Skessuhorn - 24.08.2022, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2022 31
Loksins kom að því! Eftir 119 eyði-
merkurdaga án sigurs í Bestu deild
karla í knattspyrnu náðu Skaga-
menn sigri en þeir unnu síðast leik
í deildinni í sumar gegn Víkingi
Reykjavík í 2. umferð deildarinnar
24. apríl. Í millitíðinni var Baráttu-
dagur verkalýðsins, Mæðradagur-
inn, Uppstigningardagur, Hvíta-
sunnudagur, Sjómannadagurinn,
Þjóðhátíðardagurinn, Jónsmessa,
Írskir dagar, Verslunarmanna-
helgin, Menningarnótt og ýmislegt
annað sem enginn vill muna sem
hefur á dagana drifið á þessum tíma
en þá að leiknum. Fyrir leik ÍA og
ÍBV í dag höfðu Skagamenn tapað
sjö leikjum í röð í deildinni og nálg-
uðust vafasamt met en gleymum
því bara. Kristian Lindberg skor-
aði eina mark fyrri hálfleiks þegar
hann fylgdi eftir skoti Gísla Laxdals
Unnarssonar eftir rúmlega hálftíma
leik. Annars var fyrri hálfleikurinn
nokkuð fjörugur og kaflaskiptur,
heimamenn voru sterkari fyrri
hlutann og gestirnir þann seinni en
staðan í leikhléi 1-0 fyrir ÍA.
Seinni hálfleikur var varla byrj-
aður þegar Andri Rúnar Bjarna-
son hafði jafnað fyrir Eyjamenn og
allt orðið jafnt. Liðin skiptust á að
sækja næsta hálftímann en síðasta
stundarfjórðunginn gerðu Skaga-
menn sig mun líklegri til að ná
sigri. Fjórum mínútum fyrir leiks-
lok gerði Árni Marinó Einarsson
markvörður ÍA vel þegar hann varði
frá Guðjóni Erni Hrafnkelssyni en
tveimur mínútum síðar kom sigur-
mark leiksins. Hinn 16 ára gamli
Haukur Andri Haraldsson var
réttur maður á réttum stað á réttum
tíma þegar boltinn barst til hans
innan vítateigs eftir fyrirgjöf Gísla
Laxdals og kláraði Haukur Andri
vel færið. Smá hiti var í mönnum
á lokamínútunum en heimamenn
héldu þetta út og niðurstaðan frá-
bær 2-1 sigur Skagamanna.
Staðan í neðri hluta deildar-
innar er nú þannig að ÍBV er í 9.
sæti með 15 stig eftir 18 leiki, FH
er með 14 stig, Leiknir R. með 13
stig og ÍA með ellefu stig í botn-
sætinu. Næsti leikur Skagamanna
er á móti Keflavík næsta sunnudag
á HS Orku vellinum í Keflavík og
hefst klukkan 17. vaks
ÍA lék tvo leiki í liðinni viku í 2.
deild kvenna í knattspyrnu og var
fyrri leikurinn gegn Hamri á Akra-
nesvelli þarsíðasta þriðjudag. Það
má með sanni segja að Skagakonur
hafi verið á eldi í leiknum því þær
skoruðu alls ellefu mörk í öllum
regnbogans litum, lokatölur 11-0
fyrir ÍA. Fjörið hófst strax á þriðju
mínútu þegar Marey Edda Helga-
dóttir skoraði fyrsta mark leiksins
og Anna Þóra Hannesdóttir bætti
við öðru marki á 21. mínútu. Ylfa
Laxdal Unnarsdóttir var næst á
blaði eftir 26 mínútna leik og þær
Unnur Ýr Haraldsdóttir og Niko-
lina Musto sáu til þess að staðan í
hálfleik var 5-0 fyrir ÍA.
Brynja Valgeirsdóttir leikmaður
Hamars varð fyrir því óláni í byrjun
síðari hálfleiks að skora sjálfsmark
áður en Samira Suleman skoraði
sjöunda mark leiksins. Erla Kar-
itas Jóhannesdóttir skoraði mark
úr víti tæplega tuttugu mínútum
fyrir leikslok og þá var komið að
þætti varamannsins Ernu Bjartar
Elíasdóttur sem hafði komið inn á
67. mínútu. Hún setti þrennu á 15
mínútna kafla undir lok leiksins og
innsiglaði stórsigur ÍA.
