Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1980, Blaðsíða 90

Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1980, Blaðsíða 90
1 2 Egilsstaðarannsóknin: Sjúkraskrár fyrír heilsugæslustöðvar og tölvufærsla upplýsinga I grein þessarri verður sagt frá rannsókn á sjúkraskrám fyrir heilsugæslustöðvar og úrvinnslu upplýsinga úr þeim. Rannsóknin fór fram við Heilsugæslustöðina á Egilsstöðum og hófst árið 1975. Hún var framkvæmd með styrk frá Norðurlandaráði, að tilhlutan norrænnar nefndar um staðtölu- gerð á sviði heilbrigðismála. Nefndin nefnist NOMESKO og hafa Islendingar tekið þátt í störf- um hennarsíðan 1974. Rannsókn þessi hefir leitt í Ijós að únnt er án verulegrar fyrir- hafnar að skrá nákvæmlega öll Grein eftir Guðmund Sigurðsson samskipti íbúa á tilteknu svæði við heilsugæslustöð. Þessi skráning getur orðið eðlilegur þáttur í starfi stöðvarinnar. Sjúkraskráin og upp- lýsingakerfið, sem rannsóknin hefur þróað virðist vera: — gagnlegt hjálpartæki við stundun sjúklinga — góð undirstaða upplýsinga um heilbrigðisástand íbúahópsins — góð undirstaða upplýsinga um heilsugæsluþjónustuna. Markmið rannsóknarinnar var að þróa aðferðir við að skrá, telja . og flokka samskipti íbúa tiltekins svæðis við heilsugæslustöð. í þessu skyni var prófað: 1. Nýtt sjúkraskrárform fyrir heilsugæslu. 2. Notkun samskiptaseðils við skrásetningu upplýsinga um samskipti íbúanna og heilsu- gæslustöðvarinnar. 3. Gagnsemi og hagkvæmni þess að nota tölvu við skráningu, geymslu og úrvinnslu upplýs- inga. Starfssvæði heilsugæslustöðvarinn- ar á Egilsstöðum nær yfir ellefu sveitarfélög með um 2700 íbúa sam- tals. Þessir hreppar eru: Hlíða- hreppur (1), Jökuldalshreppur (2), Fljótsdalshreppur (3), Fellahreppur (4), Tunguhreppur (5), Hjaltastaða- hreppur (6), Borgarfjarðarhreppur (7), Skriðdalshreppur (8), Valla- hreppur (9), Egilsstaðahreppur (10) og Eiðahreppur (11). 18 Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980 3 4 5 Árið 1974 var heilbrigðisþjón- ustan hér á landi skipulögð sam- kvæmt nýjum lögum. Var í lögunum stefnt að stofnun heilsu- gæslustöðva um allt land. Heilsu- gæslustöðin á Egilsstöðum var ein af fyrstu stöðvunum sem tóku til starfa, í apríl 1974. Starfssvæði stöðvarinnar nær yfir tíu sveitarfélög á Fljótsdals- héraði og Borgarfjörð eystri. íbúafjöldi á þessu svæði 1. desember 1978 var 2962. Helmingur býr í þéttbýli kringum Egilsstaði og í Bakkagerði. Heilsu- gæslustöðin er byggð í tengslum við 26 rúma almennt sjúkrahús. I árs- lok 1978 störfuðu við stöðina og sjúkrahúsið 39 manns (35,4 stöðu- gildi), 3 læknar, 1 tannlæknir, 4 hjúkrunarfræðingar, 2 ljósmæður, 1 lyfsali, 1 meinatæknir, 3 ritarar, 5 sjúkraliðar og 19 aðrir starfsmenn. Skráning sú sem lýst er náði ein- göngu til samskipta íbúanna við lækna, hjúkrunarfræðinga og ljós- mæður. Tildrög rannsóknarinnar voru þau að þegar heilsugæslustöðin tók til starfa varð ljóst að sjúkraskrár- formið sem notað hafði verið var ófullnægjandi og uppfyllti ekki nema að litlu leyti þær kröfur sem gera þarf til sjúkraskrár. Skipulagning heilbrigðisþjón- ustunnar, samkvæmt lögunum frá 1973, gerði kröfur til mun betri sjúkraskrár en áður hafði tíðkast. Ástæða þess var sú að þjónusta stöðvanna átti að spanna mjög vítt svið heilsuverndar og lækninga og taka til heilbrigðisþjónustu hvers einstaklings allt æviskeið hans. Ennfremur skyldi starfsemi stöðv- anna ekki einungis beinast að þeim sem þangað leituðu þjónustu af sjálfsdáðum, heldur var lögð á stöðvarnar ábyrgð á því að allir í íbúahópnum fengju notið þjónustu til verndar heilbrigði sínu. Kröfur til sjúkraskrár fyrir heilsugæslustöðvar hafa verið sett- ar fram á eftirfarandi hátt, og sagt að þær eigi að: ... vera nothæft minnisblað um samskipti sjúklings og heilbrigðis- starfsmanns, ... safna upplýsingum frá öðrum um heilsufar einstaklingsins og tengja þær vanda hans hverju sinni. Útlitsteikning af vesturhlið heil- brigðisstofnana á Egilsstöðum. 1: ibúðir aldraðra. 2: Byggingasvæði sjúkrahúss. 3: Heilsugæslustöð. 4: Sjúkrahús. 5: Dvalarheimili aldraðra (í byggingu). Arkitektar nýbygginga eru Manfreð Vilhjálmsson og Þorvaldur S. Þor- valdsson. ... raða og setja upp þær upp- lýsingar sem sjúkraskráin hefur að geyma á þann hátt að heilbrigðis- starfsmenn geti valið hvað þeir lesa en séu ekki knúnir til að lesa skrána frá orði til orðs, ... gera mögulega innköllun hópa eða einstaklinga sem taldir eru í áhættu, ... gera mögulegt eftirlit með gæðum og afköstum þjónustunnar, Tilefni samskipta árið 1978 skiptust þannig að 36,7% voru vegna sjúk- dómseinkenna, 21,9% vegna endur- nýjunar lyfseðils, 20,2% vegna eftir- lits, 6,7% heilsuvernd, 3,4% vegna slysa og 11,1% af öðrum tilefnum. Samskiptin þetta ár urðu alls 12.318 (karlar 5.248, konur 7.070). Sjúk- dómseinkenni og slys voru algeng- ari tilefni hjá körium en konum. Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980 1 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.