Símablaðið - 01.12.1982, Qupperneq 41
Frá Eftirlaunadeild F.Í.S.
Sumarferð Eftirlaunadeildar F.Í.S. var far-
in miðvikudaginn 14. júlí s.l. að Laugaskóla
(Sælingsdalslaug) í Dölum. Þátttakendur voru
19. Dvalið var á sumarhótelinu í Laugaskóla
til sunnudags 18. júlí.
Á föstudag var farið með Vestfjarðaleið í
hringferð út Fellsströnd fyrir Klofning, inn
með Gilsfirði um Svínadal til baka. Leiðsögu-
maður var frú Kristín Tómasdóttir f.v. skóla-
stjórafrú að Laugum. Eftir að heim var komið
úr þessari ferð, var efnt til kvöldvöku, þangað
komu góðir gestir þau Ásgeir Bjarnason í Ás-
garði og kona hans. Sungið var og dansað
fram eftir kvöldi.
Sumarhótelið Laugaskóla veitti SLRB af-
slátt af gistingu og fæði og Vestfjarðaleið
veitti einnig afslátt af fargjaldinu.
Allur aðbúnaður á Laugaskóla var með
ágætum.
Guðrún Möller
Nokkrir þátttakendanna í ferðalaginu. F. v.:
Guðrún Möller, Margrét Möller, Helga Finn-
bogadóttir, Vilborg Björnsdóttir, Elly Thom-
sen og Ida Jensen.
Ort til vina
Magnús Björnsson varðstjóri hjá
Skeytaútsendingunni sendir starfsfólki
Innheimtunnar í Reykjavík kveðju.
Jóhann stjórnar jafnan vel
með jöfnu og glöðu sinni.
Þó að fáir þetta finni
þá er hann kóngur í Innheimtunni.
ívar Jóa aðstoð veitir æfðum mundum,
sálma báðir syngja stundum
en sóló ljóð á skemmtifundum.
Kristjana H. er kát og skýr
keppnisandann hefur.
Yfir krafti orðsins býr
aðra stanslaust krefur.
Undan vinnu aldrei flýr
alltof lítið sefur.
Gussý, þú ert gæðafljóð,
gamna ég mér stundum
við að yrkja um þig ljóð,
af okkar draumafundum.
SÍMABLAÐIÐ 99