Fréttablaðið - 12.11.2022, Blaðsíða 38
Rannveig Pálmadóttir er 86
ára gömul og það er óhætt að
segja að hreyfing sé hennar
hjartans mál.
gummih@frettabladid.is
Rannveig hefur gengið allt að 8
kílómetrum næstum því á degi
hverjum þar sem hún fer út tvisvar
á dag og auk þess er hún dugleg að
synda alla daga.
„Frá því ég var 23 ára gömul hef
ég verið ansi dugleg við að hreyfa
mig. Þá þótti það ekki vera í tísku
að fara út að ganga eins og nú. Yfir-
leitt er ég að ganga 6–8 kílómetra
en núna er það eitthvað minna,“
segir Rannveig.
Eftir að eiginmaður hennar lést
fyrir 16 árum segist hún ekki hafa
fengið neinn með sér að ganga og
því gengur hún ein fyrir hádegi og
tekur svo hundinn með sér eftir
hádegi. Áður en maður hennar lést
gengu þau mikið saman, hjóluðu,
fóru á skíði og á skauta.
„Ég byrja daginn á því að fara út
á pallinn fyrir utan heimili mitt
tíu mínútur fyrir sjö. Þar geri ég
leikfimisæfingar og fagna deginum
á meðan hundurinn minn, hún
Mjöll, er að vafra úti í garði. Þegar
ég kem inn í íbúðina mína eftir
æfingarnar sem ég geri, alveg sama
hvernig veðrið er, úrhellisrigning,
snjókoma eða frost, kemur bein-
línis önnur manneskja inn. Mér
líður svo vel. Dagurinn byrjar svo
vel með þessu. Ég geri alls konar
æfingar því ég trúi á hreyfingu,“
segir Rannveig.
Eftir morgunleikfimina segist
Rannveig gefa hundinum að borða
og síðan heldur hún út að ganga tíu
mínútur fyrir klukkan 8.
„Síðustu mánuðina hef ég aðeins
gengið minna en vanalega. Sonur
minn lést 56 ára gamall fyrir hálfu
ári úr MND-sjúkdómnum og ég er
að vinna mig upp úr sorginni sem
fylgdi þegar hann lést. Mér þótti
afar erfitt að skilja það að maður
sem hvorki drakk né reykti og
var í íþróttum skyldi deyja svona
ungur,“ segir Rannveig.
„Þegar ég hef lokið við að ganga
þessa kílómetra fyrir hádegið þá
Ég lifi fyrir þessa hreyfingu
Rannveig með Mjöll, sem hún fer út að ganga með á hverjum degi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Rannveig byrjar
alla daga á því
að taka leik-
fimisæfingar á
pallinum.
fer ég í sund. Ég syndi 2–300 metra
núna en synti meira á árum áður.
Eftir það fer ég í vatnsleikfimi í 35
mínútur og síðan fer ég í heita og
kalda pottinn og er þar með frá-
bæru fólki á svipuðum aldri og ég
þar sem við spjöllum saman. Það er
svo gott að vera með þessum hópi.
Þegar ég kem heim les ég fyrir
hundinn minn á ensku og upp úr
klukkan hálf þrjú fer ég aftur út og
geng þá með hundinn minn rúma
tvo kílómetra.“
Alltaf að reyna að hægja á mér
„Fjölskyldan mín er alltaf að reyna
að hægja á mér og segir að ég sé að
gera of mikið en ég hlusta ekki á
það. Ég lifi fyrir þessa hreyfingu.
Sumir reykja, aðrir drekka en ég
geng,“ segir Rannveig, sem segist
ekki nota nein lyf og hefur verið
heilsuhraust hingað til.
Rannveig er húsmæðrakennari
að mennt og kenndi í fjölda ára en
hætti í kennslunni fyrir fimmtán
árum síðan.
„Ég var sjötug þegar ég hætti í
kennslunni. Ég kenndi í 50 ár og
missti aldrei úr dag í kennslunni
vegna veikinda. Fyrst var ég kenn-
ari í Húsmæðraskóla Reykjavíkur
í þrjú ár. Síðan fór ég út til Dan-
merkur og var þar í eitt og hálft ár
þar sem ég vann í sendiráðinu við
matargerð. Ég var svo í hálft ár í
Svíþjóð áður en ég fór til Banda-
ríkjanna. Þar var ég í sex ár og
lærði þar að búa til mat frá öllum
heimsálfum.
Þegar ég kom svo aftur heim
stofnaði ég Kvöldskóla Rannveigar
á heimili mínu og kenndi þar á
neðri hæðinni í 27 ár. Ég kenndi
það sem ég lærði í Bandaríkj-
unum. Eftir það kenndi ég í 18 ár
grunnskólanemendum í Lang-
holtsskólanum. Það var yndis-
legur tími og það var stórkostlegt
að vinna með ungu krökkunum.
Þegar ég var sjötug byrjaði ég
að leika mér meira heldur en ég
gerði,“ segir Rannveig, sem svo
sannarlega er frábær fyrirmynd
og er eldspræk þrátt fyrir háan
aldur. n
Fjölskyldan mín er
alltaf að reyna að
hægja á mér og segir að
ég sé að gera of mikið en
ég hlusta ekki á það.
Sumir reykja, aðrir
drekka en ég geng.