ÍA og KÁ mættust síðan á
laugardaginn í síðustu umferðinni
og fór leikurinn fram á Akranes-
velli. Skagakonur byrjuðu af krafti í
leiknum því eftir rúmlega fimmtán
mínútna leik var staðan orðin 3-0
fyrir ÍA. Sunna Rún Sigurðardóttir
skoraði fyrstu tvö mörkin áður en
fyrirliðinn Bryndís Rún Þórólfs-
dóttir skoraði þriðja markið og sitt
sjöunda í deildinni í sumar.
Í byrjun seinni hálfleiks bætti
Vala María Sturludóttir við fjórða
markinu og það var síðan Hugrún
Stefnisdóttir sem skoraði fimmta
og síðasta mark leiksins, lokatölur
5-0 fyrir ÍA. Markaskorarar ÍA í
leiknum voru í yngri kantinum
fyrir utan Bryndísi Rún sem er
fædd árið 1997. Hugrún er fædd
árið 2007 og þær Sunna Rún og
Vala María eru fæddar 2008, efni-
legar stelpur þar á ferð.
ÍA endaði í fimmta sæti í
deildinni í sumar með 21 stig í
ellefu leikjum með markatöluna
40:19. Í efsta sæti var Fram með
28 stig, Völsungur með 27 stig,
Grótta og ÍR í þriðja og fjórða sæti
með 26 stig og KH í sjötta sæti
með 13 stig. Nú tekur við einföld
umferð þessara sex liða um tvö sæti
sem gefa þátttökurétt í Lengju-
deildinni á næsta tímabili. Liðin
taka með sér stigin úr deildar-
keppninni og því á ÍA erfitt verk-
efni fyrir höndum að saxa á hin
liðin í stigasöfnun.
Úrslitakeppnin hefst strax á
föstudaginn þegar Skagakonur
fara í heimsókn á Vivaldivöllinn og
spila við Gróttu en í fyrri leik lið-
anna í lok júlí burstaði Grótta lið
ÍA 6-1. Leikurinn hefst klukkan
19.15 og hvetjum við stuðnings-
menn ÍA að mæta á leikinn og
styðja Skagakonur til dáða.
vaks
Hörður Í. og Skallagrímur áttust við
í lokaumferðinni í A riðli 4. deildar
karla í knattspyrnu á laugardaginn
og var leikurinn á Skeiðisvellinum í
Bolungarvík. Viktor Már Jónasson
kom Skallagrími yfir eftir átta mín-
útna leik og Viktor Ingi Jakobsson
bætti við öðru marki úr víti á 17.
mínútu fyrir gestina. Gabríel Heið-
berg Kristjánsson fékk sitt annað
gula spjald og þar með rautt eftir
rúman hálftíma leik og heimamenn
því einum færri, staðan í hálfleik
0-2 fyrir Skallagrími.
Davíð Hjaltason minnkaði þó
muninn fyrir Hörð á 62. mínútu og
það var ekki fyrr en á lokamínút-
unni sem Viktor Már innsiglaði
sigur gestanna, lokastaðan 1-3.
Jón Guðni Pétursson leikmaður
Harðar fékk síðan sitt annað gula
spjald og rautt á lokamínútunni á
meðan Viktor Már og Viktor Ingi
sluppu með tvö gul spjöld.
Skallagrímur endaði í þriðja sæti
riðilsins með 33 stig og var aðeins
tveimur stigum frá Árbæ sem var
í 2. sæti og tryggði sér um leið
sæti í úrslitakeppninni. Súrt fyrir
Skallagrímsmenn sem unnu ellefu
leiki og töpuðu aðeins þremur og
markatalan var 55:14. Markahæstir
hjá Skallagrími í sumar voru þeir
Elís Dofri Gylfason sem var með
tíu mörk, Sergio Fuentes Jorda
var með sjö mörk og þeir Sigurjón
Logi Bergþórsson, Sölvi Snorra-
son og Viktor Ingi voru með fimm
mörk hver. Spilandi þjálfari liðsins
var Sölvi G Gylfason og hefur hann
tilkynnt leikmönnum Skallagríms
að hann verði ekki þjálfari liðsins í
5. deildinni á næsta tímabili.
vaks
Skallagrímur með
sigur í lokaleiknum
Sölvi Gylfa er hættur sem þjálfari Skallagríms. Ljósm. vaks
Gísli Laxdal átti þátt í báðum mörkum ÍA. Hér leik á móti KA fyrr í sumar. Ljósm.
Lárus Árni Wöhler
Afar kærkominn
sigur Skagamanna
Skagakonur eiga erfitt verkefni fyrir höndum. Ljósm. sas
Skagakonur unnu stóra sigra á Hamri og KÁ