Símablaðið - 01.12.1982, Qupperneq 24
Marta B. Guðmundsdóttir, Björgvin Lúthersson og
Hermann Guðmundsson, í ræðustól.
Stöðvar-
stjórar
r
a
aukafundi
Aukafundur var haldinn í deild stöðvarstjóra í F.Í.S. 11. september 1982 í matstofu Pósts
og síma í Sigtúni við Austurvöll.
Á dagskrá voru aðallega tvö mál, annars
vegar að kynna breytingatillögu við punkta-
kerfi það sem stöðvarstjórar eru raðaðir í
launaflokka eftir og hinsvegar nýgerðir kjara-
samningar.
Garðar Hannesson hafði framsögu um
breytingatillögu sem lögð var fram við síðustu
sérkjarasamninga FÍS þar sem fékkst bókun
um að endurskoðað yrði punktakerfi stöðvar-
stjóra Pósts og síma og við þá endurskoðun
verði m.a. höfð hliðsjón af tillögunni. Voru
fundarmenn sammála um, að núverandi
punktakerfi væri orðið úrelt og þörf á að gera
gagngerðar breytingar á því. Tillaga sú sem
var til umræðu hafði verið send öllum stöðvar-
stjórum í deildinni til kynningar, og samþykkti
fundurinn tillöguna með smábreytingum, og
fól stjórn deildarinnar að sjá um undirbúning
að viðræðum þeim sem lofað var í bókun í sér-
kjarasamningi FÍS þar sem tekið er fram að
viðræðum verði lokið fyrir 1. maí 1983.
Ágúst Geirsson formaður FÍS skýrði frá
kjarasamningum og hvað hann taldi hafa
áunnist í síðustu aðal- og sérkjarasamningum,
tóku margir til máls undir þessum lið og svar-
aði Ágúst fyrirspurnum sem beint var til hans.
Fundarmenn voru sammála um að nokkuð
hefði áunnist í samningunum og voru sérstak-
lega ánægðir með aldurshækkanirnar.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt á fundinum:
Fundur stöðvarstjóra Pósts og síma haldinn
11. september 1982 mótmælir harðlega bráða-
birgðalögum ríkisstjórnarinnar þar sem gert
er ráð fyrir verulegri skerðingu á kaupgjalds-
vísitölu launafólks. Virðist sú ákvörðun í hróp-
legri andstöðu við yfirlýstan vilja ríkisstjórn-
arinnar og vonir sem við hana hafa verið
bundnar.
Fundurinn bendir á að opinberir starfsmenn
hafi orðið sérstaklega hart úti í kjarasamning-
um síðustu ára og nefnir, í því sambandi að
launaskerðing hjá þeim miðað við þrjú síðustu
ár hafi orðið mun meiri en aðrar stéttir hafi
þó sloppið með.
Skorar fundurinn á forystumenn í samtök-
um launafólks hjá ríki og bæ að standa fast á
rétti umbjóðenda sinna og láta ekki sitja við
orðin tóm, til að ná fram kjörum, sem séu
sambærileg við kjör annarra starfshópa þjóð-
félagsins.
82 SÍMABLAÐIÐ