Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.11.2022, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 12.11.2022, Qupperneq 32
Fyrir utan að þurfa að takast á við sorgina og söknuðinn breytist svo margt í lífinu við að vera orðinn einn. Guðfinna Eydal Mikilvægt er að minna sig á að sorgarviðbrögð eru ávallt einstaklings- bundin og það er ekk- ert rétt eða rangt við það hvernig fólk bregst við sorg. Guðfinna Eydal sálfræðingur og Anna Ingólfsdóttir rithöf- undur gáfu nýlega út bókina Makamissir. Bókin er leiðar- vísir þar sem veitt er innsýn í það sem gerist þegar ein- staklingur missir maka sinn, en bæði Anna og Guðfinna hafa misst maka. Guðfinna Eydal sálfræð- ingur og Anna Ingólfs- dót t ir r it höf u ndu r eiga það sameiginlegt að hafa orðið fyrir því áfalli að hafa misst maka sína. Anna missti mann sinn úr krabbameini þegar hún var 35 ára með þrjú ung börn, en eiginmaður Guðfinnu dó skyndidauða 67 ára gamall. Anna hafði ritað í dagbók um líðan sína, sorg og vangaveltur í veikindum og eftir andlát manns síns. Hún kom að máli við Guðfinnu og sýndi henni dagbókarfærslurnar. Sem sálfræðingur sá Guðfinna að dagbókarskrifin lýstu vel áfalli og sorg við makamissi. Þannig hófst samstarf þeirra, en þær gáfu nýlega út bókina Makamissir, þar sem veitt er innsýn í það sem gerist í lífi ein- staklings þegar maki hans deyr. Guðfinna segir að um 70 pró- sent fólks verði fyrir einu eða fleiri áföllum á lífsleiðinni. „Makamissir er algengasta áfallið og talið vera eitt það alvarlegasta,“ segir hún. Guðfinna segir alla þá sem missa einhvern sem þeir elska, fara í gegn- um sorg og sýna ákveðin viðbrögð. Fyrstu algengu viðbrögð við maka- missi séu bæði sálræn og líkamleg. Dæmi um sálræn viðbrögð eru doði, kvíði, depurð, reiði og líkam- leg viðbrögð geta verið innri óróleiki, svefnleysi, niðurgangur og breyting- ar á matarlyst svo eitthvað sé nefnt. „Flestir leita sér ekki faglegrar hjálpar, að minnsta kosti ekki til að byrja með og fást við sorg sína með sínum nánustu, bæði fjölskyldu og vinum,“ segir Guðfinna. „Ákveðinn hluti fólks á hins vegar erfitt með að sætta sig við orðinn hlut og lifa með missinum. Þau sýna langvarandi vanlíðunarviðbrögð og glíma gjarnan við heilsufars- vanda. Um 10 prósent þjást af því sem kallað er áfallastreituröskun og svipað hlutfall fólks glímir við það sem kallað er viðvarandi sorg. Sérstaklega mikilvægt er fyrir þessa hópa að leita sér faglegrar aðstoðar,“ bætir Guðfinna við. Hún segir að það sem gerir maka- missi sérstakan sem áfall sé að hann grípi inn í líf fólks á afar afgerandi og flókinn hátt. „Fyrir utan að þurfa að takast á við sorgina og söknuð- inn breytist svo margt í lífinu við að vera orðinn einn,“ segir Guðfinna. „Hlutverk og staða breytast. Fjár- hagsstaða verður önnur. Besti vin- urinn og sá sem þekkti þig best er farinn. Nú þarf að endurskipuleggja og endurmeta lífið á margvíslegan hátt. Þú stendur á krossgötum. Manneskjan þarf að kynnast sjálfri sér upp á nýtt og miða allt við sig án þess að geta leitað lengur samráðs við maka sinn,“ útskýrir hún. „Maður er líka að syrgja framtíð- ina sem aldrei varð en átti að verða,“ segir Anna. „Og svo er maður auðvitað óendanlega sorgmæddur yfir sorg barnanna sinna sem hafa misst for- eldi sitt. Það er flókin staða að vera orðin eina foreldrið. Að þurfa að vera stoð og stytta fyrir börnin sín á sama tíma og maður er að syrgja sjálfur. Vert er að geta þess að um 100 börn missa foreldri sitt á hverju ári á Íslandi,“ segir hún. Nýlega var lagt fyrir fyrir Alþingi frumvarp um sorgarleyfi vegna makamissis. Með frumvarpinu er lagt til að eftirlifandi maki með börn í uppeldi fái sorgarleyfi. Guðfinna og Anna eru sammála um að innihald frumvarpsins sé mikilvægt. Þá eru þær sammála um að auka þurfi réttindi fólks sem verður fyrir missi, þar sem vitað er að af leið- ingar alvarlegra áfalla geta leitt til langvarandi heilsubrests, sem ómeðhöndlaður getur kostað sam- félagið mikla fjármuni. Þó það taki fólk mislangan tíma að læra að lifa með missinum þá taki það yfirleitt lengri tíma en samfélagið geri ráð fyrir. Þetta sé reynsla f lestra sem hafa þurft að fara í gegnum sára sorg. Guðfinna segir að umræða um áföll hafi aukist undanfarin ár. Það þurfi hins vegar, að hennar mati, að gera málefni áfalla, sorgar og sorg- arúrvinnslu enn betri skil. „Tilgangur okkar með að skrifa bókina Makamissir er liður í þess- ari viðleitni og við erum sann- færðar um það að þessi bók geti verið mikilvæg hjálp fyrir marga, bæði fyrir þá sem hafa nýlega misst og ekki síður fyrir fólk sem hefur misst maka sinn fyrir einhverjum árum síðan,“ segir Guðfinna. „Bókin getur einnig gagnast fyrir fólk sem hefur ekki reynslu af maka- missi en vill setja sig inn í málefnið. Hún er einnig ætluð fyrir þá sem vinna með fólk í tengslum við áföll,“ bætir Guðfinna við. n Flókið áfall þegar maki deyr 12 boðorð eftir makamissi: n Hlúa að sér og virða tilfinningar sínar n Taka út þjáninguna og fara í gegnum sorgina n Sýna þrautseigju og úthald n Halda í vonina og efla jákvætt hugarfar n Finna fyrir þakklæti fyrir að hafa átt makann n Varðveita dýrmætar minningar n Taka lífinu ekki sem sjálfsögðu n Hugsa um dauðann n Skynja eigið mikilvægi fyrir sína nánustu n Afla sér þekkingar um áföll n Hafa samkennd með sjálfum sér og öðrum n Finna lífi sínu tilgang Guðfinna Eydal og Anna Ingólfsdóttir unnu saman að bókinni Makamissir, en þær eiga það sameiginlegt að hafa misst maka. Þær segja fæsta sem lenda í slíku áfalli leita sér faglegrar aðstoðar, að minnsta kosti ekki til að byrja með. Mikilvægt sé fyrir ákveðna hópa sem missa maka sinn að fá faglega aðstoð. Sér í lagi þau sem fá áfallastreituröskun eða viðvarandi sorg. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Birna Dröfn Jónasdóttir birnadrofn @frettabladid.is 32 Helgin 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.