Skessuhorn - 24.08.2022, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 202230
Hvað er uppáhalds
hljóðfærið þitt?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Tónlistarskóla Borgarfjarðar)
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir
,,Langspil því það er svo þjóð-
legt og skemmtilegt“
Theodóra Þorsteinsdóttir
,,Mannsröddin og klarinett“
Ólafur Flosason
,,Óbó“
Sigfríður Björnsdóttir
,,Sinfóníuhljómsveit“
Árni Jónsson
,,Gítar“
Leyniskonur náðu frábærum
árangri á Íslandsmóti golfklúbba
50 ára og eldri en mótið fór fram
á Hólmsvelli í Leirunni 18.-20.
ágúst. Leyniskonur gerðu sér lítið
fyrir og náðu þriðja sætinu eftir
sigur gegn Golfklúbbi Kópavogs-
og Garðabæjar. Árangurinn er sér-
staklega ánægjulegur þar sem liðið
sigraði í 2. deild fyrir ári síðan og
kepptu þær því sem nýliðar í efstu
deild í ár. Sveitina skipuðu ; Ruth
Einarsdóttir (sem var einnig liðs-
stjóri), Elísabet Valdimarsdóttir,
Helga Rún Guðmundsdóttir, María
Björk Sveinsdóttir, Ragnheiður
Jónasdóttir, Rakel Kristjánsdóttir,
Díana Carmen Llorens og Jóna
Björg Olsen.
vaks
Hvíti riddarinn og Reynir Hellis-
sandi mættust í lokaumferð A rið-
ils í 4. deild karla í knattspyrnu á
föstudagskvöldið og fór leikurinn
fram í Mosfellsbæ. Hvíti riddarinn
sem hefur verið í efsta sæti riðilsins
í allt sumar voru fjórum mörkum
yfir í hálfleik og bættu við þremur í
síðari hálfleik, lokastaðan stórsigur
Mosfellinga, 7-0.
Reynir lauk leik á Íslandsmótinu
í neðsta sæti riðilsins með aðeins
þrjú stig, vann einn leik og tap-
aði þrettán og markatalan var
26:87. Ingvar Freyr Þorsteinsson
var markahæstur með tíu mörk,
Kristófer Máni Atlason skoraði
sjö mörk og Bárður Jóhönnuson
fjögur. Þjálfari liðsins er Brynjar
Kristmundsson en hann er einnig
aðstoðarþjálfari Guðjóns Þórðar-
sonar hjá Víkingi Ólafsvík sem
leikur í 2. deildinni í sumar.
vaks
KFG og Kári áttust við í 3. deild
karla í knattspyrnu á föstudags-
kvöldið og fór leikurinn fram á
Samsung vellinum í Garðabæ.
KFG er í harðri baráttu um að
komast upp í 2. deild á meðan Kári
siglir lygnan sjó um miðja deild.
Káramenn byrjuðu betur í leiknum
og komust yfir eftir hálftíma leik
með marki frá Gabríel Þór Þórðar-
syni en sjö mínútum síðar jafnaði
Jóhann Ólafur Jóhannsson fyrir
heimamenn og staðan jöfn í hálf-
leik, 1-1.
Axel Freyr Ívarsson kom Kára
aftur yfir í leiknum eftir rúmlega
tíu mínútna leik í þeim seinni en
Ólafur Bjarni Hákonarson jafnaði
metin fyrir KFG á 67. mínútu og
staðan jöfn á ný. Ekki tókst leik-
mönnum liðanna að skora sigur-
markið það sem eftir lifði leiks og
jafntefli staðreynd, lokastaðan 2-2.
Heilmikil spenna er á toppi og
botni deildarinnar. Í efri hlut-
anum berjast KFG, Sindri, Dalvík/
Reynir og Víðir um sætin tvö sem
gefa sæti í 2. deild á meðan ÍH, KH
og Vængir Júpiters eru í baráttu
um það að reyna að sleppa við fall í
fjórðu deildina.
