Fréttablaðið - 12.11.2022, Qupperneq 90
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Brynjar Sævar Antonsson
Háagerði 1, Akureyri,
lést á heimili sínu 9. nóvember.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á Heimahlynningu á Akureyri.
Aðalheiður Adamsdóttir
Anton Örn Brynjarsson Nanna Lind Svavarsdóttir
Adda Björk Brynjarsdóttir Guðni Hermannsson
Anna Lísa Brynjarsdóttir Alexander Benediktsson
Ívan Grímur Brynjarsson Dagný Elfa Birnisdóttir
afa- og langafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Lucie Einarsson
Bolungarvík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Bergi
þriðjudaginn 8. nóvember.
Jarðarför verður frá Hólskirkju
laugardaginn 19. nóvember kl. 14.
Ásgeir Sólbergsson Margrét Gunnarsdóttir
Bjarni Sólbergsson
Elísabet Sólbergsdóttir Guðjón Jónsson
Sölvi Rúnar Sólbergsson Birna Guðbjartsdóttir
María Sólbergsdóttir
barnabörn og langömmubörn
Ástkær eiginmaður, faðir og afi,
Albert Guðmundsson
verkfræðingur,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi þann 10. nóvember síðastliðinn.
Útför hans verður auglýst síðar.
Anna Þórunn Sveinsdóttir
Þór Aldan Rain
Barbara Inga Albertsdóttir
Anna Victoria og Elísabet Rúrí
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Jóhanna Rakel Jónasdóttir
saumakona og húsmóðir,
áður til heimilis að Háaleitisbraut 105,
lést á Hrafnistu þriðjudaginn 8. nóvember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn
17. nóvember kl. 13.00.
Ingólfur Helgi Tryggvason Sigríður Birna Gunnarsdóttir
Jónas Tryggvason Natalia Ochkal Tryggvason
Hávarður Tryggvason Þórunn María Jónsdóttir
Dóra Tryggvadóttir Christian Jönsson
Ólöf Rún Tryggvadóttir Jón Garðar Sigurjónsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Fallega móðir mín og amma okkar,
Ásrún Hauksdóttir
hjúkrunarfræðingur og nuddari,
Bergstaðastræti 21b, Reykjavík,
lést föstudaginn 7. október á heimili
okkar Grettisgötu 27. Skálað var fyrir lífi
hennar og dansað í Óháða söfnuðinum mánudaginn
31. október sl. að ósk hinnar látnu. „Lífið er fagurt“ eins og
hún sagði og við þökkum öllum sem elskuðu hana.
Ásta Sól Kristjánsdóttir
Leon Bjartur Sólar Arngrímsson
Nói Hrafn Sólar Arngrímsson
Mía
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma,
og langalangamma,
Erla Stefánsdóttir
lést á Ljósheimum Selfossi
mánudaginn 7. nóvember.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju
fimmtudaginn 17. nóvember kl. 14.
Stefán Sveinbjörnsson Sigríður S. Jónsdóttir
Anna D. Sveinbjörnsdóttir Hallur Steingrímsson
Elínrós Sveinbjörnsdóttir Viðar Þorsteinsson
Ída S. Sveinbjörnsdóttir
Aðalheiður Sveinbjörnsdóttir Erling Pétursson
Finnur Sveinbjörnsson Elísabet Stefánsdóttir
barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Kristinn Valdimarsson
tæknifræðingur,
lést á líknardeild LSH í Kópavogi
mánudaginn 7. nóvember.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 15. nóvember kl. 13.00. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið og
minningarsjóð líknardeildar og heimahlynningar LSH.
Margrét Örnólfsdóttir
Valdimar Jónsson Ásdís Ásgeirsdóttir
Örnólfur Jónsson Sigrún Hildur Kristjánsdóttir
Katrín Jónsdóttir Jóhann Friðgeir Haraldsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir, tengdafaðir,
fyrrum eiginmaður, sonur, bróðir,
mágur og frændi okkar,
Sigurður Árni Árnason
Torrevieja, Spáni,
varð bráðkvaddur þann
10. september síðastliðinn.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Aðstandendur þakka auðsýnda samúð.
Árni Páll Sigurðsson
Alexander Irving Jr. Thelma Rut Jónsdóttir
Irving Alexander GP
Evelin Peralta
Sæbjörg Eiríksdóttir
Guðrún Árnadóttir
Aldís Árnadóttir Jón B. Aðalbjörnsson
Iðunn Árnadóttir Páll Gústafsson
Gunnar Gunnarsson Margrét Karlsdóttir
Eiríkur Auðunn Auðunsson Dóra Kristín Þórisdóttir
Örlygur Auðunsson Brynhildur Guðmundsdóttir
frændsystkini
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sen sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, stjúpföður, tengdaföður,
afa og langafa,
Snorra S. Ólafssonar Vestmann
frá Vestmannaeyjum,
til heimilis á Ási, Hveragerði.
