Skessuhorn - 24.08.2022, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 20228
Aflatölur fyrir
Vesturland
13. – 19. ágúst
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 3 bátar.
Heildarlöndun: 2.337 kg.
Mestur afli: Emilía AK:
1.584 kg í þremur löndunum.
Arnarstapi:
Engin löndun.
Grundarfjörður: 6 bátar.
Heildarlöndun: 169.132 kg.
Mestur afli: Runólfur SH:
55.443 kg í einum róðri.
Ólafsvík: 8 bátar.
Heildarlöndun: 88.173 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
68.401 kg í þremur róðrum.
Rif: 5 bátar.
Heildarlöndun: 6.050 kg.
Mestur afli: Fíarún
SH: 1.807 kg í tveimur
löndunum.
Stykkishólmur: 5 bátar.
Heildarlöndun: 16.999 kg.
Mestur afli: Bára SH: 15.280
kg í fjórum löndunum.
1. Runólfur SH – GRU:
55.443 kg. 15. ágúst.
2. Hringur SH – GRU:
54.360 kg. 17. ágúst.
3. Frosti ÞH – GRU:
54.098 kg. 15. ágúst.
4. Steinunn SH – ÓLA:
29.247 kg. 15. ágúst.
5. Steinunn SH– ÓLA:
23.823 kg. 15. ágúst.
-sþ
Fram kemur á heimasíðu Dalabyggðar að í sumar
hafi verið unnið að ýmiskonar viðhaldi í Auðar-
skóla, grunnskólanum í Búðardal. Hluti þess eru
úrbætur í kjölfar úttektar Verkís síðasta vetur.
Á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Silfurtúni er
endurnýjun á sameiginlegu baðherbergi langt
komin og mun bæta aðstöðu íbúa og starfsfólks til
muna. Gatnahönnun í Iðjubraut og botnlanga frá
Lækjarhvammi er langt komin og stefnt að útboði
á jarðvegsskiptum á næstu vikum. Að auki verður
unnið að stofnlögnum vatns- og fráveitu að nýjum
lóðum. Það er greinilega áhugi á lóðum og von-
andi er stutt í byggingu fleiri íbúðarhúsa í Búðar-
dal, segir í fréttinni.
Ný kaldavatnslögn var plægð frá stofnlögninni
af Svínadal heim að Laugum í sumar og verður
hún tengd í haust. Um áramótin síðustu staðfesti
sveitarfélagið pöntun á hreinsistöð fyrir skólp sem
kemur væntanlega í haust. Senn hefst undirbún-
ingur fyrir neðan Búðarbraut þar sem skólp hefur
hingað til runnið óhreinsað í sjó. vaks
Samkvæmt ákvörðun Svandísar
Svavarsdóttur matvælaráðherra er
hafin vinna við gerð skýrslu á stöðu
lagareldis hér á landi. Lagareldi er
nýyrði í málinu og verður yfirheiti
yfir sjókvía-, land-, þörunga- og
úthafseldi. Ljúka á við skýrsluna í
nóvember á þessu ári.
Að undangengnu útboði hefur
matvælaráðuneytið samið við
bandaríska ráðgjafafyrirtækið
Boston Consulting Group Nordic
AB um gerð skýrslunnar þar sem
gerð verður ítarleg úttekt á stöðu
lagareldis á Íslandi. Í skýrslunni
verða greindir framtíðarmöguleikar
og áskoranir greinarinnar og mun
sú vinna nýtast við stefnumótun
ráðuneytisins. Tekið verður mið af
umhverfismálum, verðmætasköpun
og regluverki. „Til samræmis við
stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar
verður áhersla lögð á að kortleggja
tækifæri til sjálfbærs vaxtar greinar-
innar með vísindalega þekkingu að
leiðarljósi. Höfð verður hliðsjón
af samanburðargreiningu við þau
lönd sem helst stunda lagareldi.
Einnig verður gerð úttekt á mögu-
legum mótvægisaðgerðum vegna
umhverfisáhrifa af hinni ýmsu
starfsemi svo sem sjókvíaeldis,“
segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Mikill vöxtur hefur verið í leyfis-
veitingum til sjókvíaeldis og fram-
leiðslu á laxi undanfarinn áratug
hér á landi. Einnig liggja fyrir áætl-
anir um framleiðslu á laxi á landi
af stærðargráðu sem á sér ekki for-
dæmi hérlendis. Áhugi á þörunga-
rækt hefur jafnframt aukist veru-
lega. „Það er augljóst að lagar-
eldi er framtíðaratvinnugrein á
heimsvísu,“ segir Svandís Svavars-
dóttir matvælaráðherra. „Það eru
í senn okkar forréttindi og ábyrgð
að koma málum í þann farveg að
greinin eigi sér bjarta framtíð á
Íslandi, með hagsmuni samfélags
og náttúru að leiðarljósi.“ mm
Það var kraftur í skipverjunum á
dragnótarbátnum Rifsara SH þegar
þeir voru að setja ný tóg um borð
og eftirvæntingin leyndi sér ekki að
hefja veiðar á komandi kvótaári. En
skipsverjar bíða nú til 1. september
með að hefja veiðarnar. Þeir segja
að það sé fiskur út um allan sjó þrátt
fyrir kvótaskerðingu sem þeir skilja
bara ekkert í. „Það sé nóg af fiski í
hafinu þótt Hafró finni hann ekki,“
segja þeir.
Útgerðarmenn hafa notað
sumar fríið til þess að dytta að
bátum sínum og gera þá klára fyrir
komandi vertíð og fiskvinnslur eru
búnar að setja sig í stellingar að
vinna fiskinn sem komið verður
með að landi. Þá fara hjól atvinnu-
lífsins að snúast að nýju. af
Framkvæmdir í Dalabyggð
Lagareldi er nýyrði yfir eldi í vatni
Það er nógur fiskur í sjónum
þótt Hafró finni hann ekki