Fréttablaðið - 12.11.2022, Síða 100

Fréttablaðið - 12.11.2022, Síða 100
Draumaþjófurinn er byggður á bók Gunnars Helgasonar. MYND/AÐSEND tsh@frettabladid.is Um þessar mundir stendur Þjóð- leikhúsið fyrir opnum, rafrænum leikprufum fyrir börn á aldrinum 9 til 13 ára til að taka þátt í fjölskyldu- söngleiknum Draumaþjófnum. Um er að ræða nýtt íslenskt leikverk byggt á samnefndri bók Gunnars Helgasonar í leikgerð Bjarkar Jak- obsdóttur og er leitað að tólf börnum til að leika í verkinu. Stefán Jónsson leikstýrir og aðalhlutverk leika Þur- íður Blær Jóhannsdóttir og Kjartan Darri Kristjánsson. Alls taka 17 leik- arar þátt í sýningunni auk barnanna sem óskað er eftir og hljómsveit. Þor- valdur Bjarni semur tónlist og dans- höfundur er hinn kunni Lee Proud. Prufurnar eru rafrænar og geta allir sem hafa aldur til tekið þátt, en börn sem hafa annað tungumál en íslensku að móðurmáli eru sérstak- lega hvött til að sækja um. Upplýs- ingar og kynningarmyndbönd um prufurnar eru því einnig aðgengi- legar á ensku. Óskað er eftir þremur prufum, dans-, leik- og söngprufu, sem börnin geta tekið upp á síma og sent inn rafrænt með aðstoð foreldra og aðstandenda í gegnum skráningar- vef leikhússins. Síðasti skiladagur er sunnudagurinn 20. nóvember. Nánari upplýsingar má finna á vef Þjóðleikhússins. n Þjóðleikhúsið leitar að krökkum í Draumaþjóf tsh@frettabladid.is Listahópurinn Wunderland sýnir þátttökuverkið Horse Inside Out í Hafnarhúsinu. Sviðslistakonan Mette Aakjær segir verkið byggt á hinum ýmsu eiginleikum hesta. Í dag verður þátttökuinnsetningin Horse Inside Out eftir listhópinn Wunderland opnuð í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu. Um er að ræða norrænt list- og rann- sóknarverkefni sem hefur verið í þróun í nokkur ár og var áður sett upp í Danmörku og Finnlandi. „Þetta er skúlptúr og innsetning sem er nógu stór fyrir manneskju til að fara inn í. Það fer einn ein- staklingur inn í einu, sem kannar umhverfið upp á eigin spýtur. Í öðru rými er svo flytjandi sem við- komandi á samskipti við. Þetta er fjölskynjunarskúlptúr sem þú upp- lifir með öllum skilningarvitunum, lykt, hljóði, sjón og snertingu,“ segir danska sviðslistakonan Mette Aak- jær, stofnandi Wunderland. Viðkvæmni og kraftur hesta Skúlptúrinn sem um ræðir er í lag- inu eins og stórt tjald með lífrænu útliti. Mette segir Wunderland hafa sótt innblástur fyrir verkið til ólíkra eiginleika hesta. „Innblásturinn er hestur en þetta líkist þó ekki hesti. Við sækjum á vissan hátt í eiginleika hestsins, þessa viðkvæmni en einnig þenn- an gífurlega kraft sem hestar hafa. Allt frá því að standa kyrrir yfir í að ferðast mjög hratt með miklum krafti. Þannig að það er allt róf hestsins, lyktin, hljóðin, allt saman,“ segir hún. Af hverju sóttuð þið innblástur til hesta? „Ég held að almennt séð liggi áhugi okkar í að breyta skynjun fólks á raunveruleikanum í gegnum líkamann og skilningarvitin. Við erum algjörir nördar hvað þetta varðar. Það eru margar leiðir til að vera í líkama sínum og í þessu verki vinnum við með upplifun sem er mjög jarðtengjandi. Þetta getur verið mjög villt og mjög ólíkt fyrir hvern og einn einstakling en við erum að sækja í kraft frá jörðinni, kraft sem hesturinn hefur einnig.