Skessuhorn - 24.08.2022, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 202224
Gengið hefur verið frá samkomu-
lagi á milli Háskólans á Hólum og
FISK Seafood ehf. á Sauðárkróki
um nýtt húsnæði fyrir Fiskeldis-
og fiskalíffræðideild skólans. Starf-
semin hefur um langt árabil verið
rekin með stuðningi FISK Seafood
í húsnæði félagsins á Sauðárkróki
en mun á næsta ári færast í tæplega
tvö þúsund fermetra í nágrenni
skólans í Hjaltadal. Húsnæðið var
áður í eigu FISK Seafood en hefur
nú verið gefið skólanum ásamt
myndarlegum fjárstyrk til þess að
flytja búnað deildarinnar og koma
honum fyrir í nýjum húsakynnum.
„Með þessu undirstrikar FISK
Seafood vilja sinn til þess að styðja
áfram við bakið á þeirri mikilvægu
starfsemi sem háskólinn starfrækir
á sviði rannsókna og kennslu,“
segir í tilkynningu frá Háskólanum
á Hólum og FISK Seafood.
FISK Seafood áformar umtals-
verðar byggingarframkvæmdir
vegna nýs hátæknifrystihúss og
fiskvinnslu á athafnasvæði sínu við
höfnina á Sauðárkróki. Á meðal
mannvirkja sem þurfa að víkja er
húsnæði sem skólinn hefur haft
afnot af án endurgjalds í tæpa
tvo áratugi. Aðstaðan sem FISK
Seafood hefur nú gefið skól-
anum hýsti áður bleikjueldi Hóla-
lax í Hjaltadal sem var í eigu FISK
Seafood en hefur nú verið lagt af.
Bindur félagið vonir við að þessi
rúmgóðu húsakynni geti nýst skól-
anum um langa framtíð.
Hólmfríður Sveinsdóttir, nýráð-
inn rektor Háskólans á Hólum, seg-
ist afar þakklát fyrir þessa höfðing-
legu gjöf: „Það hefur auðvitað verið
skólanum afar dýrmætt að hafa
getað rekið starfsemi deildarinnar
undir þessu þaki FISK Seafood á
Háeyri í þennan langa tíma. Um
mitt næsta ár verða þau þáttaskil að
við flytjum deildina í eigið húsnæði
í nágrenni skólans sem er mikilvægt
skref í áttina að framtíðaráformum
um byggingu á nýju kennslu- og
rannsóknahúsnæði á Sauðárkróki
fyrir starfsemi Fiskeldis- og fiska-
líffræðideildarinnar.“
Friðbjörn Ásbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri FISK Seafood:
„Þetta er sóknarsinnað samkomu-
lag fyrir báða aðila. Skólinn getur
haldið áfram að byggja upp þessa
mikilvægu deild án óvissu um hús-
næðismál hennar á næstu árum og
við höldum áfram að þróa aðstöðu
okkar á Háeyrinni til móts við nýjar
kröfur og nauðsynlega samkeppnis-
hæfni. Með þessu framlagi okkar
getum við áfram litið á okkur
sem öflugan bakhjarl kennslu- og
vísinda starfs Hólaskóla sem skiptir
þjóðina alla miklu máli,“ segir Frið-
björn í tilkynningu.
mm
Frá og með deginum í dag eru allir
grunnskólar á Vesturlandi byrj-
aðir vetrarstarf sitt. Síðasta skóla-
setningin er í dag í Stykkishólmi.
Meðfylgjandi mynd var tekin í gær-
morgun í skólastofunni hjá 6. bekk
í Brekkubæjarskóla á Akranesi.
Þar var lestrartími og krakkarnir
áhugasamir að vera byrjaðir.
mm/ Ljósm. vaks
Segja má að skortur sé á gisti-
plássi á Akranesi í ljósi þess að
ekkert hótel er rekið í þessu tæp-
lega átta þúsund manna sam félagi.
