og þar er
Liverpool í uppáhaldi,“ segir Val-
geir.
Hann skellir upp úr þegar talið
berst að því hvort honum eigi ekki
eftir að leiðast nú þegar hann er
sestur í helgan stein. „Nei, það
verður ekkert vandamál að finna
eitthvað til að hafa fyrir stafni.
Ég dunda mér heima, er með hús
og lóð, bíl og hjólhýsi og bílskúr.
Ég er þegar byrjaður að koma
mér í betra form og geng 2-6 km
nokkrum sinnum í viku. Úthaldið
er strax orðið betra frá því í vor.“
Að lokum er ekki úr vegi að
spyrja hvort hann hafi átt von á
því að verja starfsævinni hjá Vega-
gerðinni. „Ég pældi ekkert í því á
sínum tíma. Manni fannst engin
ástæða til að skipta um vinnu.
Þegar ég lít til baka yfir farinn veg
er ég ánægður. Vegagerðin hefur
verið góður vinnustaður og gott
fólk sem þar starfar.“
Viðtal þetta við Valgeir birt-
ist í síðustu Framkvæmdafréttum
Vegagerðarinnar og hér einnig,
með góðfúslegu leyfi hlutaðeig-
andi.
Hrafnseyrarheiði 1985. Vegheflun í Borgarfirði um miðjan 8. áratug síðustu aldar.
Ljósm. Guðmundur Ingólfsson, Ímynd.
Borgarfjarðarbraut (50) var vígð 26. október 2001 við Grímsá. Heiðursmenn eru
Halldór Bjarnason og Valgeir Ingólfsson. Á milli þeirra er Álfheiður Sverrisdóttir
skæravörður. Ljósm. Viktor Arnar Ingólfsson. Hér er unnið við vegfyllinguna yfir Borgarfjörð.
Í eftirlitsferð yfir Arnarvatnsheiði í júní 2020. Hér er verið að loka síðasta haftinu í vegfyllingu yfir Borgarfjörðinn.
Grjótnám í Borgarnesi vegna vegar yfir Borgarfjörð. Þar er nú komin íbúðar-
byggð. Á Skorradalsvegi.