Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1980, Blaðsíða 21
til þess aö tekin var til endurskoðunar læknaskipan á Fljótsdals-
héraöi. Þótti einsýnt aö mióstöö læknisþjónustu alls héraðsins
yrði í Egilsstaöaþorpi.
1944-1974
1 læknaskipunarlögum 8. mars 1944 var gert ráð fyrir einum héraös-
lækni sem þó hefði jafnan aöstoðarlækni sér viö hönd og gegndi Ari
Jónsson því embætti, en frá 1954 og til 1974 sátu á Egilsstöðum
2 sjálfstæðir héraðslæknar. Gegndi Ari Jónsson A-Egilsstaðahéraði,
sem náði yfir Hjaltastaða-, Eiða-, Egilsstaða-, Valla- og Skrió-
dalshrepp 1954-1960, en Þorsteinn Sigurðsson gegndi N-Egilsstaða-
héraði 1954-1974 að enn varð breyting á skipan mála.
1944 varó Borgarfjaröarhreppur sérstakt læknishéraó með læknis-
setri í Bakkagerði. Illa gekk að manna héraðið og varð seta læknis
þar mjög stopul að undanskildum árunum 1951-1959 aó Inga Björns-
dóttir sat samfleytt í Bakkagerði. Ör þvi var héraóinu gegnt af
Egilsstaðalæknum.
Læknamiðstöð á Egilsstöðum.
Meö breytingu á læknaskipunarlögum 1965 var veitt heimild til
byggingar læknamióstöðvar þar sem læknishéruð gætu komið sér saman
um sameiningu.
Sveitarstjórnir í Egilsstaðalæknishéruðum og Bakkagerðishéraði
komu sér saman um slíka sameiningu og byggingu læknamiðstöðvar
á Egilsstöðum. Var þetta fyrsta og raunar eina læknamiðstööin sem
byggð var samkvæmt læknaskipunarlögunum 1965 því nú var þess skammt
aó bíða að gjörbylt yrði skipan læknisþjónustu á landinu með setn-
ingu laga um heilbrigðisþjónustu 1973.
Sjúkraskýli á Brekku.
1 tengslum vió læknisbústaðinn, sem byrjað var að byggja á Brekku
1903, var reist sjúkraskýli. Var þetta nýjung sem átti fyrir sér
mikinn viógang um allt land. Aðilar að sjúkraskýlinu voru öll
sveitarfélög endilangs Fljótsdalshéraós enda þótt 2 læknishéruó
væru. Borgarfjarðarhreppur, sem tilheyrði ytra héraðinu, stóó þó
utan við. Sjúkraskýlið var tekið í notkun 1907 með 4 sjúkrarúmum,
flest uróu þau 10 en síóustu árin sem það var rekið 6. Sjúkra-
skýlið brann til kaldra kola ásamt læknisbústaðnum á Brekku í
ársbyrjun 1944 og var ekki endurreist enda skammt að biða að byggt
yrói sjúkraskýli á Egilsstöóum.
Sjúkraskýli á Egilsstöðum var byggt í tengslum við læknisbústað þar,
sniðið eftir fyrri tilhögun þjónustunnar á Brekku.
Sjúkraskýlið er skráð 1946 enda þótt rekstur þess hæfist ekki fyrr
en 1949. Frá 1949-1959 er rúmafjöldi talinn 7 en síóan 1960 8.
4.2 Núverandi skipan.
Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu sem gildi tóku 1. janúar
1974 eru A- og N-Egilsstaóahéruð ásamt Bakkageróishéraói formlega
sameinuð í eitt hérað sem nú nefnist starfssvæði Heilsugæslustöðv-
arinnar á Egilsstöðum. Heilsugæslustöð, sem hafin var bygging á
1970 samkvæmt heimild um læknamiðstöðvar, var tekin í notkun í
19