Fréttablaðið - 12.11.2022, Blaðsíða 112
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Ég hitti konu um daginn sem
hafði nýlega, þá komin yfir fer-
tugt, fengið ADHD greiningu.
Hún rakti raunir sínar fyrir
mér, vitandi að ég fékk mína
greiningu fyrir rúmu ári.
Svo horfði hún á mig, örlítið
skömmustuleg og vongóð í bland
og hún spurði mig:
„Finnst þér aldrei erfitt að vera
svona? Að vera síðri en aðrir og
að það er sífellt verið að biðja þig
um að vera og gera minna?“
Án þess að hugsa svaraði ég:
„Nei. Við erum betri ef eitthvað
er. Aldrei verri.“
Hún horfði hissa á mig. Svo
brosti hún til mín svo breitt
og innilega að hjartað mitt tók
stóran kipp.
Ég sagði henni því frá eldri
bróður mínum sem er svo
ofvirkur að ég hef aldrei séð
annað eins.
Hann lýsti því nýverið fyrir
mér hvernig líf hans loks gengi
upp eftir að hann fékk greiningu
og rétt lyf.
„Nú elska ég að vera svona.
Pældu í að vera svona,“ sagði
hann og nikkaði í átt að ungum
manni sem var að sópa óþægi-
lega hægt.
Svo bætti hann hlæjandi við:
„Agalega lengi að gera allt. Ekki
við.“
Það er margt jákvætt við að
vera með ADHD stýrikerfið.
Dóttir mín mun læra það.
Það býr í okkur dreki. Ef við
lærum að temja hann með réttri
aðstoð þá getum við f logið hærra
en margir aðrir og séð og gert
meira.
Ef við temjum hann ekki
verður lífið erfitt, drekinn reiður
og kveikir elda sem við ráðum
ekki við. n
Drekinn sem
í mér býr
Tobbu
Marinós
n Bakþankar
Jólastemning
í IKEA alla
helgina
©
Inter IKEA System
s B.V. 2022
Verslun opin 11-20 alla daga
Skoðaðu alla afgreiðslutíma á IKEA.is
Hátíðlegir
aðalréttir, forréttir
og eftirréttir
á veitinga-
staðnum
Myndataka
með jóla-
sveininum
frá kl. 13-17
Smáköku-
bakstur
og smakk
frá kl. 13-17
Smakk á sætu
jólaglöggi
frá kl. 13-17
Smákökudeig
krakkakökur
695,-
Hamborgarhryggur
og meðlæti
1.395,-
Tiramisú
695,-
Grænkera-Wellington
og meðlæti
1.195,-
VINTERSAGA jólaglögg
495,-
Opið allan
sólar-
hringinn
alla daga
í Mjódd og
á Granda
Er það sem þú
keyptir í gær
ennþá ótryggt?