Fréttablaðið - 12.11.2022, Side 13
Í október 2001 voru 3
prósent ökumanna á
nöglum. Í október í ár
eru það 15 prósent.
www.mitsubishi.is/eclipse Laugavegi 174, 105 Rvk. Sími 590 5000 www.hekla.is
Höldur Akureyri Bílasala Selfoss Bílás Akranes Bílakjarninn Reykjanesbæ BVA Egilstöðum
Þægindi og frelsi
Förum af stað
Mitsubishi Eclipse Cross PHEV 4x4
Engin bið. Ekkert hik.
Hvernig sem veðrið er. Hvernig sem færðin er.
Hvernig sem staðan á rafhlöðunni er.
Hver sem áfangastaðurinn er.
Verð frá 6.390.000 kr.
5
ár
a
áb
yr
gð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
ek
lu
a
ð
up
pf
yl
lt
um
á
kv
æ
ðu
m
á
by
rg
ða
rs
ki
lm
ál
a.
Þ
á
er
a
ð
fin
na
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
by
rg
d.
Viðmælendur okkar
voru ekki bara sam-
mála um að þeirra
leiðir hefðu ekki
gagnast þeim, heldur
væru þær ónýtar með
öllu.
Ummæli viðmælenda
„Það kom mér á óvart hvað ég
hafði verið stjórnlaus á mörgum
sviðum og eins hvað ég var illa
áttaður á tengslum mínum við
áfengi og önnur vímuefni.“
„Æðri máttur er hvar sem er,
eins og ég skynja hann.“
„Allt hefur breyst. Ekki bara
efnislega, líka það andlega líf
sem ég hef fengið í staðinn, öll
dýptin.“
„Þolinmæði, dagurinn í dag. Ef
dagurinn í dag heppnast, þá eru
miklu betri líkur á að morgun-
dagurinn heppnist líka.“
„Það skiptir svo miklu máli að
hafa þetta skemmtilegt. Það
er alltof lítið talað um að þetta
þarf að vera skemmtilegt.“
„Nú er ég ekki að brjóta mottóin
mín, það er munurinn. Það er
annaðhvort framför eða eftir-
för, það er ekkert þar á milli.“
uppeldis- og menntunarfræðum
við Háskóla Íslands, en Ragnar
vann lengst af sem kennari í grunn-
skóla og er jafnframt kunnur af rit-
störfum sínum um árabil. Bæði eru
þau meðal stofnanda Krýsuvíkur-
samtakanna sem sinnt hafa þeim
landsmönnum sem hafa þurft að
koma aftur og aftur í meðferð, svo
reynsla hjónanna af málaflokknum
er ærin.
Rannsókn þeirra er nú komin út á
bók sem ber heitið Sigurinn liggur í
uppgjöfinni, með undirtitlinum
Allt hálfkák reyndist okkur gagns-
laust. Og það er í báðum þessum
titlum sem lykillinn að lífsgæð-
unum felst, að mati höfunda.
„Það er sammerkt með viðmæl-
endum okkar að grunnurinn sem
þeir hafa byggt á er ónýtur,“ segir
Sigurlína. „Það þarf hreinlega að
henda honum og byrja upp á nýtt,“
bætir hún við – og heldur áfram: „Og
fyrst að grunnurinn var byggður á
þeirra eigin leiðum, þá verða þeir að
finna aðrar leiðir, allt aðrar leiðir.“
Og þá er næsta skref hiklaust
það að treysta öðrum til að hjálpa
sér. „Og í þessu felst afdráttarlaust
æðruleysi,“ segir Sigurlína. „Og það
gerist þegar þú veist fyrir víst að þú
hefur tapað algerlega fyrir sjálfum
þér.“
Rannsóknin sýnir að tólf spora
kerfi AA-samtakanna reynist óvirk-
um alkóhólistum vel í hvívetna.
„Og þar eru viðmælendur okkur
sammála um að sækja þarf til æðri
máttar, hver svo sem hann er. Og
sumir eru þar lengi leitandi. En þeir
þurfa að treysta einhverjum sem er
utan við þá sjálfa. Það er lykil atriði,“
segir Sigurlína.
„Flestir sjá sinn æðri mátt í AA-
samtökunum,“ bætir hún við. „en
aðrir finna hann í Guði almátt-
ugum. Enn aðrir sjá æðri máttinn
í náttúrulögmálunum – og sumir
jafnvel bara í mömmu. En hann
þarf að vera til staðar,“ segir Sigur-
lína Davíðsdóttir. n
benediktboas@frettabladid.is
UMHVERFI Í bókun borgarmeiri-
hlutans um nagladekkjanotkun,
sem rædd var á fundi umhverfis- og
skipulagsráðs, er spurt hvort lög-
reglan hafi heimild til að fara á svig
við lögin.
Nagladekkjanotkun hefur aukist
verulega síðustu árin og segir í bók-
uninni að mikil nagladekkjanotkun
í Reykjavík hafi alvarlegar afleið-
ingar í för með sér fyrir borgarbúa.
„Þess vegna er óheppilegt að lög-
reglan lýsi því yfir hvað eftir annað
að ekki verði sektað fyrir notkun
nagladekkja áður en nagladekkja-
tímabilið hefst. Sú spurning vaknar
óhjákvæmilega hvort lögreglan hafi
heimild til að fara á svig við lögin,“
segir í bókuninni.
Fulltrúar Sjálfstæðisf lokksins
sögðu að skýrar vísbendingar væru
um að nagladekkjanotkun í Reykja-
vík sé að aukast og hún verði meiri á
komandi vetri en síðasta vetur.
„Þessa þróun má líklega rekja til
óánægju með frammistöðu Reykja-
víkurborgar við snjóruðning í húsa-
götum síðasta vetur, ekki síst í efri
byggðum. Þá þjónustu þarf að
bæta.“
Bendir f lokkurinn á að draga
megi verulega úr svifryksmengun
með því að bæta fræðslu um skað-
semi nagladekkjanotkunar í því
skyni að draga úr henni. n
Telja farið á svig við lög
Borgarbílar komust í fréttir fyrir nagladekkjanotkun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Leið alkóhólista til batans getur verið einföld en ekki endilega auðveld, segir í rannsókn hjónanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 12. nóvember 2022 Fréttir 13