Skessuhorn - 24.08.2022, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 20222
Nú eru fyrstu dagar skólastarfs
haustsins. Mörg börn finna fyrir
tilhlökkun og spennu yfir því
að hitta aftur bekkjarfélagana
og kennarana á meðan önnur
börn finna fyrir kvíða og eru
ekki alveg jafn spennt. Alltaf er
mikilvægt að passa upp á svefn
barna svo þau séu sem best til-
búin í amstur dagsins. Þá er gott
að borða með þeim morgun-
matinn í ró og næði því það
minnkar álag og kvíða og ýtir
undir að börnin séu í jafnvægi
þegar þau mæta í skólann. Þá
er alltaf gott að ræða við börnin
um tilfinningar sínar og passa
upp á að þau fái næga hreyfingu
á hverjum degi. Svo er ekki verra
að enda daginn á lestri og spjalli
um daginn sem er á enda.
Á fimmtudag er útlit fyrir norðan
8-13 m/s vestan til á landinu en
annars hægari. Rigning eða súld
með köflum, einkum norðan-
lands. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast
syðst. Á föstudag má búast við
norðan- og norðvestan 5-13
m/s, hvassast á annesjum. Rign-
ing framan af degi norðan til
með 5 til 10 stiga hita, en bjart-
viðri syðra og hiti að 15 stigum.
Á laugardag og sunnudag má
gera ráð fyrir fremur hægri norð-
lægri eða breytilegri átt og bjart
með köflum en líkur á stöku
skúrum syðra. Hiti 6 til 14 stig,
svalast norðanlands.
Í síðustu viku var spurt á
vef Skessuhorns: „Fyllir þú á
frystkistuna fyrir haustið?“
Næstum því helmingur eða 47%
svöruðu því játandi, 29% svör-
uðu neitandi, 15% sögðust ekki
eiga frystikistu og 9% kváðust
kaupa í matinn jafnóðum.
Í næstu viku er spurt:
Hvað varstu samtals lengi í
skóla? (Öll skólastig).
Guðrún Fjeldsted fór í síð-
ustu ferð sumarsins eftir hálf-
rar aldar rekstur reiðskólans að
Ölvaldsstöðum. Guðrún er Vest-
lendingur vikunnar að þessu
sinni.
Varúð! Skólabörn
í umferðinni
LANDIÐ: Börn og ungmenni
streyma í skólana sína þessa dag-
ana, mörg hver í fyrsta skipti.
Það er því sérstök ástæða til að
hvetja ökumenn til að vera á
varðbergi í umferðinni, virða
hraðatakmarkanir og merk-
ingar og hleypa gangandi veg-
farendum yfir á gangbrautum
og sýna unga fólkinu okkar bæði
fulla tillitssemi og gott fordæmi
í umferðinni. -mm
Vinsælir fuglar í
keppni
LANDIÐ: Að afstöðnu for-
vali Fuglaverndar fyrir keppnina
um Fugl ársins 2022 komust sjö
fuglar áfram í forvali og keppa
um titilinn fugl ársins. Í tilkynn-
ingu frá Fuglavernd kemur fram
að þetta eru fuglarnir: Auðn-
utittlingur, himbrimi, hrafn,
hrossagaukur, jaðrakan, kría og
maríuerla. Kosningin um fugl
ársins fer svo fram rafrænt á
www.fuglarsins.is dagana 5.- 12.
septem ber og verður sigurvegari
ársins kynntur þann 16. septem-
ber á Degi íslenskar náttúru.
