Fréttablaðið - 12.11.2022, Blaðsíða 100
Draumaþjófurinn er byggður á bók Gunnars Helgasonar. MYND/AÐSEND
tsh@frettabladid.is
Um þessar mundir stendur Þjóð-
leikhúsið fyrir opnum, rafrænum
leikprufum fyrir börn á aldrinum 9
til 13 ára til að taka þátt í fjölskyldu-
söngleiknum Draumaþjófnum. Um
er að ræða nýtt íslenskt leikverk
byggt á samnefndri bók Gunnars
Helgasonar í leikgerð Bjarkar Jak-
obsdóttur og er leitað að tólf börnum
til að leika í verkinu. Stefán Jónsson
leikstýrir og aðalhlutverk leika Þur-
íður Blær Jóhannsdóttir og Kjartan
Darri Kristjánsson. Alls taka 17 leik-
arar þátt í sýningunni auk barnanna
sem óskað er eftir og hljómsveit. Þor-
valdur Bjarni semur tónlist og dans-
höfundur er hinn kunni Lee Proud.
Prufurnar eru rafrænar og geta
allir sem hafa aldur til tekið þátt, en
börn sem hafa annað tungumál en
íslensku að móðurmáli eru sérstak-
lega hvött til að sækja um. Upplýs-
ingar og kynningarmyndbönd um
prufurnar eru því einnig aðgengi-
legar á ensku.
Óskað er eftir þremur prufum,
dans-, leik- og söngprufu, sem
börnin geta tekið upp á síma og sent
inn rafrænt með aðstoð foreldra og
aðstandenda í gegnum skráningar-
vef leikhússins. Síðasti skiladagur
er sunnudagurinn 20. nóvember.
Nánari upplýsingar má finna á vef
Þjóðleikhússins. n
Þjóðleikhúsið leitar að
krökkum í Draumaþjóf
tsh@frettabladid.is
Listahópurinn Wunderland
sýnir þátttökuverkið Horse
Inside Out í Hafnarhúsinu.
Sviðslistakonan Mette Aakjær
segir verkið byggt á hinum
ýmsu eiginleikum hesta.
Í dag verður þátttökuinnsetningin
Horse Inside Out eftir listhópinn
Wunderland opnuð í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsinu. Um
er að ræða norrænt list- og rann-
sóknarverkefni sem hefur verið í
þróun í nokkur ár og var áður sett
upp í Danmörku og Finnlandi.
„Þetta er skúlptúr og innsetning
sem er nógu stór fyrir manneskju
til að fara inn í. Það fer einn ein-
staklingur inn í einu, sem kannar
umhverfið upp á eigin spýtur. Í
öðru rými er svo flytjandi sem við-
komandi á samskipti við. Þetta er
fjölskynjunarskúlptúr sem þú upp-
lifir með öllum skilningarvitunum,
lykt, hljóði, sjón og snertingu,“ segir
danska sviðslistakonan Mette Aak-
jær, stofnandi Wunderland.
Viðkvæmni og kraftur hesta
Skúlptúrinn sem um ræðir er í lag-
inu eins og stórt tjald með lífrænu
útliti. Mette segir Wunderland hafa
sótt innblástur fyrir verkið til ólíkra
eiginleika hesta.
„Innblásturinn er hestur en þetta
líkist þó ekki hesti. Við sækjum á
vissan hátt í eiginleika hestsins,
þessa viðkvæmni en einnig þenn-
an gífurlega kraft sem hestar hafa.
Allt frá því að standa kyrrir yfir í
að ferðast mjög hratt með miklum
krafti. Þannig að það er allt róf
hestsins, lyktin, hljóðin, allt saman,“
segir hún.
Af hverju sóttuð þið innblástur til
hesta?
„Ég held að almennt séð liggi
áhugi okkar í að breyta skynjun
fólks á raunveruleikanum í gegnum
líkamann og skilningarvitin. Við
erum algjörir nördar hvað þetta
varðar. Það eru margar leiðir til að
vera í líkama sínum og í þessu verki
vinnum við með upplifun sem er
mjög jarðtengjandi. Þetta getur
verið mjög villt og mjög ólíkt fyrir
hvern og einn einstakling en við
erum að sækja í kraft frá jörðinni,
kraft sem hesturinn hefur einnig.“
Ólíkt fyrir hvern og einn
Er þetta þá einhvers konar ritúal?
