Fréttablaðið - 19.11.2022, Síða 38
Friðrik A. Jónsson ehf (FAJ) á sér
viðskiptasögu síðan 1942. FAJ er
í þjónustu á tæknibúnaði fyrir skip
og báta með áherslu á siglingatæki,
fiskileitartæki, fjarskiptatæki, ljósa-
búnað og annan rafeindatæknibúnað.
FAJ flytur inn og selur mest af þeim
tækjum, ásamt almennum rekstri
á þjónustuverkstæði sem sér um
uppfærslur, uppsetningar og viðgerðir
á rafeindabúnaði.
Nánari upplýsingar má finna á
www.faj.is.
Sérfræðingur á tækni-
og viðhaldssviði
Friðrik A. Jónsson leitar að iðnmenntuðum einstaklingi í starf sérfræðings á tækni- og viðhaldssviði
fyrirtækisins. Starfið felst í uppsetningum, viðgerðum og almennu viðhaldi á tækja- og tæknibúnaði.
• Iðnmenntun sem nýtist í starfi, t.d. rafeindavirkjun
• Almenn þekking á meðhöndlun efna og frágangi við
uppsetningar
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
• Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
• Aðlögunarhæfni, sveigjanleiki og jákvæðni
• Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
• Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
• Uppsetning á sjálfstýringum s.s. kortaplotter, radar ,
ljósabúnaði, fjarskiptabúnaði og fleiru
• Uppfærslur og uppsetning á tölvubúnaði, netkerfum,
síma- og kallkerfum
• Lagna- og tengivinna innan- og utandyra
• Bilanaleit og viðgerðir á raf- og hugbúnaði
• Tæknileg ráðgjöf um val á búnaði fyrir viðskiptavini
Umsóknarfrestur er til og með 5. desember 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja
starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður
með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511 1225.
Helstu verkefni og ábyrgð: Menntunar- og hæfniskröfur:
Landhelgisgæsla Íslands er löggæslu-
stofnun sem hefur það hlutverk að
sinna löggæslu og eftirliti sem og leit
og björgun á hafsvæðinu umhverfis
Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig
framkvæmd á varnartengdum rekstrar-
verkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins
sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning
við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur
öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórn-
stöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva
Atlantshafsbandalagsins.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega
230 manna samhentur hópur sem hefur að
leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks!
Gildi Landhelgisgæslunnar eru:
Öryggi - Þjónusta – Fagmennska.
Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu
Íslands má finna á: www.lhg.is.
Starf í stjórnstöð
Atlantshafsbandalagsins
Landhelgisgæsla Íslands leitar að áhugasömum einstaklingi til starfa í stjórnstöð Atlantshafs-
bandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli sem rekin er af Landhelgisgæslu Íslands.
• Nám sem nýtist í starfi
• Áhugi og geta til að starfa í fjölbreyttu tækniumhverfi
• Góð greiningarhæfni og lausnarmiðuð hugsun
• Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
• Reglusemi, snyrtimennska og stundvísi
• Sjálfstæði, nákvæmni og agi í vinnubrögðum
• Geta til að stunda vaktavinnu og vinna undir álagi
• Mjög góð enskukunnátta í ræðu og riti
• Loftrýmiseftirlit, eftirlit með umferð á hafi og
stuðningur við loftrýmisgæslu
• Samskipti við stjórnstöðvar Atlantshafs-
bandalagsins
• Eftirlit með fjargæslukerfum
• Skýrslugerð og greining gagna
• Önnur tilfallandi verkefni
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla
skilyrði fyrir öryggisheimild sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.
Stefnt er að ráðningu frá janúar/febrúar 2023. Viðkomandi vinnur dagvinnu meðan á þjálfun stendur sem getur verið allt að
24 mánaða tímabil. Að því loknu er gert ráð fyrir að vaktavinna geti hafist og þá er unnið á 8 tíma þrískiptum vöktum. Kostur
er ef viðkomandi býr á Suðurnesjum.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is)
í síma 511 1225.
Helstu verkefni og ábyrgð: Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsóknarfrestur er til og með 5. desember 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan Landhelgisgæslunnar
og jafnréttisáætlunar stofnunarinnar, eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h.
ríkissjóðs.
6 ATVINNUBLAÐIÐ 19. nóvember 2022 LAUGARDAGUR