-mm
Menningarhátíð
haldin í sjötta sinn
STYKKISH: Menningarhá-
tíðin Norðurljósin verður haldin
í sjötta sinn í Stykkishólmi dag-
ana 20. - 23. október nk. Sveitar-
stjórn leitar að aðilum sem hafa
áhuga á að standa fyrir við-
burðum, sýningum, skemmt-
unum og gjörningum, hvort
heldur sem eru einstaklingar,
skólar, félagasamtök eða fyrir-
tæki. Einnig eru þeir sem hafa
hugmyndir eða áhuga á að koma
sér eða öðrum á framfæri hvattir
til að hafa samband. Markmiðið
er að hátíðin sé sjálfbær og að
bæjarbúar skemmti bæjar búum
og gestum. Hólmarar eru hvattir
til að taka þessa daga í október
frá og nota tækifærið og bjóða
gestum heim. Hægt er að koma
á framfæri hugmyndum og
ábendingum varðandi hátíðina á
netfangið: norðurljosin@stykk-
isholmur.is -vaks
Hjóluðu um
sveitina
BORGARFJ: Hjólreiðadeild
Breiðabliks stóð á laugardaginn
fyrir malarhjólreiðakeppn-
inni Greflinum um uppsveitir
Borgar fjarðar. Um 200 hjólarar
tóku þátt í keppninni. Keppn-
isleiðin var m.a. frá Reykholts-
dal, um Lundarreykjadal, Uxa-
hryggi og Kaldadal og þaðan
aftur í Reykholtsdalinn. Hjóla-
leiðin var annars vegar 100 km
og hins vegar 200 km. Keppnin
hófst klukkan sjö á laugardags-
morgni við Krauma við Deildar-
tunguhver og lauk á sama stað
þrettán tímum síðar. -mm
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Veðurstofa Íslands bendir á að
gervitunglamyndir sýni að á síð-
ustu vikum hefur vatnsstaða
Hafrafellslóns í jaðri Langjök-
uls hækkað jafnt og þétt sökum
úrkomu og bráðnunar jökuls-
ins. Mögulegt er að það hlaupi úr
lóninu á næstu dögum eða vikum.
Hlaup varð úr þessu sama lóni fyrir
réttum tveimur árum og þrefaldað-
ist þá vatnið í Hvítá. Hlaupvatnið
fór fyrst um farveg Svartár sem
alla jafnan er þurr eða vatnslítill og
þaðan í Hvítá. Mannvirki skemmd-
ust ekki í þessu flóði, en fiskar
drápust í ánni og mikill sandur
barst á land þar sem áin flæddi yfir
bakka sína. Fáir urðu vitni að sjálfu
flóðinu þar sem það varð eftir að
skyggja tók aðfararnótt 18. ágúst
Meðfylgjandi er mynd frá útkalli
björgunarsveita og sjúkraflutn-
ingamanna á Snæfellsnesi á sunnu-
daginn. Þeir voru fengnir til að
flytja konu sem hafði ökklabrotnað
þar sem hún var stödd í göngu
austur af Snæfellsjökli. Búið var um
hana og hún flutt með sexhjóli að
sjúkrabíl við fjallsrætur.
Nokkur erill var hjá björgunar-
sveitum á landinu um helgina. Í til-
kynningu frá Landsbjörgu segir að
meðal annars hafi þurft að koma til
aðstoðar konu sem hafði örmagn-
ast á göngu á Kattarhryggjum í
Þórsmörk. Sjálfboðaliðar björg-
unarsveitanna komu ökumönnum
fjögurra bíla til aðstoðar sem höfðu
fest bíla sína á hálendi og í ám. Í
Hólmsá að Fjallabaki og Þríhyrn-
ingsá á Austurlandi höfðu öku-
menn fest bíla sína, á Sprengisands-
leið var bíll fastur í leðju og björg-
unarsveitarfólk flutti farþega úr bil-
uðum bíl á Hlöðufellsvegi á Suður-
landi. Nokkuð var um að aðstoða
þurfti sjúkraflutningamenn við að
flytja slasaða einstaklinga. Meðal
annars við Svartafoss og Stórhöfða
í Vestamannaeyjum auk fyrrgreinds
óhapps við Snæfellsjökul.
