Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1982, Síða 9
5
á því að finna sarcoma eru hverfandi, en nauðsyn á
frumstigsgreiningu er svo augljós, að kostnaður og
geislaskammtur eru réttlætanleg.
b) 55 ára kona kemur í rannsókn vegna óljósra þreytueinkenna.
Klinisk rannsókn leiðir í ljós hypertensio arterialis.
Á að gera urografiu? (spurning: genesis renovascularis?).
Svar: Neil - Flæðisupplýsingar eru mun áreiðanlegri
með renografiu, sem er heldur ódýrari, óþægindaminni og
gefur nánast engan geislaskammt. Aldur sjúklings mælir
gegn skurðaðgerð, og aðrar upplýsingar um starfsemi
nýrnanna fást á annan hátt án geislunar.
Þessi einfölduðu daani eiga að sýna, að ákvörðunin um röntgen-
rannsókn verður að vera einstaklingsbundin og jafnframt tengd
ákveðnum kliniskum kringumstæðum. í þeim er það afstaða
einkennanna sem ræður ákvörðuninni um röntgenrannsókn
eða ekki. Þess ber vandlega að gæta, að rannsókn, sem gefur
niðurstöðuna "ekkert sjúklegt", er engan veginn sama og
"ónauðsynleg röntgenrannsókn". Óþarfi er að fjölyrða um, að
niðurstaða af röntgenrannsókn, sem ekki leiðir í ljós sjúklegar
breytingar, er sjúklingnum nákvæmlega jafn verðmæt og hver önnur,
hafi rétt verið staðið að ákvörðuninni um hana.
Hverjum lækni og starfsmanni á heilbrigðissviðinu er nauðsynlegt
að kunna skil á grundvallaratriðum geislaeðlisfræði og geisla-
varna. Þau munu lítillega rifjuð upp í næstu köflum.