„Maður gæti sagt það en ég er allt-
af mjög varkár að setja merkimiða
vegna þess að ég vil ekki að fólk sjái
þetta bara á einn hátt. Ég kalla þetta
bara upplifun af því að það er opið
hugtak og er líka eitthvað sem við
vinnum mikið með, að hafa hluti
opna fyrir túlkun,“ segir Mette og
bætir við að upplifunin sé ólík fyrir
hvern og einn einstakling.
Eins og áður sagði er Horse Inside
Out partur af stærra rannsóknar-
verkefni sem Wunderland hefur
unnið að í samstarfi við Interacting
Minds Centre hjá Árósaháskóla og
ARoS listasafnið í Árósum.
„Í samstarfi við okkur gerðu þau
rannsókn þar sem áhorfendum sem
komu út af upplifuninni var boðið
að skoða sérstaka listsýningu og
síðan var tekið viðtal við þá á sér-
stakan hátt með heyrnartól á. Spyrj-
andinn spurði þau að mismunandi
hlutum eins og hvort upplifunin
hefði áhrif á það hvernig þau upp-
lifðu listaverkin eftir á,“ segir Mette.
Að sögn hennar var það eitt af
markmiðunum með Horse Inside
Out að vera í sjálfu sér listaverk en
einnig að opna skilningarvit áhorf-
enda fyrir nýjum upplifunum.
„Við komumst að því að upplifun-
in hafði þau áhrif á fólk að það var
næmara fyrir myrkri og hreyfingu
eftir á og hreyfði sig á ólíkan hátt
inni í sýningarrýminu.“
Breytti lífi eins áhorfanda
Hvernig hafa viðbrögð áhorfenda
við verkinu verið?
„Þau hafa verið mjög, mjög góð.
Við höfum fengið margar stjörnur
hjá gagnrýnendum eins og þegar
við sýndum verkið í Finnlandi
fengum við til dæmis ýmis hjart-
næm ummæli. Eitt sinn þegar við
vorum að ganga niður götu í Finn-
landi þá öskraði einhver skyndi-
lega á eftir mér: „Horse Inside Out
breytti lífi mínu!“. Það er auðvitað
svolítið klikkað og kannski ekki
eitthvað sem gerist í hvert skipti,
en það var algjört vá-augnablik.“
Wunderland munu svo koma
aftur til Íslands í ágúst á næsta ári
með nýtt verk í samstarfi við fram-
leiðslufyrirtækið MurMur.
„Við erum að koma með annað
verk sem heitir Twisted Forest
sem verður sýnt í Heiðmörk. Það
er stærra staðbundið verk sem er
næstum tveggja klukkutíma löng
upplifun,“ segir Mette.
Horse Inside Out er opið í Lista-
safni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, frá
11. til 23. nóvember og frítt er inn á
viðburðinn. n
Hestur á röngunni
Mette Aakjær segir markmið verksins vera að opna skilningarvit áhorfenda fyrir nýjum upplifunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Eitt sinn þegar við
vorum að ganga niður
götu í Finnlandi öskr-
aði einhver skyndilega
á eftir mér: „Horse
Inside Out breytti lífi
mínu!“.
Mette Aakjær
Laugarnar
í Reykjavík
O
pnunar tími
í lau g unum
laugardag
og sunnudag
vegna árshátíðar
starfsmanna ÍTR
Árbæjarlaug
Breiðholtslaug
Dalslaug
Grafarvogslaug
Laugardalslaug
Sundhöll
Vesturbæjarlaug
22:00
22:00
17:00
22:00
18:00
22:00
18:00
10:00
10:00
10:00
10:00
10:00
10:00
10:00
Laugardaginn
12. nóv.
Opið til klukkan
Sunnudaginn
13. nóv.
Opnar klukkan
56 Menning 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 12. nóvember 2022 LAUGARDAGUR