Skessuhorn - 24.08.2022, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 202212
Ýmsar tilfæringar hafa verið í skóla-
starfi Grundaskóla á Akranesi síð-
ustu ár þar sem skólinn hefur staðið
í miklum endurbótum á byggingum.
Gamla stjórnunarálma skólans hefur
verið lokuð vegna endurbóta síðan í
lok apríl og er verið að breyta henni
í kennsluálmu. Vonast er til að hún
verði tilbúin í byrjun október og
mun 9. bekkur þá færa sig þangað.
Þar til gamla stjórnunarálman
verður tilbúin þarf Grundaskóli
að leysa sín mál með bráðabirgða-
lausnum. Þá verður til að mynda
útikennsla, kennsla á sal og gangar
skólans einnig nýttir.
Þá er þessa dagana verið að vinna
á útisvæði skólans og meðal annars
verið að snyrta til við aðalinngang
að B-álmu, setja hellur og beð og
fjölga hjólastöndum. Því verki átti
að ljúka áður en skólinn hófst en þó
má búast við að því verki verði ekki
að öllu lokið fyrir þann tíma. Þá er
unnið af fullum krafti við að gera
lausar kennslustofurnar í svokall-
aðri Eyju tilbúnar fyrir skólabyrjun
og það verkefni átti að nást áður en
skólinn hófst.
Til stendur að Grundaskóli fái
eftir áramót það húsnæði sem leik-
skólinn Garðasel er í núna og þarf
þá að ráðast í endurbætur á því hús-
næði og skólalóðinni. Þar verða lík-
lega kenndar list- og verkgreinar til
að byrja með en svo mun frístund
Grundaskóla færast þangað.
Að sögn Sigurðar Arnars Sigurðs-
sonar, skólastjóra Grundaskóla,
eru undanfarin ár búin að reyn-
ast nemendum og starfsfólki erfið
og á köflum þreytandi vegna fram-
kvæmda og þrengsla en á sama tíma
hafa allir aðilar sýnt þessu öllu mikla
þolinmæði. Framundan eru enn
meiri framkvæmdir í elstu byggingu
skólans, eða C-álmu eins og hún er
kölluð. Sigurður Arnar segir skóla-
samfélagið sameinast um lokamark-
miðið sem er nýr og glæsilegur
Grundaskóli. „Verkefni okkar er að
reka öflugt skólastarf og brúa næstu
tvö ár með skapandi lausnum eða
þar til að fullbúinn, nýr og glæsi-
legur Grundaskóli lítur dagsins ljós.
Þegar sú stund rennur upp lofum
við stórhátíð á bæ þar sem skóla-
samfélagið mun fagna glæsilegri
uppskeru.“ vaks
Útgerðarfélagið Þórsberg ehf.
á Tálknafirði fékk á dögunum
afhentan nýjan yfirbyggðan
Cleopatra 40BB beitningarvélar-
bát frá bátasmiðjunni Trefjum í
Hafnarfirði. Nýi báturinn heitir
Indriði Kristins BA 751 og er
hannaður í samstarfi við Ráðgarð
ehf. Báturinn er 12,5 metrar á
lengd, 6,5 metra breiður og mælist
Gamli Indriði heitir nú Særif SH eftir að báturinn var seldur til Melness í Rifi.
Nýr Indriði landaði sínum fyrsta afla í Rifi
Indriði Kristins BA kemur úr sínum fyrsta róðri til Ólafsvíkur.
Unnið við löndun á fyrsta aflanum sem reyndist 3,5 tonn.
30 brúttótonn. Indriði leysir af
hólmi eldri bát með sama nafni
sem hefur nú verið seldur til Mel-
ness ehf. í Rifi og heitir nú Særif
SH.
Indriði BA landaði sínum fyrsta
afla í Ólafsvík í síðustu viku. „Við
lögðum nokkra rekka til þess að
prufa nýja bátinn,“ sögðu skip-
verjar í samtali við fréttaritara
Skessuhorns. „En það þarf að
slípa þetta aðeins til svona fyrst
um sinn,“ bættu þeir við. Skip-
verjar sögðu að það þyrfti m.a. að
stilla beitningarvélina þar sem hún
beitti aðeins helming krókanna og
kom viðgerðarmaður til þess að
lagfæra hana.
Tvær áhafnir eru á bátnum og
verða menn tíu daga á sjó og tíu
daga í fríi. Skipverjar sögðu að þeir
leggðu gjarnan tvær lagnir í einu.
„Þetta er hörkuskip, með mjúkar
hreyfingar þrátt fyrir hæðina á
því, og virkilega flott aðstaða um
borð,“ sögðu þeir.
af
Framkvæmdir í Grundaskóla í fullum gangi
Við aðalinngang að B-álmu var allt kapp lagt á að ljúka framkvæmdum áður en
skólinn hófst.
Við innganginn í gömlu stjórnunarálmunni er búið að brjóta vegg að sal og sviði
skólans. Þarna fyrir innan kemur salernisaðstaða, ný skjalageymsla og náms-
gagnageymsla.
Útiskólastofurnar eru alls sjö og létta mjög á ástandinu.
Í byrjun október á framkvæmdum að vera lokið í gömlu stjórnunar-
álmunni. Búið er að fjölga hjólastöndum við skólann.