Skessuhorn - 24.08.2022, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 202222
Í júní opnaði í Grundarfirði
nýtt kaffihús sem heitir Valeria.
Eigendur þess eru hjónin Marta
Magnúsdóttir og Jan Van Haas.
Marta er uppalinn Grundfirðingur
og vill hvergi annars staðar vera og
því lá beinast við að Jan flytti með
henni til Grundarfjarðar þegar þau
tóku saman. Jan er frá Kólumbíu,
foreldrar hans voru kaffibændur
og Jan ólst upp á litlum sveitabæ
þar sem fjölskyldan ræktaði kaffi-
ber en þau voru einnig með heim-
ili í borginni þar sem Jan og bræður
hans fóru í skóla. Fljótlega eftir að
Jan flutti til Grundarfjarðar fæddist
sú hugmynd hjá þeim hjónum að
opna kaffihús og bjóða þar upp á
kólumbískt kaffi. Nafnið Valeria
er kólumbískt og er fengið úr fjöl-
skyldu Jans en bróðurdóttir hans
heitir Valeria.
Mjúk opnun
Við aðalgötuna í Grundarfirði,
á Grundargötu 24, stendur lítið
dökkt hús með bláu þaki sem lætur
lítið yfir sér. Framan við húsið
er nýr og flottur sólpallur, borð
og stólar og skilti sem á stendur
‘Valeria – kaffiristun og kaffihús’.
Þegar blaðamann Skessuhorns bar
að garði var glampandi sólskin og
fallegt veður. Það var rólegt á kaffi-
húsinu og því kjörið að setjast út í
sólina með kaffibolla.
Síðasta sumar festu Marta og Jan
kaup á þessu húsi við Grundargötu
24, við tók ár af framkvæmdum til
að standsetja það og gera upp svo
það myndi henta fyrir kaffiristun
og kaffihús. Bæði voru þau í öðrum
vinnum síðasta árið meðfram því
að gera upp húsið og það gekk því
hægar en ella. Marta segir það hins
vegar hafa verið blessun að fram-
kvæmdirnar hafi tekið þann tíma
sem þær gerðu því nú í sumar opn-
uðu þau kaffihúsið og segir Marta
að það hafi verið alveg réttur tími
til að opna. „Við heyrðum af mjög
skemmtilegu hugtaki sem er ‘mjúk
opnun’, en þá opnar maður án
þess að það sé endilega allt tilbúið
og við gerðum það. Fyrsta daginn
þá opnuðum við bókstaflega með
mínútna fyrirvara, við opnuðum
bara hurðina og sögðum engum frá
og svo fór bara fólk að tínast inn,
fyrst einn og svo annar og síðan
þá hefur það bara undið upp á sig.
Við erum mjög ánægð með hvernig
þetta fór og núna er hér yfirleitt
þannig fjöldi að Jan getur bara séð
um þetta einn og það hentar okkur
rosalega vel núna.”
Glæpagengi hrekja
bændur burt
Jan er eins og áður sagði frá Kólum-
bíu, alinn upp af kaffibændum og
hefur sjálfur unnið á ökrunum við
að týna kaffiberin. Kólumbía er
stórt og fjölmennt land og þar er
töluverð spilling. Stórir glæpa-
hópar gera smábændum lífið leitt
með því að fara á sveitabæina, hóta
bændunum öllu illu og taka þannig
yfir jarðirnar. Þá neyðast bænd-
urnir til að flýja sveitina sína ellegar
ganga til liðs við glæpagengin eða
hætta á að vera drepnir fyrir að vera
ósamvinnuþýðir. Glæpagengið,
sem er eins konar mafía, notar
síðan jarðirnar til að rækta kókaín
og önnur eiturlyf. Þetta var raun-
veruleikinn hjá foreldrum Jans, en
fyrir nokkrum árum neyddust þau
til að láta frá sér sveitabæinn sinn
og flýja. Þau búa enn þá í Kólum-
bíu, en í borg, og eru núna orðnir
ellilífeyrisþegar. „Það er ekki hægt
að segja nei þegar mafían kemur og
heimtar að þú látir af hendi sveita-
bæinn þinn. Kólumbía er svo ótrú-
lega stórt land, jú þú getur látið
herinn vita og hann kemur þá og
ræðst gegn mafíunni en það þýðir
lítið. Mafían flýr til fjalla og felur
sig þar til hermennirnir þurfa að
fara í næsta verk, því þetta er svo
stórt land að herinn getur ekki sinnt
öllum svona tilfellum og fylgt þeim
eftir. Svo þegar mafían kemur úr
felum, kemur hún aftur heim til þín
og drepur þig og fólkið þitt. Þetta
hefur gerst við marga bændur og
þeir búa núna flestir í borgum og
betla peninga á götunni. Ég og mín
fjölskylda erum heppin að vera á lífi
og hafa það sæmilegt.” segir Jan.
