Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1980, Blaðsíða 12
Árangur
1 Starfsfólk hpilsugæslustöövarinnar á Egilsstöðum, sem notar
sjúkraskrána og upplýsingakerfið, er almennt ánægt meö kerfið.
Ekki hefir þurft aó ráóa fleiri ritara en ella til þess aó
halda uppi skráningu. Starfsfólkið telur aó kerfió muni bæta
starfsemi stöövarinnar bæði nú og í framtíóinni.
Skráningarkerfió auðveldar skipulagningu og þaó er auðveldara
fyrir nýja starfsmenn aó hefja störf.
Þannig gerir notkun samskiptaseðils starfsmönnum t.d. mögu-
legt að fara i sameiningu yfir þaó, sem gerðist daginn áóur
og bera saman bækur sínar.
2 Röðun og geymsla sjúkraskránna er ófullnægjandi. Hugmyndir
liggja fyrir um úrbætur.
3 Mat á tilefnisflokkun þeirri, sem notuð hefur verió, hefur
leitt í ljós að flokkunarkerfiö er annars vegar of likt
venjulegri sjúkdómaskrá og hins vegar ekki nógu nákvæmt til
þess aó greina í sundur ýmis tilefni önnur en sjúkdómsein-
kenni.
I viðauka er lögð fram tillaga að endurbættu flokkunarkerfi.
Lítill vafi er á þvi aö skráning tilefnis eykur vidd skráning-
arinnar og getur varpað ljósi á ýmislegt sem hefðbundin sjúk-
dómaskráning skýrir ekki. I öðrum tilvikum er tilefnisskráning
gagnslítil, ef hún helst ekki í hendur við skráningu á grein-
ingu og úrlausn. Má þar t.d. nefna allan þann fjölda sam-
skipta þar sem tilefnið er eftirlit eða endurnýjun lyfseðils.
4 Sjúkdómsgreiningar hafa verið flokkaðar samkvæmt 8. útgáfu
Hinnar alþjóðiegu sjúkdóma- og dánarmeinaskrár, ICD8.
I nokkrum tilvikum hefur verið bætt við bókstaf fyrir framan
eða aftan ICD kódann til þess að auka nákvæmni kódunar.
Borin hefur verið saman flokkun allra sjúkdómsgreininga, sem
komu fyrir árið 1977, samkvæmt þremur flokkunarkerfum, ICD8,
NOMESCO Code list for Diagnoses used in Ambulatory Care og
International Classification of Health Problems in Primary
Care, ICHPPC.
Við þennan samanburö kom ekki fram verulegur munur á tveimur
síöarnefndu flokkunarkerfunum hvað varöar nákvæmni. Hins vegar
eru bæði þessi kerfi of ónákvæm með tilliti til gerðar ná-
kvæmrar sjúkdómaskrár.
Á grundvelli efniviðar rannsóknarinnar gæti skynsamleg lausn
falist i úrdrætti úr ICD8 sem væri 500 - 600 númer. Ördrátt-
urinn viki i engu frá ICD8 á fjórða aukastaf og væri jafn-
nákvæmur og ICHPPC þar sem hann er nákvæmari en ICD8 og væri
þá útvíkkað með bókstafsviðskeyti við ICD númerið.
5 Formlegt mat á úrlausnarflokkun hefur ekki farið fram.
10