Næsti leikur Kára er næsta mið-
vikudag gegn Augnablik sem er
með 24 stig eins og Kári í 6. og 7.
sæti deildarinnar. Leikurinn verður
í Akraneshöllinni og hefst klukkan
19.15.
vaks
Víkingur Ólafsvík lék tvo leiki
í liðinni viku í 2. deild karla í
knattspyrnu og var sá fyrri á móti
Þrótti Reykjavík síðasta miðviku-
dag en leikurinn fram á Ólafsvíkur-
velli. Þróttur komst yfir í leiknum
á 20. mínútu með marki frá Ernest
Slupski en Andri Þór Sólbergsson
jafnaði metin rétt fyrir leikhlé og
staðan 1-1 í hálfleik.
Víkingur var mun sterkari í
byrjun seinni hálfleiks og var
kominn í 3-1 eftir tæpar fimmtán
mínútur. Fyrst skoraði Luis
Romero Jorge fyrir heimamenn
og skömmu síðar var Andri Þór
aftur á ferðinni og staðan orðin
ansi vænleg fyrir Víking. En þá
tók Þróttarinn Hinrik Harðarson
til sinna ráða og jafnaði leikinn
með tveimur mörkum á fjögurra
mínútna kafla þegar stundarfjórð-
ungur var eftir af leiknum. Það
sem eftir lifði leiks reyndu bæði
lið að ná sigurmarkinu en jafntefli
niðurstaðan, 3-3.
Magni og Víkingur mættust svo
á sunnudaginn og fór viðureignin
fram fyrir norðan á Grenivíkur-
velli. Leikurinn byrjaði ekki vel
fyrir gestina því á fyrstu mínút-
unni náðu heimamenn forystunni
með marki Guðna Sigþórssonar
en Andri Þór Sólbergsson jafn-
aði metin á 19. mínútu með sínu
tíunda marki í deildinni í sumar.
Luis Romero Jorge kom síðan
Víkingi yfir rétt fyrir hálfleik og
staðan 1-2 fyrir gestina.
Fjörið hélt áfram í seinni hálf-
leik og Kristinn Þór Rósbergs-
son jafnaði metin á ný fyrir Magna
eftir rúmlega klukkustundar leik.
Mitchell Reece kom síðan Víkingi í
forystu átta mínútum fyrir leikslok
en Magnamenn voru snöggir til og
mínútu síðar var staðan aftur orðin
jöfn með marki Alexanders Ívans
Bjarnasonar. Ekki voru fleiri mörk
skoruð í leiknum og jafntefli niður-
staðan í markaleik, 3-3.
Þegar fjórar umferðir eru eftir af
deildinni virðist nokkuð ljóst hvaða
liða fara upp um deild og hverjir
falla. Njarðvík er komið upp og
Þróttur hefur sjö stig á Völsung
sem er í þriðja sætinu. Þá hafa Vík-
ingur og KFA sjö stig á lið Reynis
Sandgerðis sem er í næst neðsta
sætinu með ellefu stig og Magna
sem er í botnsætinu með tíu stig.
Næsti leikur Víkings er á móti
KF næsta laugardag á Ólafsvíkur-
velli og hefst klukkan 16. vaks
Úr leik Hvíta riddarans og Reynis á föstudagskvöldið. Ljósm. tfk
Stórtap í síðasta leik
Reynis í sumar
Byrjunarlið Kára í leiknum á móti KFG. Ljósm. Kári
Topplið KFG náði
jafntefli gegn Kára
Leyniskonur voru hæstánægðar með bronsið. Frá vinstri: Díana Carmen, Ragn-
heiður, Rakel, María Björk, Elísabet, Ruth, Jóna Björg og Helga Rún. Ljósm. Leynir
Leynir í þriðja sæti í
golfi 50 ára og eldri
Luis Romero Jorge skoraði í leiknum á móti Magna. Hér í fyrri leik liðanna í sumar.
Ljósm. af
Víkingur Ó. gerði tvö
jafntefli í markaleikjum