“ Ólíkt fyrir hvern og einn Er þetta þá einhvers konar ritúal? „Maður gæti sagt það en ég er allt- af mjög varkár að setja merkimiða vegna þess að ég vil ekki að fólk sjái þetta bara á einn hátt. Ég kalla þetta bara upplifun af því að það er opið hugtak og er líka eitthvað sem við vinnum mikið með, að hafa hluti opna fyrir túlkun,“ segir Mette og bætir við að upplifunin sé ólík fyrir hvern og einn einstakling. Eins og áður sagði er Horse Inside Out partur af stærra rannsóknar- verkefni sem Wunderland hefur unnið að í samstarfi við Interacting Minds Centre hjá Árósaháskóla og ARoS listasafnið í Árósum. „Í samstarfi við okkur gerðu þau rannsókn þar sem áhorfendum sem komu út af upplifuninni var boðið að skoða sérstaka listsýningu og síðan var tekið viðtal við þá á sér- stakan hátt með heyrnartól á. Spyrj- andinn spurði þau að mismunandi hlutum eins og hvort upplifunin hefði áhrif á það hvernig þau upp- lifðu listaverkin eftir á,“ segir Mette. Að sögn hennar var það eitt af markmiðunum með Horse Inside Out að vera í sjálfu sér listaverk en einnig að opna skilningarvit áhorf- enda fyrir nýjum upplifunum. „Við komumst að því að upplifun- in hafði þau áhrif á fólk að það var næmara fyrir myrkri og hreyfingu eftir á og hreyfði sig á ólíkan hátt inni í sýningarrýminu.“ Breytti lífi eins áhorfanda Hvernig hafa viðbrögð áhorfenda við verkinu verið? „Þau hafa verið mjög, mjög góð. Við höfum fengið margar stjörnur hjá gagnrýnendum eins og þegar við sýndum verkið í Finnlandi fengum við til dæmis ýmis hjart- næm ummæli. Eitt sinn þegar við vorum að ganga niður götu í Finn- landi þá öskraði einhver skyndi- lega á eftir mér: „Horse Inside Out breytti lífi mínu!“. Það er auðvitað svolítið klikkað og kannski ekki eitthvað sem gerist í hvert skipti, en það var algjört vá-augnablik.“ Wunderland munu svo koma aftur til Íslands í ágúst á næsta ári með nýtt verk í samstarfi við fram- leiðslufyrirtækið MurMur. „Við erum að koma með annað verk sem heitir Twisted Forest sem verður sýnt í Heiðmörk. Það er stærra staðbundið verk sem er næstum tveggja klukkutíma löng upplifun,“ segir Mette. Horse Inside Out er opið í Lista- safni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, frá 11. til 23. nóvember og frítt er inn á viðburðinn. n Hestur á röngunni Mette Aakjær segir markmið verksins vera að opna skilningarvit áhorfenda fyrir nýjum upplifunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Eitt sinn þegar við vorum að ganga niður götu í Finnlandi öskr- aði einhver skyndilega á eftir mér: „Horse Inside Out breytti lífi mínu!“. Mette Aakjær Laugarnar í Reykjavík O pnunar tími í lau g unum laugardag og sunnudag vegna árshátíðar starfsmanna ÍTR Árbæjarlaug Breiðholtslaug Dalslaug Grafarvogslaug Laugardalslaug Sundhöll Vesturbæjarlaug 22:00 22:00 17:00 22:00 18:00 22:00 18:00 10:00 10:00 10:00 10:00 10:00 10:00 10:00 Laugardaginn 12. nóv. Opið til klukkan Sunnudaginn 13. nóv. Opnar klukkan 56 Menning 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 12. nóvember 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.