Fréttablaðið - 12.11.2022, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 12.11.2022, Blaðsíða 90
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Brynjar Sævar Antonsson Háagerði 1, Akureyri, lést á heimili sínu 9. nóvember. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu á Akureyri. Aðalheiður Adamsdóttir Anton Örn Brynjarsson Nanna Lind Svavarsdóttir Adda Björk Brynjarsdóttir Guðni Hermannsson Anna Lísa Brynjarsdóttir Alexander Benediktsson Ívan Grímur Brynjarsson Dagný Elfa Birnisdóttir afa- og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Lucie Einarsson Bolungarvík, lést á Hjúkrunarheimilinu Bergi þriðjudaginn 8. nóvember. Jarðarför verður frá Hólskirkju laugardaginn 19. nóvember kl. 14. Ásgeir Sólbergsson Margrét Gunnarsdóttir Bjarni Sólbergsson Elísabet Sólbergsdóttir Guðjón Jónsson Sölvi Rúnar Sólbergsson Birna Guðbjartsdóttir María Sólbergsdóttir barnabörn og langömmubörn Ástkær eiginmaður, faðir og afi, Albert Guðmundsson verkfræðingur, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann 10. nóvember síðastliðinn. Útför hans verður auglýst síðar. Anna Þórunn Sveinsdóttir Þór Aldan Rain Barbara Inga Albertsdóttir Anna Victoria og Elísabet Rúrí Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Jóhanna Rakel Jónasdóttir saumakona og húsmóðir, áður til heimilis að Háaleitisbraut 105, lést á Hrafnistu þriðjudaginn 8. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 17. nóvember kl. 13.00. Ingólfur Helgi Tryggvason Sigríður Birna Gunnarsdóttir Jónas Tryggvason Natalia Ochkal Tryggvason Hávarður Tryggvason Þórunn María Jónsdóttir Dóra Tryggvadóttir Christian Jönsson Ólöf Rún Tryggvadóttir Jón Garðar Sigurjónsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Fallega móðir mín og amma okkar, Ásrún Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur og nuddari, Bergstaðastræti 21b, Reykjavík, lést föstudaginn 7. október á heimili okkar Grettisgötu 27. Skálað var fyrir lífi hennar og dansað í Óháða söfnuðinum mánudaginn 31. október sl. að ósk hinnar látnu. „Lífið er fagurt“ eins og hún sagði og við þökkum öllum sem elskuðu hana. Ásta Sól Kristjánsdóttir Leon Bjartur Sólar Arngrímsson Nói Hrafn Sólar Arngrímsson Mía Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, og langalangamma, Erla Stefánsdóttir lést á Ljósheimum Selfossi mánudaginn 7. nóvember. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju fimmtudaginn 17. nóvember kl. 14. Stefán Sveinbjörnsson Sigríður S. Jónsdóttir Anna D. Sveinbjörnsdóttir Hallur Steingrímsson Elínrós Sveinbjörnsdóttir Viðar Þorsteinsson Ída S. Sveinbjörnsdóttir Aðalheiður Sveinbjörnsdóttir Erling Pétursson Finnur Sveinbjörnsson Elísabet Stefánsdóttir barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Kristinn Valdimarsson tæknifræðingur, lést á líknardeild LSH í Kópavogi mánudaginn 7. nóvember. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 15. nóvember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið og minningarsjóð líknardeildar og heimahlynningar LSH. Margrét Örnólfsdóttir Valdimar Jónsson Ásdís Ásgeirsdóttir Örnólfur Jónsson Sigrún Hildur Kristjánsdóttir Katrín Jónsdóttir Jóhann Friðgeir Haraldsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir, tengdafaðir, fyrrum eiginmaður, sonur, bróðir, mágur og frændi okkar, Sigurður Árni Árnason Torrevieja, Spáni, varð bráðkvaddur þann 10. september síðastliðinn. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Aðstandendur þakka auðsýnda samúð. Árni Páll Sigurðsson Alexander Irving Jr. Thelma Rut Jónsdóttir Irving Alexander GP Evelin Peralta Sæbjörg Eiríksdóttir Guðrún Árnadóttir Aldís Árnadóttir Jón B. Aðalbjörnsson Iðunn Árnadóttir Páll Gústafsson Gunnar Gunnarsson Margrét Karlsdóttir Eiríkur Auðunn Auðunsson Dóra Kristín Þórisdóttir Örlygur Auðunsson Brynhildur Guðmundsdóttir frændsystkini Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sen sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, Snorra S. Ólafssonar Vestmann frá Vestmannaeyjum, til heimilis á Ási, Hveragerði. Sérstakar