Fréttablaðið - 12.11.2022, Síða 6

Fréttablaðið - 12.11.2022, Síða 6
Gert er ráð fyrir að Þórður, Arnar og Páll gefi skýrslur fyrir dómi 90% af öllum demöntum í heiminum eru slípuð í borginni Surat á Ind- landi. kristinnhaukur@frettabladid.is DÓMSMÁL Þórður Snær Júlíusson ritstjóri og Arnar Þór Ingólfsson blaðamaður Kjarnans krefjast hvor um sig 1,5 milljóna króna frá Páli Vil- hjálmssyni kennara, auk málskostn- aðar, fyrir ærumeiðandi ummæli á bloggsíðu hins síðastnefnda. Þá er þess krafist að tvö ummæli verði dæmd dauð og ómerk að sögn Vil- hjálms H. Vilhjálmssonar, lögmanns Kjarnamanna. Ærumeiðingamálið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Hvorki blaðamennirnir né Páll voru viðstaddir þinghaldið. „Ég held að það sé borin von,“ sagði Sigurður G. Guðjónsson, lög- maður Páls, þegar dómari spurði hvort möguleiki væri á sáttum milli deiluaðila. Vilhjálmur tók undir það fyrir hönd sinna manna. Ummælin sem birt voru á blogg- síðu Páls lutu að því að Þórður og Arnar hefðu komið að því að byrla Páli Steingrímssyni, skipstjóra Sam- herja, sem Stundin tengdi við svo- kallaða skæruliðadeild Samherja, ólyfjan. Þórður og Arnar hafa bent á að með ummælunum séu þeir vændir um hegningarlagabrot og það geti þeir ekki sætt sig við. Mál Páls Steingrímssonar er til rannsóknar hjá lögreglunni á Norð- urlandi eystra. Voru Vilhjálmur og Sigurður sammála um það að vend- ingar í því máli, til dæmis niðurfell- ing, gæti haft áhrif á þetta mál. Að öðru leyti væri gagnaöf lun lokið og málsaðilar tilbúnir í aðal- meðferð í lok febrúar. Aðeins er gert ráð fyrir að Þórður, Arnar og Páll gefi skýrslur fyrir dómi. n Krefja bloggara um þrjár milljónir króna fyrir ærumeiðingar Sigurður G. Guðjónsson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Minjastofnun Íslands úthlutar styrkjum úr fornminjasjóði. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og rannsóknum á forn- minjum. Úthlutað er styrkjum til eftirfarandi verkefna: • Rannsókna á fornminjum (fornleifum og forngripum) • Miðlunar upplýsinga um fornminjar • Varðveislu og viðhalds fornminja Sjóðnum er jafnframt heimilt að veita styrki til viðhalds annarra menn- ingarminja sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi, t.d. minja sem njóta ekki friðunar á grundvelli aldurs en teljast hafa varðveislugildi, svo sem skipa, báta og annarra samgöngutækja. Við næstu úthlutun verður sérstaklega horft til umsókna er lúta að minjum í hættu vegna náttúruvár eða að skilum á frumgögnum úr fornleifauppgröftum sem fram fóru fyrir árið 2013. Umsóknir eru metnar með tilliti til vísindalegs og menningarsögulegs gildis og þeirrar stefnu sem mörkuð hefur verið í minjavernd, ásamt gildi þeirra fyrir varðveislu þjóðararfleifðarinnar. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna á heimasíðu Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is. Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar 2023. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun. Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu unnin í samræmi við lög nr. 80/2012 og reglur stofnunarinnar og í samræmi við innsend umsóknargögn. Suðurgötu 39, 101 Reykjavík Sími: 570 1300 www.minjastofnun.is fornminjasjodur@minjastofnun.is Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr fornminjasjóði fyrir árið 2023 Millimál í fernu VÍTAMÍN & STEINEFNI PRÓTEIN GLÚTENS LAKTÓSAORKA ÁN ÁN Samkomulag að undirlagi Sameinuðu þjóðanna um að stöðva flæði svonefndra blóð- demanta, var gert 2013. Ísland er eina vestræna ríkið sem enn á ekki aðild að því. helgisteinar@frettabladid.is VIÐSKIPTI Blóðdemantar eru skil- greindir sem hrádemantar sem eiga sér uppruna á átakasvæðum. Ágóði