Fréttablaðið - 12.11.2022, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 12.11.2022, Blaðsíða 18
ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ NEGLA TÍMA Í DEKKJASKIPTI SKÚTUVOGI | SMIÐJUVEGI | HJALLAHRAUNI | FITJABRAUT Frá toppnum á botninn og aftur upp Hörður Snævar Jónsson hordur @frettabladid.is Ég held að fólk átti sig ekki á því sem horfir á þetta utan frá, hvað sjálfstraust og gleði skiptir miklu máli. Að líða vel utan vallar verður til þess að það gengur vel innan vallar. Arnór Sigurðsson er 23 ára gamall og hefur spilað 23 A-landsleiki. Arnór Sigurðsson skaust hratt upp á stjörnuhimininn árið 2018, allt virtist ætla að falla með þessum hæfileikaríka íþróttamanni. Í Rússlandi missti hann hins vegar flugið og mátti þola gagnrýni. Hann hefur náð vopnum sínum aftur og hæfileikar hans hafa skinið skært í Svíþjóð og með íslenska landsliðinu undan- farna mánuði. FÓTBOLTI Þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára gamall hefur Arnór Sigurðs- son upplifað í raun allar hliðar atvinnumennskunnar. Hann varð að stjörnu á einni nóttu árið 2018 og var seldur fyrir metfé frá IFK Norr- köping í Svíþjóð til CSKA Moskvu í Rússlandi. Þar byrjaði hann frábær- lega og skoraði meðal annars gegn Real Madrid í Meistaradeildinni. Með íslenska landsliðinu fann hann ekki taktinn og það fór að halla undan fæti í Rússlandi. Hann var lánaður til Venezia á Ítalíu og upp- lifði þar erfiða tíma. Arnór snéri aftur til IFK Norr- köping í sumar og hefur síðan þá náð vopnum sínum aftur. Hann hefur spilað frábærlega í Svíþjóð og með íslenska landsliðinu hefur hann sýnt sínar bestu hliðar undan- farna mánuði. „Tímabilið núna og skrefið til Svíþjóðar hefur heppnast vel, mikilvægt var að finna gleðina. Njóta þess að spila fótbolta aftur, ég vissi nákvæmlega hvað ég get gert innan vallar og þegar gleðin kemur þá fylgir hitt ,“ segir Arnór, sem heldur á sunnudag til Litáen til móts við íslenska landsliðið. Endurkoman til Norrköping hefur gengið vonum framar. Arnór hefur spilað ellefu deildarleiki, skorað sex mörk og lagt upp fjögur. „Það var stór ástæða þess að ég valdi að koma til félagsins, ég vissi hvað ég væri að koma inn í og hvaða hlutverk ég fengi. Ég vissi í hvaða aðstæður ég var að koma inn í og gat bara einbeitt mér að fótboltanum.“ Erfiðir tímar Arnór segist hafa lært mikið af erf- iðum tímum fótboltans. Hann fór til Venezia á Ítalíu á síðasta ári þar sem allt gekk á afturfótunum. „Síðustu mánuðirnir hjá CSKA voru ekki eins og maður vildi hafa það, þá ákvað ég að taka skrefið til Ítalíu í von um betri tíma. Það var erfitt þar utan vallar, að halda sér á tánum og fara á æfingar og leggja sig allan fram. Því mér leið eins og það breytti engu hvort ég væri góður eða ekki, ég fékk ekkert að spila. Það hefur áhrif á sjálfstraustið og þess háttar.“ „Ég held að fólk átti sig ekki á því sem horfir á þetta utan frá, hvað sjálfstraust og gleði skiptir miklu máli. Að líða vel utan vallar verður til þess að það gengur vel innan vallar.“ Arnór er þakklátur fyrir þær áskoranir sem hann hefur þurft að takast á við. „Ég hef prófað að fara upp og svo kemur mótlætið, ég vissi að það kæmi. Ég fór það hratt upp að ég vissi að þetta kæmi og ég fékk alveg harkalegt mótlæti á Ítalíu. Núna þegar ég horfi til baka á þennan tíma, þá var það mjög lærdóms- ríkt. Þetta er góð reynsla þó hún hafi verið erfið. Ef þetta kemur aftur þá veit ég hvernig er best að tækla svona mál. Ég tel mig vera með reynslu í alls konar aðstæðum þrátt fyrir ungan aldur.“ Er ekki að stressa sig Arnór er samningsbundinn CSKA Moskvu í Rússlandi til ársins 2024 en er á láni hjá Norrköping fram á næsta sumar. Hann segir óljóst hvað gerist í framtíðinni en fjallað hefur verið um að sænska félagið vilji kaupa Arnór frá Rússlandi. „Það tók tvo leiki að koma sér inn í þetta og svo komu mörkin og stoðsendingar, við vorum ekki að vinna marga leiki. Ég var í núinu og reyndi að hjálpa liðinu að gera eins vel og hægt var. Það er nánast töluð íslenska í klefanum, hinir þurfa að læra okkar tungumál. Við erum með góðan hóp og Íslending- arnir eru góðir, við náum allir vel saman. Það er góð stemning þó að gengið hafi ekki verið eins gott og allir vildu,“ segir Arnór, en auk hans eru Arnór Ingvi Traustason, Andri Lucas Guðjohnsen, Ari Freyr Skúla- son og Jóhannes Kristinn Bjarna- son, í herbúðum félagsins. Hann veit ekki hvað framtíð- in ber í skauti sér. „Það verður að koma í ljós, ég er ekki að stressa mig á þessu. Ég er á láni hérna fram á næsta sumar, með góðri frammi- stöðu þá kemur eitthvað gott. Það er ekkert stress hjá mér.“ Spenntur fyrir landsliðinu A r n ó r h e f u r í í s l e n sk a l a nd s - liðinu fundið takt sinn undanfarna m á nu ði , h a n n vonast til þess að negla sér sæti í byrjunarliðinu en undan- keppni Evrópumótsins hefst í mars á næsta ári. Lokaundirbúningur fyrir það verkefni er í næstu viku er liðið keppir um Baltic bikarinn í Litáen. „Það eru spennandi tímar hjá landsliðinu, þetta eru tveir leikir til að undirbúa undankeppni EM. Ég hef verið að spila vel undanfarið með landsliðinu og fengið tæki- færi, ég fer inn í þetta verkefni mjög jákvæður. Það er gott að fá Sverri Inga (Ingason) og Jóhann Berg (Guð- mundsson)  inn aftur, það verður gaman að fara í þetta verkefni. Það er markmiðið að negla sér sæti í byrjunar- liðinu, maður vill spila og ég veit hvað Arnar Þór vill. Hann horfir í liðsheildina og hún skiptir miklu máli,“ segir þessi öflugi piltur að lokum. n 18 Íþróttir 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 12. nóvember 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.