Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.12.1982, Qupperneq 28

Símablaðið - 01.12.1982, Qupperneq 28
vinnu, en í okkar eigin tíma heim. Þó ekki væri lengra að fara til vinnu, en inn á Sund- laugaveg, var legið við í tjöldum, (tjöldin voru á mótum Reykjavegar og Sundlauga- vegar) og ekki máttum við fara heim nema um helgar, en unnið var til kl. 18 á laugardögum. Við vorum á tímakaupi og greitt var fyrir 10 klst. vinnu á dag hversu lengi sem unnið var. Yfirvinna mátti ekki sjást á reikningnum. Miðað var við að unnið væri frá kl. 7 að morgni, til kl. 6 að kveldi, með 1 klst. matar- hlé. En oft var unnið langt fram eftir nóttu, ef með þurfti og þá að sjálfsögðu kauplaust. Þegar Björnæs var verkstjóri „gaf“ hann okk- ur þó stundum kaup fyrir einn sunnudag í mánuði, ef mikið var um næturvinnu. Það var ekki fyrr en í stríðsbyrjun, sem loks var farið að greiða eftirvinnu. Staurar í línubygg- ingar voru dregnir af hestum, en við bárum verkfæri og stauraskó á sjálfum okkur. Ósjaldsan þurftum við að bera staurana á öxl- um okkar, tveir saman. Var þá oft erfitt að komast yfir mýrar, fen og flóa, hraun og hæðir. Yfirleitt var legið við í tjöldum og gat það verið kuldalegt á stundum, því þau héldu hvorki vatni né vindi. Enginn hiti var í þeim og tók það okkur mörg ár, að fá leyfi til að hafa prímusa eða olíuvélar til hitunar. Það þótti alltof kostnaðarsamt. Kokkur fylgdi hópnum. Hitaði hann kaffi og bar í hvert tjald kl. 6 að morgni og eldaði svo matinn að kveldi, en Síminn sá um útveg- un hans, en við urðum að greiða hann sjálfir. Aðalfæðan var saltfiskur og kartöflur, hafra- grautur og mjólk. Mjólk urðum við að snapa á næstu bæjum. Eldað var á prímus með 2—3 hausum. Aðeins var heitur matur einu sinni á dag, en við höfðum með okkur brauð, ef til var, og ketil til að hita í kaffi, út á línur. Þetta gat verið harðsótt. Oft var 1—2 klst. gangur frá tjöldum og út á línur og ef langt var að ganga og mikið að flytja, var haldið áfram að vinna í allt að 16—18 klst. Unnið var í hvaða veðri sem var. Við klæddumst ullarfötum og trollstökkum. Hlífðu þeir vel bæði vætu og kulda. Fólkið á bæjunum þvoði af okkur fatnað. Það var fegið hverjum eyri sem það gat feng- ið, auraráðin voru svo lítil. Að vetrinum til héldum við til á sveitabæj- 86 SÍMABLAÐIÐ um, en það var oft erfitt hjá fólki að taka við okkur vegna þrengsla og matarskorts. Á ein- um bænum var ekkert til nema saltaður stein- bítur, engar kartöflur og sama og engin mjólk. Nú þykir þetta trúlega ekki eftirsóknarvert, en í þá daga komust færri að en vildu. Strákarnir hjá Símanum sýndu mér aðbún- aðinn þeirra í fyrra. Mikil er sú breyting. Nú eru komnir skúrar, fullkomið eldhús, W.C. og steypiböð. Það eru tvennir tímar. Hvenær hófst verkstjórn þín hjá Símanum? Mér var falin verkstjórn símamannaflokks árið 1925 og hófst hún með því, að ég fór vest- ur á firði með vitaskipinu Hermóði til að gera við sæstreng í Arnarfirðinum. Farþegar um borð voru Olav Forberg og Guðmundur Hlíð- dal, sem þá var verkfræðingur Símans og dró Forberg strenginn með okkur. Þá var sett upp símstöð í Arnarfirði. Keypt var bátkæna til að flytja dótið á henni inn í Djúp þar sem unnið var við viðgerðir, en bát- ur kom þó að takmörkuðum notum, nema rétt við strandlengjuna. Sama ár var ég sendur ásamt fleirum til ísa- fjarðar til viðgerða. Dag nokkurn vorum við Guðmundur Jónsson að strengja upp línu. Hann var uppi í staurnum, en ég hélt í vírinn. Skeði þá það óhapp, að krókurinn sem Guð- mundur hélt sér í losnaði úr staurnum, með þeim afleiðingum að Guðmundur féll til jarðar. Slasaðist hann nokkuð, en þó ekki alvarlega, en varð þó að fara til Reykjavíkur. Þá í nóvember, í ofsaveðrinu mikla, sem nefnt hefur verið Halaveðrið, slitnaði línan yfir Mjóafjörð. Var ég sendur þangað við annan mann til að koma henni í lag. Þegar það var búið fór hann til ísafjarðar, en ég átti að fara til Borðeyrar. Fékk ég mann með mér til að bera stauraskó og vírspotta. Gengum við á fremsta bæinn í Laugardal áður en við héld- um á Steingrímsfjarðarheiði. Þar slóst í för með okkur kaupfélagsstjórinn á Hólmavík. Sæmilegt veður var, en þó kalt og skafrenn- ingur. Ekki vorum við langt komnir er kaup- félagsstjórinn gafst upp. Bundum við saman skíði okkar og reyndum að draga hann á þeim, en þá varð honum kalt. Eftir langa og stranga göngu komumst við að Kleppsstöðum, en við símamennirnir urðum að halda áfram, þvi það var aðeins pláss fyrir einn gest á bænum, húsakynni voru svo lítil.

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.