Rannveig Pálmadóttir
Good Routine fæðubótar
efnin hafa slegið í gegn
undanfarin misseri. Þau eru
gerð úr náttúrulegum inni
haldsefnum og geta stuðlað
að bættri heilsu á ólíkan
hátt, meðal annars með því
að vernda þvagfærakerfið,
styrkja ónæmiskerfið og
bæta meltingu.
Good Routine eru hágæða bætiefni
með einstakri virkni og hámarks
upptöku á næringarefnum. Þetta
nýja vörumerki er fyrir þá sem
gera kröfur um hrein bætiefni og
fyrir þá sem vilja gefa sér tíma fyrir
góðar venjur.
Vönduð og spennandi fæðu-
bótarefni með mikla virkni
Unnur Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjá Engey kids, hefur
notað fæðubótarefnin frá Good
Routine undanfarna mánuði og
er mjög ánægð með virkni þeirra.
Hún tekur inn Daily-D3 2000 IU®,
Synergize-Your-Gut® og C-Your-
Immunity®.
„Ég fann mun eftir að hafa tekið
bætiefnin í 3-4 vikur. Ég hef ágætis
þekkingu á fæðubótarefnum því ég
hef alltaf hugsað vel um mig og ég
fann það strax að þetta er frábær
vara,“ segir hún.
„Ég frétti af þessum fæðubótar-
efnum í gegnum vinafólk og sá
þetta í verslunum og fannst þetta
strax mjög spennandi. Ég hef
alltaf verið áhugamanneskja um
bætiefni, eins og ég segi, svo ég var
ánægð með að fá að prófa eitthvað
nýtt og spennandi,“ segir Unnur.
„Mér finnst virkilega hafa verið
vandað til verka og þetta er mjög
fjölbreytt lína af fæðubótarefnum
svo ég á eftir að prófa fleiri efni, en
þetta lofar mjög góðu hingað til
og mér finnst allt við þetta merki
mjög faglegt.“
Betri melting og þarmaflóra
„Maður vill alltaf hugsa vel um sig
nú er ég orðin amma, svo ég þarf
að hugsa vel um ónæmiskerfið og
meltinguna. Mér finnst áhrifin af
Synergize-Your-Gut® sérstaklega
eftirtektarverð og jákvæð,“ segir
Unnur.
„Ég hef tekið eftir því að melt-
ingin hefur orðið betri og það
er meira jafnvægi á þarma-
flórunni. Það kom mér á óvart
hvað ég fann fljótt mun á mér.
Þegar farið er í gegnum breytinga-
skeiðið er mikilvægt að vera með
heilbrigða þarmaflóru. Hún er
mjög mikilvæg því þannig nýtum
við öll næringarefnin betur í
líkamanum. Góð þarmaflóra
hefur einnig gífurlega góð áhrif
á hormónakerfið okkar. Hún
hjálpar til við að brjóta niður og
melta fæðu ásamt því að fram-
leiða ákveðin vítamín og fitusýrur
sem eru okkur nauðsynleg. Góð
þarmaflóra er því undirstaða fyrir
heilbrigða meltingu, sem skilar sér
í bættu jafnvægi hormónakerfins.
Ég myndi virkilega mæla með
þessum fæðubótarefnum. Ég hef
mikla trú á þessum vörum og
góða tilfinningu fyrir þeim,“ segir
Unnur. „Ég held líka að þau sem
Góð þarmaflóra er
undirstaðan
Unnur Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Engey kids, hefur verið að
prófa nýju fæðubótarefnin frá Good Routine undanfarnar vikur og er mjög
ánægð með virkni þeirra. MYND/AÐSEND
Ég hef tekið eftir
því að meltingin
hefur orðið betri og það
er meira jafnvægi á
þarmaflórunni. Það kom
mér á óvart hvað ég finn
mikið fyrir þessu.
Unnur Gunnarsdóttir
fylgjast með í vítamínheiminum
eigi eftir að sjá það fljótt hvað þetta
er vönduð og flott vara.“
Loksins á Íslandi
Tíu af vörum Good Routine fást á
Íslandi. Meðal annars Comfort-U®,
sem veitir þvagfærakerfinu stöðuga
vernd, Daily-D3 2000 IU®, sem
er D3-vítamín af náttúrulegum
uppruna, Synergize-Your-Gut®,
sem er fyrir þarmaheilsu og heil-
brigða þarmaflóru, Pure Omega-3,
sem er kraftmikið ómega-3 í gel-
hylkjum, og C-Your-Immunity®,
sem inniheldur C-vítamín, quer-
cetin, hesperidin og bromelain í
einu hylki og hjálpar fólki sem er
viðkvæmt fyrir kulda og hita-
breytingum.
Ásamt því að sérhæfa sig í fæðu-
bótarefnum leggur Good Routine
mikla áherslu á að stuðla að
vitundarvakningu um að góðar
venjur séu lykilatriði þess að líða
vel alla daga. Það spannar allt frá
hreyfingu og næringu til andlegrar
heilsu.n
Good Routine fæst í Hagkaup,
Lyfjum & heilsu, Apótekaranum
Krónunni, Fjarðarkaupum og á
www.goodroutine.is
Unnur
fann fljott
mun á sér þegar
hún fór að taka inn
Synergize-Your-
Gut frá Good
Routine
Good routine framleiðir gæða fæðubótarefni með náttúrulegum innihaldsefnum.
4 kynningarblað A L LT 12. nóvember 2022 LAUGARDAGUR