Skessuhorn - 24.08.2022, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 202228
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár TÖKUM AÐ OKKUR
AÐ HANNA
OG SETJA UPP
tímarit, dagblöð, bækur, ársskýrslur, auglýsingar, fréttabréf,
nafnspjöld, merkingar og allt sem þarf til að koma þínum
skilaboðum á framfæri.
Einnig vefsíður, vefborðar og auglýsingar, skjá auglýsingar
og annað fyrir stafræna birtingu.
Hafið samband á grafisk.smidja@simnet.is eða í síma 897 0203.
Grafísk Smiðja ehf. | Síðmúli 13 | Sími: 897 0203 | email : grafisk.smidja@simnet. is
Grafísk Smi ja
Dagur í lífi...
Nafn: Bogi Molby Pétursson
Fjölskylduhagir/búseta: Í sam-
búð með Ruth Einarsdóttur.
Stundum með fimm börnum og
þremur köttum.
Starfsheiti/fyrirtæki: Löggiltur
fasteignasali, LIND fasteignasala.
Starfsstöð í Kópavogi, Akranesi og
helling í bílnum.
Áhugamál: Íþróttir, útivera og
skemmtilegt fólk.
Dagurinn: 18.08.2022
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? 6.30. Opnaði augun.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Lýsi og súrkál, svo kaffi.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Klukkan 7:45. Gekk að
tölvunni.
Fyrstu verk í vinnunni? Skoða
pósthólfið og greiða úr því.
Hvað varstu að gera klukkan 10?
Svara tölvupóstum og símtölum.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Keyrði til Stykkishólms.
Hvað varstu að gera klukkan 14?
Skoða hús í Stykkishólmi og undir-
búa það til sölumeðferðar.
Hvenær hætt og það síðasta sem
þú gerðir í vinnunni? Klukkan
18. Svara tölvupóstum, svo slökkt
á tölvunni.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Reyndi að fara í sund í lokaðri
Jaðarsbakkalaug, gekk ekki!
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Steiktur fiskur, laukur, kar-
töflur, salat og remmi. Ég eldaði.
Hvernig var kvöldið? Fínt. Fékk
dauðþreyttan ánægðan öfgagolfara
í fangið og bjó um hana og söng
fyrir.
Hvenær fórstu að sofa? Sirka
klukkan 23.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að hátta?
Burstaði tennurnar.
Hvað stendur upp úr eftir
daginn? Bílferðin í blíðunni um
Snæfellsnes og Vesturland. Já og
vögguvísan.
Eitthvað að lokum? Elzkum og
virðum hvert annað.
Fasteignasala á Akranesi
Nú fer haustið í hönd og margir
huga að bústörfunum í því sam-
bandi. Eitt þeirra er berjatínsla.
Þótt berjagjafir náttúrunnar séu
misgóðar eftir veðurfari er þó
venjulegast alltaf hægt að nýta sér
rifsber til sultugerðar að hausti.
Hér á eftir fylgir uppskrift sem
Helga Karlsdóttir í Borgarnesi
fylgir í þeim efnum, en rifsberja-
hlaupið hennar þykir afar vel
heppnað. Uppskriftin á sér líklega
rætur fyrir norðan, en Helga er frá
Narfastöðum í Reykjadal.
Rifsberjahlaup
Setjið berin í pott og vatn í svo rétt
fljóti yfir og varla það. Upphaflega
var sagt að vatnið væri mátulegt
ef maður þrýsti lófa ofan á berin í
pottinum og þá sæist í vatnið en
það getur verið of mikið. Vatnið
ætti eiginlega að ná hálfa leið
miðað við berin.
Látið sjóða í 10 mínútur og síðan
nota grisju til að láta þetta síast
yfir nótt. Vigta sykur í jöfnu hlut-
falli við safann. Láta helminginn af
sykrinum í safann og sjóða í 10 mín-
útur. Setja helminginn af sykrinum
út í og sjóða aftur í 10 mínútur. Að
lokum er afurðin látin í krukkur
sem búið er að hreinsa vel. Það er
leiðinlegt að þurfa að sjóða aftur, en
ef það hjálpar við að sleppa við að
nota hleypi er það þess virði.
Athugið að ef berin eru vel
þroskuð er tryggast að setja bara
svolítið vatn í botninn svo ekki
þurfi að nota hleypi. Mikilvægt er
að láta bæði stilka og óþroskuð ber
fylgja með rauðu berjunum – það
hjálpar við að hlaupið hlaupi. gj
Tími rifsberja-
hlaupsins er núna
Rifsber sem bíða eftir að verða að hlaupi.