Fréttablaðið - 12.11.2022, Blaðsíða 8
Þetta blandar
skemmtilega saman
gufubaði og sjósundi.
Við sjáum þarna
möguleika á að sam-
eina þetta á skemmti-
legan máta fyrir sam-
félagið.
Gauti Geirsson
Íslenskan er okkar allra
Málþing um íslenska tungu á vegum forsætisráðuneytisins
ForsætisráðuneytiðMenningar- og viðskiptaráðuneytið
Fundarstjóri er Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum.
Forsætisráðherra býður til málþings í tilefni af viku íslenskrar tungu, mánudaginn 14.
nóvember kl. 16-17:30 í Veröld — húsi Vigdísar. Á málþinginu verður fjallað um stöðu
íslenskunnar út frá ýmsum hliðum samfélagsins. Öll eru velkomin.
Dagskrá
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Opnunarávarp
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands
Hugvekja
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims
Íslenskan er hafsjór
Þórunn Rakel Gylfadóttir rithöfundur
Ungráð
Jasmina Vajzovic Crnac, stjórnmálafræðingur og leiðtogi Alþjóðateymis Reykjavíkurborgar
Íslenska — hvernig skal beygja orðið hestur
Sófaspjall ráðherra. Þátttakendur eru Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Lilja Dögg
Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og
barnamálaráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra
Lokaorð
Hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar
tók vel í tillögu um fljótandi
gufubað í Ísafjarðarhöfn. Það
yrði fyrsta fljótandi gufubað
Íslands en þetta hefur verið
að ryðja sér til rúms á Norður-
löndunum og býður upp á
sjósund og gufubað í sam-
einingu.
kristinnpall@frettabladid.is
ÍSAFJÖRÐUR Hafnarstjórn Ísa-
fjarðarbæjar lýsti yfir ánægju með
hugmyndina en óskaði eftir frek-
ari upplýsingum þegar stjórnin
tók fyrir fyrirspurn um að reisa
f ljótandi gufubað í Ísafjarðarhöfn
í vikunni. Það voru þau Elena Dís
Víðisdóttir, Gauti Geirsson, Óli
Rafn Kristinsson og Tinna Rún
Snorradóttir, sem sendu inn fyrir-
spurnina en Gauti segir þetta vera
vinsæla hugmynd í Skandinavíu.
„Við erum tvö pör sem erum
nýf lutt aftur heim á Vestfirðina.
Annað parið var í Danmörku og
hitt í Noregi, og þar hefur þessi
hugmynd verið að ryðja sér til
rúms. Þetta blandar skemmtilega
saman gufubaði og sjósundi. Við
sjáum þarna tækifæri til að sam-
eina þetta á skemmtilegan máta
fyrir samfélagið,“ segir Gauti í sam-
tali við Fréttablaðið, þegar hann er
spurður út í fyrirspurnina og tekur
undir að þetta sé dæmi um að slá
tvær f lugur í einu höggi.
Það er aðeins eitt gufubað á Ísa-
firði og skiptist eftir dögum hvort
að það sé til boða fyrir karlkyns
Vilja opna fljótandi gufubað í Ísafjarðarhöfn
Gufuböð eins
og þau sem fjór-
menningarnir
vilja reisa í Ísa-
fjarðarhöfn hafa
notið vinsælda
í Skandinavíu
og bjóða upp á
möguleikann
á að sameina
gufubað og sjó-
sund.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
eða kvenkyns gesti sundhallar-
innar. Fljótandi gufubað yrði því
kærkomin viðbót, hvort sem um
ræðir á heitum sumardögum eða
á vetrardögum, eftir að hafa rennt
sér niður skíðabrekkurnar á Vest-
fjörðum.
„Það kom tillaga um að stað-
setja þetta við skútuhöfnina sem
er skemmtilegt svæði. Það myndi
koma með nýtt aðdráttarafl í höfn-
ina og auka lífið í miðbænum. Upp-
leggið er að þetta sé opið allan árs-
ins hring, bæði fyrir heimamenn og
ferðamenn,“ segir Gauti sem telur
að heildarkostnaðurinn sé undir
þrjátíu milljónum.
„Þetta eru líklegast einhverjar
25 milljónir, en við erum að skoða
hvaða möguleikar eru til staðar til
að fjármagna þetta.“
Gauti tekur undir að þetta sé
í takt við það sem nútímaferða-
maðurinn vill.
„Það er aukið krydd að hafa
möguleikann á sjósundi inni í
þessu. Svo yrði þetta mjög gott
á grammið (Instagram) sem er
ekkert verra. Á tímum samskipta-
miðlaferðamennsku skiptir það
miklu máli,“ segir hann léttur í
lund.
Tillagan hefur vakið athygli á
Ísafirði og er ekki að heyra annað
en að Gauti sé tiltölulega bjartsýnn
á að hún verði samþykkt.
„Hafnarstjórnin var mjög áhuga-
söm og hugmyndin virðist vera að
fá meðbyr. Eftir að þetta kom inn í
fundargerðirnar eru margir farnir
að spyrjast fyrir um þetta.“ n
Óli, Tinna, Elena og Gauti segja slík gufuböð vinsæl í Skandinavíu.
MYND/AÐSEND
8 Fréttir 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