Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1980, Blaðsíða 62
Var reynt aö bæta úr göllum þeirrar flokkunar með þvi að halda
sér við einfaldan öxul, miðaðan við svæði á yfirborði likamans á
svipaðan hátt og gert er i flokkun Knud Jacobsens.
Undirflokkar voru síðan stokkaðir upp með tilliti til þess að minni
hluti tilefnanna lenti i undirflokkinn, önnur tilefni. Kafli 9,
ýmis tilefni, var einnig stokkaður upp og skipt í fleiri undir-
flokka.
Flokkun greiningar.
Greining hefur verið flokkuð eftir ensku útgáfunni af ICD8 (41).
I nokkrum tilvikum hefur verið bætt bókstaf framan eða aftan við
ICD kódann ef hann hefur ekki þótt nægilega nákvæmur. Hugmyndin aó
þessu er fengin frá Perry (27). Þessi möguleiki hefur þó veriö
tiltölulega litið notaður. Flokkunin hefur verið erfið í fram-
kvæmd en árangur góður eins og kemur fram i kafla 6.4 um gæói
skráningar. Á sama hátt og gert var hvað varðar tilefni hafa
allir samskiptaseðlar 1977 verið orðteknir með tilliti til
greiningar, þeim raðað á kódanúmer og einnig i stafrófsröð.
Farið hefur fram samanburður á kódun allra greininga sem komu
fyrir 1977 samkvæmt þremur flokkunarkerfum: ICD8, International
Classification of Health Problems in Primary Care (ICHPPC)(37) og
Nomesko Code list for Diagnoses used in Ambulatory Care (34).
Fyrir hvern ICD kóda sem notaóur var 1977 var tilsvarandi kódum
í ICHPPC og Nomesko gefin einkunn á eftirfarandi hátt:
Einkunn 1: Kódinn er jafn nákvæmur og ICD8.
Einkunn 2: Kódinn er ekki eins nákvæmur og ICD8 en skortur,á
nákvæmni skiptir ekki miklu með tilliti til nákvæmni
greiningarinnar i sjálfu sér.
Einkunn 3: Kódinn er ekki eins nákvæmur og ICD8.
Skortur á nákvæmni leiðir til þess að greiningin lendir
í restgrúppu innan viðkomandi kafla,.
Þessi samanburður leiðir i ljós að i flestum köflunum eru um 60%
af kódum þeim sem notaðir hafa verið með einkunn 1 og 15 - 20% með
einkunn 2. Ekki kemur fram verulegur munur á ICHPPC og Nomesko
nema i kafla IX, sjúkdómar í meltingarfærum.
Auk þessa hefur verið geró skrá um samsvörun milli ICD8, Nomesko
og ICHPPC. Við gerð þeirrar skrár kemur i Ijós að hægt er í
öllum tilvikum að finna nákvæma samsvörun milli ICD8 og Nomesko
en i nökkrum tilvikum vikur ICHPPC frá ÍCD8 oftast i þá átt að
hann er nákvæmari. Þetta kemur einkum fram í viðbót vió kafla 18
þar sem bætt er við í ICHPPC 16 greiningum á félagslegum og
fjölskylduvandamálum. (Nomesko gérir þetta reyndar lika en á
aftnan hátt).
Þrátt fyrir þetta er í næstum öllum tilvikum hægt að breyta kódun
Egilsstaðarannsóknarinnar sem var i áumum tilvikum nákvæmari en
ICD8 vegna notkunar forskeyta og vióskeyta yfir í ICHPPC. Skrá
um samsvörun milli Nomesko og ICHPPC er hins vegar i mjög mörgum
tilvikum erfitt að gera vegna minni háttar frávika i samdrætti á
ICD8.
60