Snemma morguns á sunnudegi
voru kaldir og hraktir göngumenn
sóttir í Kistufellsskála og þeim
komið til byggða og eftir hádegi
sama dag kom björgunarsveitarfólk
bónda til aðstoðar við að reka hjörð
af nautgripum fyrir Tungufljót.
mm/ Ljósm. Landsbjörg
Mögulegt hlaup í Hvítá úr lóni við Langjökul
2020 og hafði dvínað um morgun-
inn.
Mikilvægt að vera
á varðbergi
Veðurstofan rekur vatnshæðarmæli
við Kljáfoss í Hvítá í landi Hurðar-
baks í Reykholtsdal. Sá mælir sýndi
flóðatopp upp á um 260 rúmmetra
á sekúndu í flóðinu 2020, sem er
um 180 rúmmetrar umfram grunn-
rennsli á þessum árstíma. Í skýrslu
sem Veðurstofan vann um hlaupið
kom m.a. fram að rúmmál flóðs-
ins hafi alls verið u.þ.b. 3,4 millj-
ónir rúmmetrar. „Ekki er hægt að
segja til um hver stærð mögulegs
hlaups nú gæti orðið, en vatns-
staða lónsins nú er svipuð og hún
var í aðdraganda hlaupsins 2020. Í
hlaupinu 2020 tvöfaldaðist rennsli
árinnar á örfáum klukkustundum
þegar vöxtur hlaupsins var hvað
hraðastur,“ segir í frétt Veðurstof-
unnar.
Mikilvægt er að vera á varð-
bergi gagnvart mögulegu hlaupi úr
Hafrafellslóni. Ef hleypur úr lón-
inu með svipuðum hætti og 2020
er ekki búist við teljandi áhrifum
á mannvirki. Árið 2020 flæddi upp
að bitum brúarinnar yfir Hvítá ofan
við Húsafell. Á ýmsum stöðum
neðar í farveginum hafði hlaupið
nokkur áhrif, t.d. flæddi upp á engi
við Brúarás og neðan við Hraun-
fossa. Fólki sem er á ferð við Svartá
eða dvelur á bökkum Hvítár, t.d.
veiðimönnum, stafar mest hætta
af hlaupinu og verður því að vera
á varðbergi gagnvart hækkandi
vatnsyfirborði. Íbúum á svæðinu
er einnig bent á að huga að mögu-
legum áhrifum hlaups á eignir og
búfénað nærri bökkum Hvítár.
Í kjölfar hlaupsins 2020 voru
gerðir straumfræðilegir líkan-
reikningar sem gerðu ráð fyrir
hlaupi með 50% meira hámarks-
rennsli. Niðurstöður þeirra reikn-
inga benda til að jafnvel við slíka
rennslisaukningu muni ekki flæða
upp úr farvegi Hvítár norðan
Húsafells og því ólíklegt að sumar-
húsabyggðin sé í hættu.
Myndavél komin upp
Elmar Snorrason hefur nú sett upp
myndavél ofan við brúnna á Hvítá
við Húsafell. Myndavélin tekur
mynd með mínútu millibili. Slóðin
á myndavélina er: http://ellisnorra.
is/hvita/
mm
Eftir flóðið aðfararnótt 18. ágúst 2020 mátti sjá að einungis vantaði 30 cm upp á
að vatnið næði upp á brúargólf Hvítárbrúarinnar við Húsafell.
Elmar Snorrason hefur komið upp eftirlitsmyndavél við Hvítárbrúna. Slóðin er
http://ellisnorra.is/hvita
Uppistöðulón undan jökulröndinni
braut sér leið fram og rann um farveg
Svartár í krikanum suðaustur af
Hafursfelli og þaðan í Hvítá.
Ljósm. Arnar Bergþórsson.
Í kjölfar flóðsins 2020 mátti sjá dauða
laxa á bökkum Hvítár. Hér heldur sjálf-
boðaliði hjá Umhverfisstofnun á laxi
sem grafist hafði í aurinn á bakkanum
neðan við.
Ásgil. Ljósm. Eilidh Thomson.
Ökklabrotnaði í fjallgöngu