Versla kaffibaunir
af kólumbískum
smábændum
Jan og Marta kynntust þegar Jan
var við störf í Sardiniu á Ítalíu. Þá
vann hann á seglskútu, í einka-
eigu, sem sigldi í Karabíska haf-
inu og Miðjarðarhafinu. Þegar Jan
flutti svo til Íslands fyrir tveimur
árum fann hann sterkt að hann vildi
styðja við bakið á kaffibændum í
Kólumbíu og úr varð hugmyndin
að opna kaffihús þar sem allt kaffi
kæmi beint frá smábændum þar.
Bróðir Jans býr enn þá í Kólumbíu
og hann sér um útflutningsferlið á
kaffinu þaðan, sem getur á margan
hátt reynst erfitt. „Hann sér sjálfur
um að fara á bæina og sækja kaffi-
baunirnar, pakka þeim inn og senda
þær úr landi,“ segir Jan. Þau hjónin
reyna helst að versla við þá bændur
sem eru með minnstu framleiðsluna
og hafa jafn vel ekki tök á að selja
frá sér á aðra staði. Sumir sveitabæ-
irnir eru afskekktir og segir Jan frá
því að bróðir hans þurfi að fara á
mótorhjóli á ákveðin býli þar sem
vegirnir þangað eru einkar slæmir.
Hann pakkar svo baununum sjálfur
og sendir til Íslands. „Þegar við
fáum kaffibaunirnar til okkar eru
bændurnir búnir að þurrka þær og
flysja. Við ristum svo kaffibaun-
irnar hér og búum til gott kaffi fyrir
alla sem vilja,“ segir Jan.
Kólumbía er þekkt fyrir kaffi-
ræktun og kaffið þaðan er betra að
gæðum en kaffi annars staðar frá,
segir Jan, vegna þess að í Kólum
bíu eru kaffiber handtínd en í
öðrum löndum, eins og Brasilíu,
eru þau týnd með vélum. Þegar
berin eru handtýnd eru bara tekin
þau ber sem eru orðin mátulega
þroskuð en grænjaxlarnir skildir
eftir. Það gerir að verkum að kaffið
verður bragðbetra. Þá liggur bein-
ast við að spyrja hvort Jan hafi
sjálfur háan standard þegar kemur
að kaffi eða hvort hann drekki hvað
sem er. Því svarar hann: „Á bænum
mínum verkuðum við og seldum
frá okkur allar kaffibaunir sem við
ræktuðum. Við keyptum svo ódýrt
kaffi til einkanota í næstu matvöru-
búð.“ Jan er því alinn upp við kaffi-
drykkju sem ekki er ósvipuð kaffi-
drykkju íslenskra bænda þar sem
kaffið er ódýr uppáhellingur. Hjón-
unum finnst þó báðum gott að fá
sér góðan kaffibolla. „Við erum
bæði að glíma við ákveðið vanda-
mál en það er koffínið sem fer illa
í okkur svo við þurfum að drekka
kaffið í hófi. Þegar við svo ákveðum
að fá okkur kaffibolla þá viljum við
hafa hann góðan.“
Litríkir veggir
og ljúfir tónar
Þegar gengið er inn í kaffihúsið
blasir strax við kaffisalan. Þar er Jan
á heimavelli, malar kaffi og útbýr
drykki fyrir gestina sem koma
nú inn hver af öðrum. Rýmið er
einstaklega notalegt, það er hátt til
lofts og hlýir litir prýða veggina. Í
einu horninu er stór svört vél sem
notuð er til að rista kaffibaunirnar.
Baununum er hellt ofan í vélina
sem veltast svo um inni í henni í
miklum hita. Ferlið tekur einungis
nokkrar mínútur og fylgjast þarf
vel með allan tímann svo baunirnar
verði alveg nógu ristaðar en þó ekki
um of svo þær brenni, og þar geta
sekúndur skipt máli.
Kaffihúsið Valeria býður upp á kólumbískt kaffi
Jan Van Hass og Marta Magnúsdóttir, eigendur Valeriu.
Kaffihúsið Valeria að Grundargötu 24 í Grundarfirði. Gestir drekka kaffið sitt í glampandi sólskini á nýbyggðum sólpalli við
húsið.