Fréttablaðið - 12.11.2022, Side 75
Margrét Ágústsdóttir
65 ára og stundar þríþraut að kappi
Margrét Ágústsdóttir er ótrúleg ofurkona þegar
kemur að hreyfingu. Hún stundar þríþraut af kappi
og lætur það ekki á sig fá að hún verður 65 ára í haust.
Til að verja liði tekur hún Active JOINTS frá Eylíf.
Margrét segist vera búin að stunda þríþraut í ellefu ár en
því fylgir mikið álag á líkamann. „Á þessum aldri og eftir
miklar líkamlegar æfingar í gegnum árin þurfti ég að finna
eitthvað sem héldi liðamótunum góðum. Ég var búin að
prófa ýmislegt þegar ég rambaði á Active JOINTS frá Eylíf
fyrir svona tveimur árum. Síðan hef ég ekki fundið fyrir
neinu í liðunum. Active JOINTS virkar svona vel fyrir mig.
Þess vegna finnst mér í góðu lagi að mæla með því fyrir aðra.
Ég vil að fólk viti af þessu fæðubótarefni
„Ég var farin að finna fyrir eymslum í liðunum eftir strangar
æfingar, sérstaklega á morgnana þegar ég fór fram úr.
Ég finn ekki fyrir því lengur. Að keppa og æfa mikið fylgir
meiðslahætta. Ef það gerist þarf að slaka aðeins á, ég fer til
sjúkraþjálfara og passa upp á mig,“ heldur Margrét áfram.
„Fyrir tveimur árum náði ég mér í beinmar í hné og þarf
stundum að nota spelku frá Össuri ef ég finn mikið fyrir því.
Liðirnir eru fínir og það þakka ég Active JOINTS.“
Margrét tekur þrjú hylki af Active JOINTS frá Eylíf á
morgnana eins og mælt er með. „Ég fann mjög fljótlega
eftir að ég byrjaði að taka Active JOINTS að liðleikinn
var allt annar. Ég er því ákveðinn í að halda áfram að taka
Active JOINTS. Mér finnst mikill plús að Active JOINTS
er íslenskt fæðubótarefni með hreinum efnum úr okkar
náttúruauðlindum.“
Hrein íslensk fæðubót
frá Eylíf Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Hagkaup,
Krónunni, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum og Nettó
Ókeypis heimsending á eylif.is ef keypt er fyrir 7000 kr eða meira
Vörulínan frá Eylíf
Vörulínan Eylíf býður upp á fimm vörur, Active
JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN &
HAIR, Happier GUTS og nýjasta varan er Stronger
LIVER, allt vörur sem hafa reynst fólki vel.
Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum,
engum aukaefnum er bætt við og framleiðslan er á
Grenivík.
Íslensku hráefnin sem notuð eru í allar Eylíf vörurnar eru:
• Kalkþörungar frá Bíldudal
• Smáþörungar (Astaxanthin) frá Reykjanesbæ
• GeoSilica frá Hellisheiði
• Kollagen frá Sauðárkróki
• Kítósan frá Siglufirði
• Íslenskar jurtir handtíndar frá fjölskyldufyrirtæki
í Hafnarfirði
Active JOINTS frá Eylíf hefur
gjörbreytt leiknum fyrir mig
„Ég, eins og aðrir sem komnir eru á minn aldur og
stunda hreyfingu, var farinn að finna fyrir stirðleika í
liðamótum og sting í hnjánum sem reynir oft mest á
þegar klumpar eins og ég eru að reyna að skoppa. Svo
varð mér til happs að ég sá auglýsingu þar sem mér
eldri maður, en ágætis kunningi minn, hann Hartmann
hjólari, talaði um hversu ánægður hann væri með
bætiefnið Active JOINTS frá Eylíf. Í kjölfarið fór ég og
keypti mér glas af Active JOINTS og hef eiginlega
ekki sleppt úr degi, rúmlega hálfu ári síðar.“ Þetta
segir Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Votlendis-
sjóðsins og tónlistarmaður. „Ég fann eiginlega strax
mun daginn eftir og keypti mér líka Happier GUTS
frá Eylíf en bæði efnin hafa reynst mér mjög vel. Ég
hef nú prófað eitt og annað í gegnum tíðina og konan
mín myndi örugglega segja að henni fyndist fullmikið
af nýopnuðum dósum af allskonar heima, því ég er
alltaf að leita að einhverju sniðugu, sem svo virkar
sumt en flest ekki, en þetta virkar svo sannarlega vel
og ég gæti ekki verið ánægðari með vöruna,“ segir
Einar. Hann er mikið á faraldsfæti í lífi sínu og starfi.
