Fréttablaðið - 12.11.2022, Page 43
Orkuveita Reykjavíkur
leitar að stórhuga
forstýru eða forstjóra
Orkuveita Reykjavíkur er 100 ára gamalt frumkvöðlafyrirtæki sem leggur grunn
að lífsgæðum á Íslandi. Leitað er eftir þaulreyndri, úrræðagóðri og framsýnni
manneskju til að leiða kraftmikinn hóp fagfólks svo fyrirtæki samstæðunnar
dafni sem best. Sjálfbærni og samfélagsábyrgð vega þungt í allri starfsemi
samstæðunnar.
Orkuveita Reykjavíkur samanstendur af fimm fyrirtækjum: Orkuveitu Reykjavíkur,
Veitum, Orku náttúrunnar, Ljósleiðaranum og Carbfix. Forstýra eða forstjóri ber
ábyrgð á Orkuveitusamstæðunni í heild sinni.
Heildareignir OR nema 420 milljörðum króna, velta er um 60 milljarðar og eigið
fé er 220 milljarðar. Viðskiptavinir samstæðunnar eru um tveir þriðju landsmanna.
Hægt er að sækja um á www.or.is og þar má einnig finna nánari upplýsingar um
OR samstæðuna og starfið. Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember 2022.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Hilmar G. Hjaltason: hilmar@vinnvinn.is og Auður Bjarnadóttir: audur@vinnvinn.is
Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastýra mannauðs og menningar OR: ellenyr@or.is
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára