Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1980, Blaðsíða 7
FORMÁLI
Skýrsla þessi hefir þegar verið gefin út í sænskri þýðingu
á vegum NOMESKO.Sænsku utgáfunni fylgja fleiri viðaukar
en þeirri íslensku.
Viðauki I í íslensku útgáfunni er eins og í þeirri sænsku
nema í sænsku útgáfunni eru birtar 19 töflur að auki með
nákvæmri aldursskiptingu.
Viðauki II í íslensku útgáfunni er ekki í þeirri sænsku.
Hann er birtur hér bæói vegna þess að i honum er frekari
úrvinnsla á niðurstöðum og vegna þess aö hann gefur almenn-
um lesendum gott yfirlit um rannsóknina i stuttu máli.
Viðauki II í sænsku útgáfunni fjallar um samanburð á flokk-
unarkerfi þvi,sem notaó var vió flokkun tilefna og tillögu
aó nýju flokkunarkerfi.
I viðauka III er borin saman flokkun þeirra sjúkdómsgrein-
inga,sem komu fyrir árið 1977,eftir 3 flokkunarkerfum,ICD 8,
Nomesco Code List for Ambulatory Care og ICHPPC.
I sænsku útgáfunni birtist auk þessa úrdráttur á finnsku
og ensku.
Höfundar þakka eftirtöldxim aóilum margvíslega aóstoð við
verkefnið:
Ásmundi Brekkan,yfirlækni,sem þýddi handritið á sænsku
og gaf um leið margar gagnlegar ábendingar um framsetningu.
Helgu Aðalsteinsdóttur,sem vann að verkefninu í upphafi
sem ritari við Heilsugæslustöðina á Egilsstöðum,orðtók
alla samskiptaseðla árið 1977 m.t.t. tilefnis og greiningar,
vélritaði lokahandrit skýrslunnar og stóð fyrir vélritun
á öllum viðaukum sænsku útgáfunnar.Allt þetta vann hún
af stakri nákvasmni og vandvirkni.
Jónasi Ragnarssyni,sem sá um uppsetningu og myndir.
Starfsfólki Heilsugæslustöðvarinnar og sjúkrahússins á
Egilsstöðum fyrir þáttöku í skráningunni.
Starfsmönnum Verkfræðistofu Helga Sigvaldasonar,sem unnu
við forritun.
Forráóamönnum og starfsfólki Krabbameinsfélags Islands
fyrir margvíslega aðstoð og aðstöðu.
Nordisk Ministerrád,sem styrkti verkefnió fjárhagslega.
Landstingsförbundet,Stokkhólmi,sem aðstoðaði viö vélritun
á texta skýrslunnar á sænsku.
Erik Allander,prófessor,sem heimsótti okkur tvívegis á
Egilsstöóum,gaf góð ráð og ábendingar og veitti ennfremur
vinnuaðstöðu á Socialmedicinska Inst.,Huddinge Sjukhus í
Stokkhólmi.
Þátttakendum i NOMESKO, sem hvöttu til verksins i upphafi,
og studdu með ráðum og dáð meðan á þvi stóð.
5