Fréttablaðið - 19.11.2022, Page 47
Þróunarstjóri
mannvirkjaskrár
Laust starf hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem
leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu,
miðlun og stafræna þróun?
Helstu verkefni og ábyrgð
• Hafa yfirsýn yfir og leiða faglega þróun mannvirkjaskrár til framtíðar.
• Leiða samskipti og samstarf við hagaðila sem styður við virkni og þróun
mannvirkjaskrár.
• Sinna fræðslu- og kynningarstarfi um mannvirkjaskrá,
þróun hennar og rekstur.
• Verða sérfræðingur í stærðar- og hlutfallsútreikningum mannvirkja.
• Vinna náið með hugbúnaðarteymi við þróun viðmóts nýs
skráningarkerfis mannvirkja.
• Sinna fræðslu- og kynningarstarfi um viðmót og virkni nýs
skráningarkerfis mannvirkja.
• Koma að vinnu við gerð og endurskoðun laga og reglugerða
sem tengjast mannvirkjaskrá.
Þekking og hæfni:
• Háskólamenntun á byggingarsviði, s.s. byggingarfræði, tæknifræði,
verkfræði eða arkitektúr.
• Brennandi áhugi og góð þekking á tölvu- og gagnavinnslu á sviði
mannvirkjagerðar.
• Reynsla af byggingarframkvæmdum og/eða mannvirkjahönnun.
• Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
• Framsýni, sköpunargleði og þrautseigja.
• Reynsla á sviði verkefnastjórnunar er æskileg.
• Gott vald á íslensku og ensku.
Um mannvirkjaskrá HMS
Í mannvirkjaskrá er meðal annars að finna upplýsingar um stærðir og
eiginleika bygginga, hönnuði þeirra og byggingaraðila ásamt framvindu
á byggingartíma. Til staðar er fjöldi spennandi þróunartækifæra til að
efla mannvirkjaskrá og rekjanleika mannvirkjagerðar til framtíðar, til
dæmis varðandi móttöku rafrænna hönnunargagna og vistun mikilvægra
upplýsinga á borð við orkunýtingu, vottanir, tjón, viðhald og fleira sem
gerist á líftíma mannvirkja.
Nánari upplýsingar
Guðjón Steinsson, gudjon.steinsson@hms.is
Sótt er um starfið á www.hagvangur.is
hms.isBorgartúni 21, 105 Reykjavík - Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki - Hafnarstræti 107, 600 Akureyri
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2022
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is