Nokkur farfuglaheimili eru rekin
í bænum og einnig stök herbergi í
heimagistingu. Skammt frá bæjar-
mörkunum, á Móum í Hvalfjarðar-
sveit, hefur nú verið fjölgað smá-
hýsum til útleigu og eru nú sjö tals-
ins. Nýting á þeim hefur verið afar
góð í sumar og gott útlit með bók-
anir fyrir haustið. Allar nánari upp-
lýsingar um þjónustuna eru á bók-
unarsíðum undir Móar Guest-
house. mm
Matvælaráðuneytið úthlutaði í síð-
ustu viku 584,6 milljónum króna úr
Matvælasjóði. Alls hljóta 58 verk-
efni styrki að þessu sinni, en 211
umsóknir bárust sjóðnum. Um 5%
verkefnastyrkja voru tengdir Vestur-
landi, en í öllum tilfellum voru það
styrkir sem að einhverju leyti tengj-
ast öðrum landshlutum einnig.
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja
þróun og nýsköpun við framleiðslu
og vinnslu matvæla og hliðar-
afurða úr landbúnaðar- og sjávar-
afurðum. Áhersla er á nýsköpun,
sjálfbærni, verðmætasköpun og
samkeppnishæfni íslenskrar mat-
væla. Sjóðnum er einnig heimilt að
styðja við vöruþróun og markaðs-
sókn á erlendum mörkuðum. Sjóð-
urinn fylgir eftir heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna. Í þessum til-
gangi eru styrkt verkefni og rann-
sóknir einstaklinga og lögaðila.
Meðal þeirra verkefna sem fengu
úthlutun má nefna:
• Hringrásarhænur í bak-
görðum
• Þróa sælkeravöru úr lamba- og
kindaslögum
• Markaðsátak í útflutningi á
íslensku viskýi
• Aukin bragðgæði og áferð
íslensks fisks með hæg-
meyrnun
• Visthæfing landeldis
• Bætiefnadrykkir með
íslenskum þörungum
• Eftirlit og upprunavottun fyrir
íslenskar saltfisksfurðir
• Próteinframleiðsla úr grasi
• Frumþróun bragðefna úr
þangi fyrir austurlenskan mat
• Viðskiptaáætlun fyrir mjólkur-
fé og sauðaostagerð
• Folaldajerky og -hrápylsur
• Verðmætasköpun úr hliðar-
afurðum bjórgerðar
Á réttri leið
sem matvælaland
„Sá sköpunarkraftur og sú áræðni
sem íslenskir matvælaframleið-
endur búa yfir er sérstakt ánægju-
efni og sýnir áþreifanlega að
Ísland er á réttri leið sem mat-
vælaland. Það gleður mig einnig
að sjá að hlutföll á milli kynja eru
nær jöfn,“ segir Svandís Svavars-
dóttir matvælaráðherra í tilkynn-
ingu sem send var úr ráðuneyti
hennar.
Fjórir sjóðir
Opnað verður fyrir umsóknir
fyrir næstu úthlutun úr Matvæla-
sjóði á vormánuðum 2023. Mat-
vælasjóður veitir styrki í fjórum
styrkjaflokkum: Báru, Keldu,
Afurð og Fjársjóði. Fyrir þá sem
vilja undirbúa umsókn er skil-
greining þeirra þannig:
Bára
Bára styrkir verkefni á hugmynda-
stigi. Styrkþegar geta verið fyrir-
tæki sem stofnuð eru á síðustu
fimm árum. Einnig frumkvöðlar
sem vilja þróa hugmynd, hráefni
eða aðferðir sem tengjast íslenskri
matvælaframleiðslu.
Kelda
Kelda styrkir verkefni sem miða
að því að afla nýrrar þekkingar
sem styður við markmið sjóðs-
ins um nýsköpun, sjálfbærni, verð-
mætasköpun og samkeppnishæfni
íslenskrar matvælaframleiðslu.
Afurð
Afurð styrkir verkefni sem komin
eru af hugmyndastigi en eru þó
ekki tilbúin til markaðssetningar.
Styrkveitingar miða að því að gefa
styrkþegum tækifæri til að móta og
þróa afurðir úr hráefnum sem falla
til við matvælaframleiðslu og stuðla
þar með að verðmætasköpun.
Fjársjóður
Fjársjóður styrkir verkefni sem hafa
það markmiði að styrkja markaðs-
innviði og stuðla að markaðssókn
afurða tengdum íslenskri mat-
vælaframleiðslu.
mm
Hús Hólalax mun verða nýtt fyrir Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólanum á Hólum.
FISK Seafood gefur Háskólanum
á Hólum húsnæði sitt í Hjaltadal
Grunnskólarnir
allir byrjaðir
Góð nýting á
smáhýsunum á Móum
Árlegum styrkjum úthlutað til þróunar matvæla