Fréttablaðið - 12.11.2022, Blaðsíða 12
www.mitsubishi.is/eclipse Laugavegi 174, 105 Rvk. Sími 590 5000 www.hekla.is
Höldur Akureyri Bílasala Selfoss Bílás Akranes Bílakjarninn Reykjanesbæ BVA Egilstöðum
Þægindi og frelsi
Förum af stað
Mitsubishi Eclipse Cross PHEV 4x4
Engin bið. Ekkert hik.
Hvernig sem veðrið er. Hvernig sem færðin er.
Hvernig sem staðan á rafhlöðunni er.
Hver sem áfangastaðurinn er.
Verð frá 6.390.000 kr.
5
ár
a
áb
yr
gð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
ek
lu
a
ð
up
pf
yl
lt
um
á
kv
æ
ðu
m
á
by
rg
ða
rs
ki
lm
ál
a.
Þ
á
er
a
ð
fin
na
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
by
rg
d.
Hann sagðist hafa
þurft að byrja á því að
reka sjálfan sig sem
framkvæmdastjóra
eigin lífs.
Ný rannsókn sýnir að tólf
spora kerfið reynist alkóhól-
istum best í bata, en almennt
eiga þeir þó erfitt með að átta
sig á hver hinn æðri máttur er
sem gagnast þeim helst.
ser@frettabladid.is
HEILBRIGISMÁL Flestir alkóhólistar
ná mestum og lengstum bata með
því að viðurkenna fyrir sjálfum sér
að þeir hafi tapað algerlega fyrir
sjálfum sér. Sigurinn er falinn í fullri
uppgjöf og sterkri trú á tólf spora
kerfið sem sannarlega virkar til að
ná sér frá vímufíkninni.
Þetta er helsta niðurstaða viða-
mikillar rannsóknar hjónanna
Sigurlínu Davíðsdóttur og Ragnars
Inga Aðalsteinssonar sem ræddu
mjög ítarlega við fimmtíu alkó-
hólista sem hafa náð því að lifa alls-
gáðu lífi. Allir voru þeir spurðir hvað
þeir hefðu gert til að ná þessum
árangri. Tilgangurinn var að draga
fram mynd af því hvað helst og best
varðar veginn til langvarandi bata.
Niðurstöðurnar eru mjög afger-
andi. „Já, allir sem við töluðum við
voru á einu máli um það að árangur-
inn felst í uppgjöfinni,“ segir Sigur-
lína. „Viðmælendur okkar voru ekki
bara sammála um að þeirra leiðir
hefðu ekki gagnast þeim, heldur
væru þær ónýtar með öllu,“ bætir
hún við.
Hún tekur dæmi af einum við-
mælendanna – og segir svar hans
lýsandi fyrir sjálfsskoðun alkóhól-
ista sem ná árangri. „Hann sagðist
hafa þurft að byrja á því að reka
sjálfan sig sem framkvæmdastjóra
eigin lífs.“
Sigurlína og Ragnar hafa sjálf
verið vímulaus í áratugi og nota nú
efri árin til að kynnast leiðum alkó-
hólista til bata sem geta verið ein-
faldar en ekki endilega auðveldar.
Sigurlína er prófessor emeritus í
Alkóhólistar ná
mestum bata með
fullri uppgjöf
Hjónin Sigurlína
Davíðsdóttir
og Ragnar Ingi
Aðalsteinsson
þráspurðu
fimmtíu óvirka
alkóhólista um
leið þeirra að
farsælum og
langvarandi
bata og rann-
sóknin er nú
komin út á bók,
Sigurinn liggur í
uppgjöfinni.
MYND/AÐSEND
Leið alkóhólista til batans getur verið einföld en ekki endilega auðveld, segir í rannsókn hjónanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ser@frettabladid.is
HÚSNÆÐISMÁL Framkvæmdir við
þéttingu byggðar við Valhöll, höfuð-
stöðvar Sjálfstæðisflokksins, eru vel
á veg komnar.
Borgarmyndin á þessu svæði
breytist til muna við byggingu 47
íbúða í þyrpingu sem nú er tekin
að rísa úr jörðu. Auk þess er gert ráð
fyrir nýrri fimm hæða skrifstofu-
byggingu á lóðinni og bílakjallara.
Skrifstofuhúsið rís næst Kringlu-
mýrarbraut, en íbúðahúsið, sem
einnig verður á fimm hæðum, stend-
ur á horni Skipholts og Bolholts.
Í skilmálum Reykjavíkurborgar,
eiganda lóðarinnar, er kveðið á um
að flestar íbúðanna verði eins eða
tveggja herbergja og að hartnær
fjórðungur skuli vera leiguíbúðir.
Gerð er krafa um þakgarða á
fjórðu hæð íbúðarhússins og skulu
þeir hafa grænt yfirbragð. „Með því
er átt við gras, runna, tré eða annan
gróður sem fær að vaxa á þakinu,“
segir í kvöðunum, en jafnframt er
opnað á möguleika á sameiginlegan
þakgarð fyrir íbúa hússins á fimmtu
hæð. n
Grænar íbúðir
rísa við Valhöll
Á fimmta tug íbúða verða byggðar.
12 Fréttir 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