þakkir fær yndislegt starfsfólk Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Áss í Hveragerði og starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi, fyrir hlýja og góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Elínborg Einarsdóttir Elsku hjartans pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi, Eggert Eggertsson Vestursíðu 9, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð þann 4. nóvember sl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 14. nóvember kl. 13. Aðalheiður Eggertsdóttir Baldur Pálsson Eggert Eggertsson Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir Anna Margrét Eggertsdóttir Elvar Knútur Valsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Ólafur Guðbrandsson áður Hrísmóum 1, Garðabæ, lést á Hrafnistu Hafnarfirði þann 5. nóvember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum starfsfólki Báruhrauns fyrir sýnda alúð og umhyggju. Svanhildur Lillý Aðalsteinsdóttir Bjarki Ólafsson Marilynn Michaud Berglind Ólafsdóttir Kim Nielsen Unndís Ólafsdóttir Þorvarður Sigfússon Heiðrún Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ágústa kallar ekki öll nýyrði íðorð, eða öfugt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Aldarfjórðungur er liðinn síðan Íðorðabankinn var stofnaður. Hann samanstendur nú af um 70 orðasöfnum. arnartomas@frettabladid.is Íðorðabankinn fagnar 25 ára afmæli sínu um þessar mundir en hann var opnaður á vefnum þann 15. nóvem- ber 1997. Í bankanum, sem er hluti af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, eru nú um 70 orðasöfn. En hvað eru eiginlega íðorð? „Íslendingar kölluðu eiginlega áður allt nýyrði, en það eru í rauninni ekki öll nýyrði íðorð og íðorð eru heldur ekki endilega nýyrði,“ segir Ágústa Þor- bergsdóttir, ritstjóri Íðorðabankans. „Þegar ég tala um íðorð þá meina ég það sem kallast „term“ á norrænum tungu- málum, ensku, þýsku og f leiri málum.“ Það var ekki fyrr en í kringum 1980 að farið var að greina að nýyrði og „term“. „Þá var kosið að taka upp þetta orð, íðorð, en það hafði verið notað 1928 í íðorðasafni frá orðanefnd Verkfræð- ingafélagsins, útskýrir Ágústa. „Fólk á oft erfitt með að skilja þetta orð, en „íð“ er í raun sami liður og í „handíð“ eða iðja. Þetta vísar því til heita sem eru starfsbundin, eða fræðiheita.“ Er „íðorð“ þá íðorð? „Já, það er allavega íðorð innan íðorðafræðinnar,“ svarar Ágústa og hlær. Vefurinn bylti bankanum Hugmyndir um bankann komu upp í kringum 1979 og segir Ágústa erfitt að hugsa sér hvernig þær litu út fyrir tíma internetsins. „Þá var hugsað að þetta yrði í geymt í miðlægum tölvum með aðgengi í gegn- um útstöðvar. Strax árið eftir var skipuð sérstök orðabankanefnd sem starfaði með hléum,“ segir hún. „Þótt undir- búningurinn hafi kannski ekki verið stöðugur í átján ár að stofnun bankans þá var hugsunin vakandi.“ Internetið gerði bankann svo að raun- hæfum möguleika. „Grunnhugsunin með þessu var að hægt væri að finna orðin með einföldum hætti þannig að þau yrðu aðgengileg,“ segir Ágústa. „Það er ekki endilega mark- aður fyrir útgáfu sérhæfðra orðasafna á prenti. Það var bylting að koma slíkum sérfræðiorðum á framfæri sem eru of sérhæfð fyrir almennar orðabækur.“ Myndun tifstjörnu Orðasöfnin í Íðorðabankanum eru stundum gríðarstór. Læknisfræðin er stærsta sviðið í íðorðabankanum en þar má finna rúmlega 33 þúsund orð. „Það kæmi nú heldur betur slagsíða ef það væri allt í prentaðri orðabók yfir almennt mál,“ hlær Ágústa. Það getur verið erfitt að gera upp á milli barnanna sinna, en blaðamaður biður Ágústu þó um að gera sitt besta og velja sér sitt uppáhaldsíðorð. „Mér finnst þau mörg svo áhugaverð en það var eitt sem ég heyrði um daginn sem mér fannst mjög fallegt: tifstjarna,“ svarar hún. „Það er tekið úr stjörnufræði og kallast á ensku pulsar. Þetta er fallega myndað orð – stjarna sem sýnir örar og reglubundnar sveiflur í útgeislun.“ Afmælisdagskrá Íðorðabankans má finna á Facebook-síðu Árnastofnunar. n Stendur vörð um íðorðin 46 Tímamót 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.