af þeim er notaður til að fjármagna of beldisverk af hálfu skæruliða- hreyfinga eða hryðjuverkasamtaka sem ráðast gegn lögmætum ríkis- stjórnum. Í kjölfar margra áratuga borgara- styrjalda í Afríku ákváðu Sam- einuðu þjóðirnar að undirrita hið svokallaða Kimberley-ferli árið 2013. Hugmyndin var að innleiða vegabréfakerfi fyrir hvern og einn demant til að geta rakið uppruna. Þjóðirnar sem taka þátt í ferlinu gæta þess að þeir demantar sem eru keyptir eða seldir, fjármagni ekki skæruliðahreyfingar. Lögmætt skír- teini verður síðan að fylgja öllum demöntum sem fluttir eru úr landi. Að Kimberley-ferlinu standa 56 þjóðir og er Evrópusambandið talið sem einn aðili. Ísland er eina vest- ræna þjóðin sem er ekki með. Elke Ceulemans, talsmaður Kimberley-stjórnarinnar, sagði í fyrirspurn um mögulega þátttöku Íslands, að allar þjóðir sem taka þátt í ferlinu verði fyrst að uppfylla kröf- ur vottunarkerfisins og geta síðan sent inn umsókn um þátttöku sem er skoðuð af sérstakri nefnd áður en þjóðin er samþykkt sem meðlimur. „Eftir minni bestu vitund þá hefur Ísland ekki sýnt neinn áhuga á að gerast þátttakandi að ferlinu,“ segir Elke. Samtökin Global Witness hafa bent á að vandamálið sé mun víð- tækara en bara skæruliðahernaður. Stríðsglæpir tengdir demöntum geta einnig átt sér stað undir forsjá ríkisstjórna og hefur iðnaðurinn oft verið bendlaður við barnaþrælkun og umhverfisspjöll. A nna Lúðv ík sdótt ir, f ram- kvæmdastjóri hjá Íslandsdeild Amnesty, segir að mannréttinda- samtök á Íslandi tækju því fagnandi ef íslensk stjórnvöld myndu stíga fyrstu skrefin í að auka mannrétt- indi í heiminum. „Við viljum einnig sjá að fyrirtæki stígi fram og virði mannréttindi, sem er eitthvað sem er ekki endi- lega valkvætt fyrir þau,“ segir Anna. Hingað til hefur það verið undir íslenskum gullsmiðum og skart- gripaverslunum komið, að tryggja að vörur þeirra séu ekki af átaka- svæðum. Flestir demantar hér eru keyptir í Antwerpen í gegnum danska tengi- liðafyrirtækið Aktiv Guld. Unnur Eir Björnsdóttir gullsmið- ur segir að það sé skýr stefna hjá skartgripaverslun sinni að selja allar vörur með góðri samvisku. Allt sé keypt hjá lögmætum fyrirtækjum. „Við viljum alls ekki blóðdem- anta í okkar verslunum og þess vegna höfum við alltaf verslað við þetta danska fyrirtæki. Við hjá Félagi íslenskra gullsmiða viljum efla okkar fag og hafa allt 100 pró- sent,“ segir Unnur. Um 90 prósent af öllum dem- öntum í heiminum eru slípaðir í borginni Surat á Indlandi. Sam- kvæmt fréttablaðinu Times of India er þriðjungi af öllum dem- öntunum smyglað þangað ólöglega frá Angóla, Fílabeinsströndinni, Lýðveldinu Kongó eða Simbabve. n Ísland sker sig úr varðandi útilokun á blóðdemöntum Saga demanta og verðmæti þeirra: n Árið 1888 var fyrirtækið DeBeers stofnað í Suður- Afríku. n Á fjórða áratug seinustu aldar innlimar formaður DeBeers einokunarstefnu og takmarkar flæði demanta til að stjórna bæði framboði og eftirspurn. n Slagorðið „Demantur er að eilífu“ kom út úr árangurs- ríkri auglýsingaherferð DeBeers sem náði að jafn- gilda demanta við eilífa ást. DeBeers seldi svo steinana sína á uppsprengdu verði þar sem fyrirtækið hafði búið til nokkurs konar vegatálma fyrir hjónaband. n Demantar eru ein auð- veldasta afurð í heimi til að smygla. Þeir eru agnarsmáir og finnast ekki í málm- leitartækjum. n Mörg ríki í Afríku þar sem demantar finnast, eiga þegar við spillingarvanda- mál að stríða og jafnvel minnstu steinar geta skilað inn miklum gróða. Demantaiðnaðurinn hefur oft verið bendlaður við barnaþrælkun og umhverfisspjöll. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 6 Fréttir 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.