Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1980, Blaðsíða 30
í línum 10 - 15 lýsir starfsmaður vanda íbúans nánar eða vísar til
heimilda. Starfsmaðurinn ákveóur sjálfur hversu itarleg lýsingin er.
Hann getur einnig lesió lýsinguna inn á segulbaná.
I línu 16 -17 er skráð greining heilsuvanda. Hver greining fær
sérstakt raónúmer i heilsuvandaskránni. Þarf jafnan aó gæta þess
hvort heilsuvandi hefur verið skráður áður og þess þá gætt aó skrá
sama raónúmer á seóilinn.
Ef um er að ræða tímabundinn heilsuvanda (t.d. einfaldar kvef-
sóttir, vottorð, smáslys) er valið raðnúmer á bilinu 40 - 99, en
ef varanfegan á bilinu 01 -• 39.
1 línu 18 - 21 skulu skráðar úrlausnir.
Ef um er að ræóa fleiri en eina greiningu skal skrá sérstakan
seðil fyrir hverja greiningu. Tilefni þarf þó ekki að skrá nema á
einn seðil og skal skráð með þeirri greiningu sem á við tilefni
samskiptanna. Ekki er heldur nauósynlegt að skrá annað en grein-
ingu og úrlausnir á aukaseðlana svo og lýsingu eftir ákvörðun
starfsmanns. Seölarnir eru síðan festir saman með bréfaklemmu eða
heftir saman og ritari gefur þeim númer i reitinn í linu 22.
Flokkun tilefnis, greiningar og úrlausna er fyllt út af ritara.
5.3.2 Heilsuvandaskrá (mynd 4) er efnisyfirlit sjúkraskrárinnar.
Hún er skrá yfir öll heilsuvandamál ibúans, gömul sem ný. Hún
byggir á spurningum um heilsufar annars vegar og framhalds- og
flæðiblöðum ásamt öðrum heimildum hins vegar um nánari skilgreiningu
hvers heilsuvanda. í dagsetningardálkinn fremst er skráó dagsetning
fyrstu skriflegu heimildar um heilsuvandann. (Ef skrá á raunveru-
legt upphaf heilsuvandans er hægt aó gera það á undan heiti heilsu-
vandans). 1 annan dálkinn er skráó nr. vandans, síðan heiti og síö-
ast er pláss fyrir flokkun. Neöst á skránni eru skráð timabundin
heilsuvandamál og þeim gefin númer á bilinu 40 - 99 eins og áður
er lýst. Ef skráin fyllist eru svo einungis varanlegu heilsuvand-
arnir fluttir á annað blað.
5.3.3 Spurningar um heilsufar (myndir 5 og 6).
Spurningalistinn er tilraun til þess að tryggja söfnun ákveóinna
lágmarksupplýsinga um hagi og heilsufar hvers ibúa.
Eyðublað það sem hér er sýnt er nokkru styttra en það sem notað var
í upphafi því að spurningum um sjúkdómseinkenni, sem voru á fyrra
blaðinu, hefur verið sleppt.
28