„Ég hjóla mikið og labba, passa að ganga upp og
niður stiga í stað þess að taka lyftuna og finnst Active
JOINTS hafa gjörbreytt leiknum fyrir mig. Fyrir mann
eins og mig, sem er í yfirvigt, og þótt ég hafi oft verið
í meiri yfirvigt en ég er í dag, þá fylgir mikilli hreyfingu
áreynsla á hnén. Ég fann alltaf fyrir seiðingi og sting
í hnénu en það er bara alveg farið. Því duga engar
afsakanir lengur; bara gjöra svo vel að fara út að hreyfa
sig og núna er það bara gaman.“
Einar fer fyrir Votlendissjóði og því
fylgir bæði ferðalög og flakk
„Í vinnunni geng ég mikið úti í náttúrunni til að
skoða mýrlendi og þá þyngist oft labbið í þýfnum og
blautum jarðvegi og mikið um skröngl og brölt, en nú
finn ég ekkert fyrir því. Áhugamálið felst svo í því að
ég og smá hópur í kringum mig höldum íþrótta- og
afþreyingamót fyrir fólk á miðjum aldri, svo sem
hjólamót, utanvegahlaup og hitt og þetta, og því
fylgir líka undirbúningur við að skoða leiðir og
þvælast á vettvangi, því á einni slíkri keppnishelgi
þarf að djöflast um og labba fleiri tugi kílómetra, og
þá er ekki verra að vera með liðina vel smurða,“ segir
Einar ánægður með árangurinn. „Þegar maður hefur
glímt við óþægindi og er í yfirvigt er ríkt í manni að
reyna að komast hjá því að hreyfa sig af því maður
veit að því fylgir áreynsla og vont nudd á hnjám,
en þegar hverfur, eins og hefur gerst hjá mér með
Active JOINTS, þá tekur smá tíma að sannfæra
hausinn um að kvíða því ekki lengur að hlaupa upp í
móti eða skjótast það sem þarf. Hausinn þarf að venjast
því að hafa ekki lengur áhyggjur af óþægindum
en svo kemur að því að hann segir: „Þetta verður allt í
lagi; óþægindin eru farinn. Gott! Hlaupum bara af
stað!“ og þá gerir maður einmitt það,“ segir Einar kátur.
Mælir hiklaust með Active JOINTS og
Happier GUTS
Einar segir mikinn lífsstílslétti að finna ekki lengur
seiðing né sting í hnjánum og hann er ekki frá því að
Active JOINTS hafi góð áhrif á fleiri liði líkamans. „Svei
mér ef ég er ekki líka orðinn fimari í fingrunum því ég
er farinn að setjast oftar niður með gítarinn og kannski
það sé Active JOINTS af þakka. Hver veit nema maður
semji jólalag,“ segir hann glettinn og hlær. „Undan-
farin ár hef ég verið heldur rólegri í tónlistinni en ég
vildi, en nú er ég aðeins farinn að spá og spekúlera
meira og í febrúar ætla ég að halda kassagítarstónleika
hér og þar á landinu með þeim sem hafa gert flest
lögin mín þekkt. Þar tökum við lagið ég og Gunni Óla,
Magni, Skímó og kannski Klara í Nælon; fyrst og
fremst okkur til skemmtunar og þeim sem hafa
gaman af því að hlusta á okkur,“ segir Einar, fullur
tilhlökkunar og létt að laus við óþægindin.
„Ég mæli hiklaust með Active JOINTS og
Happier GUTS frá Eylíf og svo finnst mér ekki
verra að vita til þess að bætiefnin frá Eylíf eru
framleitt hér heima; úr íslenskum hráefnum úr
hreinni, íslenskri náttúru.“
Einar Bárðarson
Hrein íslensk óerfðabreytt hráefni
Íslensk framleiðsla
Heilsan er dýrmætust
Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki
ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka
meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem
börn ná ekki til.