Fréttablaðið - 12.11.2022, Blaðsíða 104

Fréttablaðið - 12.11.2022, Blaðsíða 104
Úrslitakeppni Skrekks, hæfi- leikakeppni grunnskólanna, fer fram í Borgarleikhúsinu á mánudaginn þegar átta skólar stíga á svið. Frétta- blaðið fór í sögubækurnar og skoðaði hvaða frægir aðilar hafa stigið sín fyrstu spor í keppninni. benediktboas@frettabladid.is Um 630 ungmenni hafa stigið á svið fyrir hönd 24 skóla í þremur undankeppnum Skrekks, hæfi- leikakeppni grunnskólanna, síð- ustu daga og sýnt glæsileg frum- samin atriði. Úrslitin fara fram á mánudag í Borgarleikhúsinu. Í Skrekk fá unglingar í grunn- skólum Reykjavíkur að vinna með hugmyndir sínar og þróa sviðsverk fyrir stóra svið Borgarleikhússins fyrir hönd síns skóla. Atriðin að þessu sinni fjalla um sjálfsmynd unglinga, áhrif samfélagsmiðla, tónlistar- og danssögu, missi, ein- elti, andlega erfiðleika, upplifun ungmenna af erlendum uppruna, mikilvægi þess að njóta lífsins og hafa gaman, ádeilu á íslenskt sam- félag, heimilisof beldi og ástar- sögur. Unglingarnir hafa nýtt allar sviðslistir í atriðin: tónlist, dans, leiklist og gjörninga. Þau sjá um að semja atriðin, það er leik, dans, sögu og tónlist og sum eru jafnvel með frumsamin lög. Krakkarnir sjá líka um tæknihliðina, búninga og förðun. n Laufey Hin stórkost- lega söngkona Laufey keppti með Háteigs- skóla árið 2013. Í atriðinu var tvíburasystir hennar Júnía. Sveppi Það þarf ekki að koma mjög á óvart að Sveppi tók þátt fyrir Breiðholtsskóla og stóð uppi sem sigurvegari 1992. Hera Hilmars Leikkonan geðþekka, sem meðal annars hefur leikið í Hollywood- myndum, vann Skrekk með Hlíðaskóla forðum daga. Bríet Söngkonan tók sín fyrstu spor í átt að frægðar- sólinni í Skrekk. Hún söng svo fyrir keppendur árið 2021. Álfgrímur Aðalsteins- son Instagram og TikTok-stjarnan Elfgrime sigraði með Austur- bæjarskóla árið 2012. Katla Njálsdóttir Leik- og söng- konan sem hefur meðal annars leikið í Hjartasteini steig á svið í Skrekk forðum. Austurbæjarskóli Austurbæjarskóli hefur mjög oft staðið á sviðinu í úrslit- unum en skólinn hefur lengi teflt fram góðum atriðum. Atriðið 2005 stendur þó upp úr því í atriðinu voru meðal annars Steiney Skúladóttir leikkona, Unnsteinn Manúel, Sturla Atlas og Þuríður Blær svo nokkur séu nefnd. Þeir Guðmundur Jörundsson og Tyrfingur Tyrfingsson sáu um að búa til atriðið og aðstoða, svo úr varð siguratriði sem enn er talað um. Sigurvegarar Skrekks 2021 Árbæjarskóli 2020 Langholtsskóli 2019 Hlíðaskóli 2018 Árbæjarskóli 2017 Árbæjarskóli 2016 Hagaskóli 2015 Hagaskóli 2014 Seljaskóli 2013 Langholtsskóli 2012 Austurbæjarskóli 2011 Háteigsskóli 2010 Seljaskóli 2009 Laugalækjarskóli 2008 Austurbæjarskóli 2007 Hlíðaskóli 2006 Langholtsskóli 2005 Austurbæjarskóli 2004 Laugalækjarskóli 2003 Laugalækjarskóli 2002 Hagaskóli 2001 Hagaskóli 2000 Hlíðaskóli 1999 Hagaskóli 1998 Hvassaleitisskóli 1997 Hagaskóli 1996 Hvassaleitisskóli 1995 Hagaskóli 1994 Vogaskóli 1993 Hagaskóli 1992 Breiðholtsskóli 1991 Árbæjarskóli 1990 Breiðholtsskóli Steiney Sturla Unnsteinn Blær Fyrsta keppni Skrekks fór fram árið 1990 og vann Breiðholtsskóli. Skólinn vann tvö af fyrstu þremur árum keppninnar en hefur ekki fagnað sigri síðan. Frægir Skrekkarar 60 Lífið 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 12. nóvember 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.