Sérstakar þakkir fær yndislegt starfsfólk Dvalar- og
hjúkrunarheimilisins Áss í Hveragerði og starfsfólk
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi, fyrir hlýja
og góða umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elínborg Einarsdóttir
Elsku hjartans pabbi okkar,
tengdapabbi, afi og langafi,
Eggert Eggertsson
Vestursíðu 9, Akureyri,
lést á hjúkrunarheimilinu
Lögmannshlíð þann 4. nóvember sl.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 14. nóvember kl. 13.
Aðalheiður Eggertsdóttir Baldur Pálsson
Eggert Eggertsson Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir
Anna Margrét Eggertsdóttir Elvar Knútur Valsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Guðbrandsson
áður Hrísmóum 1, Garðabæ,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði þann
5. nóvember. Útför hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum starfsfólki Báruhrauns
fyrir sýnda alúð og umhyggju.
Svanhildur Lillý Aðalsteinsdóttir
Bjarki Ólafsson Marilynn Michaud
Berglind Ólafsdóttir Kim Nielsen
Unndís Ólafsdóttir Þorvarður Sigfússon
Heiðrún Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ágústa kallar ekki öll nýyrði íðorð, eða öfugt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Aldarfjórðungur er liðinn síðan
Íðorðabankinn var stofnaður.
Hann samanstendur nú af um 70
orðasöfnum.
arnartomas@frettabladid.is
Íðorðabankinn fagnar 25 ára afmæli
sínu um þessar mundir en hann var
opnaður á vefnum þann 15. nóvem-
ber 1997. Í bankanum, sem er hluti af
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum, eru nú um 70 orðasöfn. En
hvað eru eiginlega íðorð?
„Íslendingar kölluðu eiginlega áður
allt nýyrði, en það eru í rauninni ekki
öll nýyrði íðorð og íðorð eru heldur
ekki endilega nýyrði,“ segir Ágústa Þor-
bergsdóttir, ritstjóri Íðorðabankans.
„Þegar ég tala um íðorð þá meina ég það
sem kallast „term“ á norrænum tungu-
málum, ensku, þýsku og f leiri málum.“
Það var ekki fyrr en í kringum 1980
að farið var að greina að nýyrði og
„term“.
„Þá var kosið að taka upp þetta orð,
íðorð, en það hafði verið notað 1928 í
íðorðasafni frá orðanefnd Verkfræð-
ingafélagsins, útskýrir Ágústa. „Fólk
á oft erfitt með að skilja þetta orð, en
„íð“ er í raun sami liður og í „handíð“
eða iðja. Þetta vísar því til heita sem eru
starfsbundin, eða fræðiheita.“
Er „íðorð“ þá íðorð?
„Já, það er allavega íðorð innan
íðorðafræðinnar,“ svarar Ágústa og
hlær.
Vefurinn bylti bankanum
Hugmyndir um bankann komu upp í
kringum 1979 og segir Ágústa erfitt að
hugsa sér hvernig þær litu út fyrir tíma
internetsins.
„Þá var hugsað að þetta yrði í geymt í
miðlægum tölvum með aðgengi í gegn-
um útstöðvar. Strax árið eftir var skipuð
sérstök orðabankanefnd sem starfaði
með hléum,“ segir hún. „Þótt undir-
búningurinn hafi kannski ekki verið
stöðugur í átján ár að stofnun bankans
þá var hugsunin vakandi.“
Internetið gerði bankann svo að raun-
hæfum möguleika.
„Grunnhugsunin með þessu var að
hægt væri að finna orðin með einföldum
hætti þannig að þau yrðu aðgengileg,“
segir Ágústa. „Það er ekki endilega mark-
aður fyrir útgáfu sérhæfðra orðasafna á
prenti. Það var bylting að koma slíkum
sérfræðiorðum á framfæri sem eru of
sérhæfð fyrir almennar orðabækur.“
Myndun tifstjörnu
Orðasöfnin í Íðorðabankanum eru
stundum gríðarstór. Læknisfræðin er
stærsta sviðið í íðorðabankanum en þar
má finna rúmlega 33 þúsund orð.
„Það kæmi nú heldur betur slagsíða
ef það væri allt í prentaðri orðabók yfir
almennt mál,“ hlær Ágústa.
Það getur verið erfitt að gera upp á
milli barnanna sinna, en blaðamaður
biður Ágústu þó um að gera sitt besta og
velja sér sitt uppáhaldsíðorð.
„Mér finnst þau mörg svo áhugaverð
en það var eitt sem ég heyrði um daginn
sem mér fannst mjög fallegt: tifstjarna,“
svarar hún. „Það er tekið úr stjörnufræði
og kallast á ensku pulsar. Þetta er fallega
myndað orð – stjarna sem sýnir örar og
reglubundnar sveiflur í útgeislun.“
Afmælisdagskrá Íðorðabankans má
finna á Facebook-síðu Árnastofnunar. n
Stendur vörð um íðorðin
46 Tímamót 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