Skessuhorn - 24.08.2022, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2022 23
Í þessum lið leggjum við fyrir
tíu spurningar til íþróttamanna
úr alls konar íþróttum á öllum
aldri á Vesturlandi. Íþrótta-
maður vikunnar að þessu sinni er
knattspyrnumaðurinn Andri Þór
úr Ólafsvík.
Nafn: Andri Þór Sólbergsson
Fjölskylduhagir? Einhleypur og
barnlaus.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Mín helstu áhugamál eru fótbolti,
fjölskylda og vinir og ferðalög,
sérstaklega erlendis.
Hvernig er venjulegur dagur
hjá þér þessar mundir? Vakna og
fara í vinnuna. Svo er það æfing,
sund og borða kvöldmat og taka
svo góða slökun með strákunum
sem ég bý með í Ólafsvík.
Hverjir eru þínir helstu kostir
og gallar? Kostir: Myndi segja að
ég væri stundvís og reglumaður.
Tel mig þolinmóðan og jákvæðan
yfir höfuð fyrir utan í boltanum,
þá breytist það örlítið. Minn helsti
ókostur er líklegast tónlistar-
smekkurinn að annarra manna
mati, hann er greinilega ekki nógu
góður.
Hversu oft æfir þú í viku? Ég
æfi að meðtöldum keppnisleikjum
fimm til sex sinnum í viku.
Hver er þín fyrirmynd í
íþróttum? Fyrirmyndin mín í
íþróttum er Thierry Henry. Goð-
sögn í besta knattspyrnuliðinu á
Englandi og frábær knattspyrnu-
maður.
Af hverju valdir þú knattspyrnu?
Valið stóð á milli handbolta
og fótbolta þegar ég var yngri.
Margir í kringum mig sögðu að ég
væri betri í fótbolta og ég hlust-
aði á það. Sé samt ekki eftir þeirri
ákvörðun, finnst hún hafa verið
rétt.
Hver er fyndnastur af þeim sem
þú þekkir? Gef Arnóri Siggeirs-
syni þennan titil. Einn af mínum
elstu og bestu vinum, aldrei dauð
stund með þeim flotta dreng.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þína íþrótt?
Skemmtilegast er auðvitað að spila
keppnisleiki, skemmir ekki fyrir
þegar þeir vinnast. Leiðinlegast
eru hlaup án bolta, alveg gjörsam-
lega yfirburða leiðinlegast.
Hlaup án bolta
yfirburða leiðinlegust
Íþróttamaður
vikunnar
Það var vaskur hópur Lionsmanna
sem sá um að gróðursetja tré í
Paimpol garðinum í Grundarfirði
um helgina. Unnið var hörðum
höndum og hvergi slegið af. Lions-
menn fengu veglegan styrk frá
Skógræktinni til þessa verkefnis og
lögðu einnig til fjármagn og vinnu.
Lionsklúbburinn kom svo að máli
við bæjaryfirvöld um staðsetningu
fyrir herlegheitin og fór Kristín
Þorleifsdóttir, skipulagsfulltrúi
bæjarins, á fullt í samvinnu við
Lionsklúbbinn um að finna hent-
uga staðsetningu og varð Paimpol
garðurinn fyrir valinu. Þarna eiga
eftir að vaxa glæsileg tré sem með-
limir Lions munu annast og huga
að á komandi árum.
tfk
Hólmfríður Hildimundardóttir sló
ekkert af þó að ljósmyndari Skessu-
horns væri kominn á svæðið.
Lionsklúbbur
Grundarfjarðar gróðursetur
Hluti hópsins stillti sér upp fyrir ljósmyndara. F.v. Friðgeir Hjaltalín, Guðmundur Smári Guðmundsson, Aðalsteinn Þorvalds-
son, Kristín Pétursdóttir, Jóna Björk Ragnarsdóttir, Salbjörg Nóadóttir, Unnsteinn Guðmundsson, Hólmfríður Hildimundar-
dóttir, Olga Sædís Einarsdóttir, Sigríður Gísladóttir og Guðmundur Pálsson.
Séra Aðalsteinn Þorvaldsson lét ekki sitt eftir liggja og er hér að fækka fötum eftir
erfiðisvinnuna.
Í rýminu eru mörg falleg og upp-
lýsandi veggspjöld sem sýna t.d.
hvernig ákveðnir kaffidrykkir eru
útbúnir. Þá eru líka upplýsingar um
og sýnishorn af þeim kaffibaunum
sem Valeria notar. Undir öllu hús-
inu er kjallari og um þessar mundir
er verið að leggja lokahönd á að
útbúa hann fyrir veturinn sem setu-
stofu fyrir viðskiptavini. Þar er lágt
til lofts og er rýmið þrískipt. Búið
er að mála veggina þar ýmist ljós-
brúna eða bláa en sumir veggir hafa
verið klæddir með ljósum panel. Í
loftinu eru bitar sem málaðir hafa
verið svartir og í hátölurum hljómar
ljúf kólumbísk tónlist. Búið er að
fylla rýmið af plöntum og ljósaser-
íum og er heildarútkoman mjög
notaleg og instagramvæn.
Kaffið er í fyrsta sæti
Á drykkjarseðlinum eru hinir ýmsu
kaffidrykkir, bæði heitir og kaldir
og segir Marta að Cappuccino sé
einna vinsælasti drykkurinn, það
er ef fólki líkar mjólkurblandað
kaffi. Kaldir drykkir eru líka á
boðstólum, Frappuccino, Ice latte
og fleira. Hingað til hafa ekki verið
neinar veitingar í boði með kaffinu
og Marta segir það ekki trufla við-
skiptavinina. „Húsið er frekar lítið
svo það er ekki mikið pláss fyrir
einhverja almennilega veitingasölu.
Við erum að einblína á kaffi númer
eitt, tvö og þrjú og fólk er almennt
ánægt með það.“
Tveir mánuðir eru síðan kaffi-
húsið opnaði og hefur það verið
vel sótt bæði af ferðamönnum
og Grundfirðingum. „Heima-
mennirnir eru duglegir að koma til
að fá sér kaffibolla en við erum líka
að selja kaffibaunir í pokum og það
er mjög vinsælt að kaupa það til að
hella upp á heima hjá sér eða gefa
í gjafir.“
gbþ/Ljósm. gbþ
Í þessari vél eru kaffibaunirnar ristaðar. Vélin stendur í aðalrými kaffihússins.
Í kjallara hússins er búið að gera fallegt rými fyrir gesti til að tylla sér.