Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1982, Blaðsíða 10
6
3. GEISLAESLISFRÆÐI O.FL.
a) Eðiisfræði:
Röntgengeislun er segulsveiflufyrirbæri af sama flokki og t.d.
útvarpsbylgjur og sýnilegt ljós, en með stuttri öldulengd,
_8 c
10 cm eða minni (öldulengd Xjóss: 4-7x10 cm). Samfara
þessari mjög stuttu öldulengd,er ör sveiflutíðni, en eðlis-
fræðileg og líffræðileg áhrif geislunarinnar eru tengd þessum
eiginleikum. Þessir eiginleikar eru bundnir minnstu orkueind-
inni, fótónu. Þegar slíkar orkueindir rekast á frumeind ,
atóm, breyta þær á ýmsan hátt byggingu frumeindarinnar.
Algengust er jónun, sem er í því fólgin, að einni rafeind,
elektrónu, er skotið af yztu hverfibraut. Röntgengeislun, og
geislun frá geislavirkum efnum er því almennt nefnd jónandi
geislun.
b) Geislaskammtar:
Mælieining jónandi geislunar er Röntgen, sem er rituð R.
Heildargeislun í jónun lofts er þannig skráð. Á leið sinni
gegnum vefi (eða aðra hluti) hemlast (absorberast) hluti
geislaorkunnar. Sá skammtur, sem þannig hemlast við geisla-
magnið ÍR er ritaður 1 rad, og táknar yfirfærða orku á ákveðna
massaeiningu (1 rad: 0.001 joule/kg). Þá má segja, að vefur,
sem verður fyrir geislamagni IR, taki við geislaskammti eða
-orku = 1 rad. Einn af þýðingarmestu áhrifaþáttum röntgen-
geislunarinnar eru áhrifin á lifandi, vaxandi vefi, og því er
orkuskammturinn rad (radiation absorbed dose) einnig oft
ritaður rem (= roentgen equivalent/man).
í venjulegum skilgreiningum eru 1 rad = 1 rem. ÞÚsundustu hlutar
ofangreindra mælieininga eru. oftast notaðir : milliröntgen ■ 1 mr,
millirad - 1 mr, millirem - 1 mrem.
Samkvæmt nýju mælieiningakerfi, svonefndu ££, eða alþjóðastaðals-
kerfi er nú stefnt að notkun orkueininga, GY (grey). 1 Gy =
1 J/kg - 100 rad. 1 rad er þannig 10 mG^, en mælieiningar verða
væntanlega notaðar jöfnum höndum um alllanga framtíð. (Sjá töflu
í viðauka).