Skessuhorn - 24.08.2022, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2022 15
Garða- og
Saurbæjarprestakall
DagsetningÚtvarpsmessa verður á Rás 1 frá
Akraneskirkju sunnudaginn 28. ágúst kl. 11
Akraneskirkja
Sunnudagurinn 28. ágúst
Kvöldmessa kl. 20
Miðvikudagurinn 31. ágúst
Bænastund kl. 12.15
Garða- og Saurbæjar-
prestakall
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Dagsetning
F I R M A M E R K I :
Skrár og notkunarreglur
Notkun á merki
Uppsetning á fleti
Röng notkun á merki
Skjöl
Merki án texta
Notað Í þeim tilvikum þar sem merkið þarf að birtast á smáum fleti, og letrið væri ekki hæfilega læsilegt.
Fyrir prentefni Fyrir vefinn
/reglulegt
.pdf
.ai
.eps
Sækja prentskjöl
/negatíft
.pdf
.ai
.eps
Sækja prentskjöl
/reglulegt
.jpg Lág & há upplausn
.png Lág & há upplausn
.svg
Sækja vefskjöl
/negatíft
.jpg Lág & há upplausn
.png Lág & há upplausn
.svg
Sækja vefskjöl
Hefðbundin notkun á merki er blátt á hvítum grunni.
lárétt lóðrétt
Ekki má breyta hlutföllum á merki.
Hér er hægt að nálgast merkið fyrir prent og vefefni, í ýmsum skráargerðum.
Ekki má breyta lit á merki.
Pantone
7700
CMYK
92 • 62 • 32 • 12
–
RGB
27 • 90 • 125
Hex
1b5a7d
Merkið getur einnig verið notað negatíft hvítt á bláa lit merkisins.
lárétt lóðrétt
Merkið getur í vissum tilvikum verið notað hvítt á svörtum grunni.
lárétt lóðrétt
Merkið skal umlukið auðu plássi, miðað er við minnst hæð merkisins til allrahliða
Plássið kemur í veg fyrir að letur, grafík, myndir eða annað efni þrengi að og komi í veg fyrir hámarks sýnileika á merkinu.
Ekki má setja merkið negatíft á annan grunn en tekið er fram í notkunarreglum.
Hönnun
Eggert Ragnarsson | Denorth ehf
Jöfnunarstyrkur til náms
Umsóknarfrestur á haustönn 2022 er til 15. október n.k.
Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá
Menntasjóði námsmanna geta sótt um styrk til jöfnunar á
námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem
stunda nám fjarri heimili sínu.
• Dvalarstyrkur (fyrir þá sem að dvelja fjarri lögheimili og
fjölskyldu sinni vegna náms og greiða leigu).
• Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem sækja nám frá
lögheimili fjarri skóla).
Opnað er fyrir umsóknir 1. september 2022.
Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn með rafrænum
skilríkjum á „Mitt Lán” sem aðgengilegt er í gegnum heimasíðu
okkar www.menntasjodur.is eða island.is. Nemendur og
aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur um
styrkinn á vef Menntasjóðsins.
Menntasjóður námsmanna
Námsstyrkjanefnd
Fimmtán dögum eftir síðustu sveit-
arstjórnarkosningar varð til nýtt
sveitarfélag á norðanverðu Snæ-
fellsnesi, með sameiningu Stykk-
ishólmsbæjar og Helgafellssveitar.
Bæjarstjórn var kjörin fjórtánda maí
og hefur hún nú sent átta tillögur
að væntanlegu heiti sveitarfélags-
ins til Örnefnanefndar að undan-
genginni könnun meðal íbúa.
Söfnun hugmynda um nafn sam-
einaðs sveitarfélags Stykkishólms-
bæjar og Helgafellssveitar lauk 1.
júní sl. með rafrænu samráðskerfi
þar sem allar tillögurnar birtust
nafnlaust á vefsvæðinu. Mörgum
tillögunum fylgdu skýringar. Þeir
sem treystu sér ekki til að nýta raf-
rænar lausnir var jafnframt vel-
komið að koma tillögum á skrif-
stofu Stykkishólmsbæjar eða fá
aðstoð við að setja inn hugmyndir
rafrænt. Tillögurnar sem sam-
þykkt var af bæjarstjórn að senda
til umsagnar Örnefndanefndar eru
þessar:
Breiðafjarðarbyggð
Breiðafjarðarbær
Helgafellssveit
Stykkishólmsbær
Stykkishólmsbær og
Helgafellssveit
Stykkishólmur og Helgafellsveit
Sveitarfélagið Stykkishólmur
Þórsnesþing
Örnefnanefnd er stjórn-
sýslunefnd á vegum mennta- og
menningarmálaráðuneytis og
starfar á grundvelli laga um örnefni.
Hún hefur margþætt hlutverk og
veitir m.a. umsagnir um nöfn á
nýjum sveitarfélögum. Nefndin
miðar í störfum sínum að varðveislu
íslensks menningararfs og verndun
örnefna. Einnig er það hlutverk
hennar að tryggja að ný örnefni
séu í samræmi við íslenska mál-
fræði og íslenska málvenju og stað-
hætti og örnefnahefð viðkomandi
svæðis. Formaður örnefnanefndar
er Bergur Þorgeirsson fram-
kvæmdastjóri Snorrastofu í Reyk-
holti og sagði hann í samtali við
Skessuhorn fyrir síðustu helgi að
nefndin myndi taka tillögurnar til
skoðunar sl. mánudag.
Jakob Björgvin Jakobsson bæj-
arstjóri í Stykkishólmi segir það
spennandi en á sama tíma vanda-
samt verkefni að ákveða heiti á nýju
sveitarfélagi. „Þannig að við viljum
vanda til verka í þessu eins og öðru
sem hefur tengst sameiningarferl-
inu til þessa. Heiti á sveitarfé-
lagi skipar jafnframt mikilvægan
sess í hjörtum margra íbúa og því
er mikilvægt að málsmeðferðin og
ferlið taki mið af og beri virðingu
fyrir því. Ég geri ráð fyrir því að
næstu skref verði þau að þegar
umsögn Örnefndanefndar liggur
fyrir munum við taka málið aftur
til umræðu á vettvangi sveitarfé-
lagsins og ákveða næstu skref og
þá sérstaklega hvernig við getum
virkjað íbúa til jákvæðrar þátttöku
í ákvörðunartökuferlinu.“ gj
Föstudagurinn 12. ágúst var síðasti
vinnudagur sumarsins hjá vinnu-
skólanum í Stykkishólmi. Af því
tilefni var ungmennunum komið á
óvart og boðið á kajak, farið var í
leiki og grillað í lok dags.
Fram kemur á vef Stykkishólms-
bæjar að starfsfólk vinnuskólans
hafi unnið frábæra vinnu í sumar
og fær þakkir fyrir þeirra framlag
við að halda umhverfinu hreinu og
snyrtilegu. Flokkstjórar sumarsins
voru þau Agatha Ýr Gunnarsdóttir
og Ágúst Nils Einarsson Strand og
segir á vef bæjarins að vinnuskólinn
hafi verið heppin að krækja í þau.
Vaks/ Ljósm. stykkisholmur.is
Beðið umsagnar um heiti nýs
sameinaðs sveitarfélags
Frá Stykkishólmi. Ljósm. sþ.
Vinnuskólanum lokið í Stykkishólmi
Krakkarnir skelltu sér á kajak.
Kubbur er alltaf vinsæl keppni. Ágúst Nils og Agatha Ýr ánægð eftir sumarið.